Bretar gúgluðu „Hvað er ESB“ eftir að kjörstaðir lokuðu

Um mið­nætti í gær, eftir að kjör­stöðum í Bret­landi hafði verið lokað, varð 250 pró­senta aukn­ingi í leitum á Google með spurn­ing­unni „Hvað ger­ist ef við yfir­gefum ESB?“. Vin­sæl­ustu spurn­ing­arnar um þjóð­ar­at­kvæða­greiðsl­una, þar sem Bretar kusu að yfir­gefa Evr­ópu­sam­bandið, voru um það hvernig fólk færi að því að kjósa, og svo ein­fald­lega hvað er Brexit? Brexit er orðið sem notað er yfir útgöngu Bret­lands úr ESB. Washington Post greinir meðal ann­ars frá þessu.

Eins og sjá má hér að neðan voru vin­sæl­ustu spurn­ing­arnar um Evr­ópu­sam­bandið eftir að kjör­stöðum lok­aði hins vegar hvaða þýð­ingu það hafi að yfir­gefa Evr­ópu­sam­bandið og svo ein­fald­lega „Hvað er ESB?“. Þar á eftir kom spurn­ing um hvaða lönd séu í ESB.

Þá hefur einnig orðið 100% aukn­ing á leitum um það að öðl­ast írskt vega­bréf eftir að úrslitin urðu ljós, og í London varð 680% aukn­ing í leitum að mögu­leik­unum á því að flytja til Gíbraltar. Í Birming­ham, næst­fjöl­menn­ustu borg Bret­lands, var vin­sælasta spurn­ingin „What is the EU refer­endum?“ eða „Hvað er þjóð­ar­at­kvæða­greiðsla um ESB?“ eftir að kjör­stöðum var lokað.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

2
Viðtal

Ef við kveðjum tungu­málið, þá týnum við vídd draumanna

Í sögu íslenskra bók­mennta í þús­und ár er lögð áhersla á raddir inn­flytj­enda, þá sem nú. Höf­und­ur­inn, Halldór Guð­munds­son, öðl­að­ist tveggja heima sýn ungur í Þýska­landi. Að læra lat­ínu frá 10 ára aldri lam­inn af kenn­ara sem skildi hann ekki, í sárum eftir heims­styrj­öld. Seinna spurði hann sig: „Hver má tala?" Í dag segir hann: „Íslend­inga­sögur dags­ins í dag eru að hluta til sagðar af fólki sem hingað hefur flutt."

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

5
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár