Bjarni skipar stjórnarformann Borgunar í sérfræðingahóp

„Grunn­hugs­unin hér er sú að við komum á fót stöð­ug­leika­sjóði sem haldi utan um arð af orku­auð­lindum í eigu rík­is­sjóðs og tryggi kom­andi kyn­slóðum hlut­deild í ávinn­ingi af sam­eig­in­legum auð­lindum,“ sagði forsætis­ráðherra á Viðskipta­þingi í gær.

Bjarni Benediktsson forsætis­ráðherra hefur skipað Erlend Magnússon, stjórnar­formann Borgunar, í sér­fræð­inga­hóp sem mun und­ir­búa lög­gjöf um stofnun stöð­ug­leika­sjóðs. Í hópinn voru einnig skipuð þau Kristín Har­alds­dótt­ir, lög­fræð­ing­ur, sér­fræð­ingur í auð­linda­rétti og fyrr­ver­andi aðstoð­arkona Ólafar Nor­dal í inn­an­rík­is­ráðu­neyt­inu og Ingi­mundur Frið­riks­son, fyrr­ver­andi seðla­banka­stjóri.

Bjarni tilkynnti um þetta í ávarpi sínu á Viðskipta­þingi Viðskipta­ráðs Íslands í gær. „Grunn­hugs­unin hér er sú að við komum á fót stöð­ug­leika­sjóði sem haldi utan um arð af orku­auð­lindum í eigu rík­is­sjóðs og tryggi kom­andi kyn­slóðum hlut­deild í ávinn­ingi af sam­eig­in­legum auð­lindum um leið og hann getur verið sveiflu­jafn­andi fyrir efna­hags­líf­ið,“ sagði hann og greindi svo frá því að hann hefði skipað í sérfræðinga­nefnd um stofnun sjóðsins. 

Kjörinn stjórnarformaður í kjölfar Borgunarmáls

Erlendur Magnússon er menntaður í alþjóða­samskiptum og starfar sem fjár­festir og stjórnar­formaður Total Capital Partners í London. Hann var framkvæmda­stjóri hjá Glitni á árunum fyrir hrun og yfir deild sem sá um skuld­setta fjár­mögnun. Félag í eigu Erlends og eiginkonu hans, Fjár­sjóður ehf., var talsvert til umfjöllunar í fjöl­miðlum árið 2013 eftir að grunur vaknaði um innherja­svik vegna sölu á hluta­bréfum félagsins í mars 2008. Sérstakur saksóknaði ákærði Erlend og eignir Fjársjóðs voru kyrr­settar en síðar felldi Hæstiréttur kyrr­setninguna úr gildi auk þess sem sérstakur saksóknari dró ákæruna til baka. 

Erlendur var kjörinn stjórnar­formaður Borgunar hf. á aðalfundi þann 19. febrúar 2015 skömmu eftir að Lands­bankinn hafði selt eignar­hlut sinn í fyrir­tækinu í lokuðu söluferli, án auglýsingar og langt undir markaðs­virði. Einn af kaup­endunum var Einar Sveinsson, föður­bróðir Bjarna Benedikts­sonar sem þá var fjármála­ráðherra og fór óbeint með hlut ríkisins í Lands­bankanum. Viðskiptin vöktu mikla tortryggni, en nokkrum vikum eftir söluna voru 800 milljónir króna greiddar út í arð til hluthafa Borgunar.

Alls hefur félag Einars, sem Benedikt Einarsson sonur hans er stjórnar­maður í, fengið um 86 milljónir króna í arð vegna hlutarins í Borgun frá því að salan fór fram. Bæði banka­stjóri og banka­ráð Landsbank­ans hafa viðurkennt að eðlilegra hefði verið að selja eignar­hlut bankans í Borgun í opnu söluferli.

Taldi umræðu um ójöfnuð á villigötum

Erlendur er varamaður í skóla­nefnd Seltjarnarnes­bæjar fyrir hönd Sjálfstæðis­flokksins. Athygli vakti á dögunum þegar hann gagnrýndi skýrslu hjálpar­samtakanna Oxfam um ójöfnuð í heiminum og taldi umræðuna um að átta ríkustu menn heims ættu jafn miklar eignir og fátækari helmingur mannkyns á villigötum. „Þegar þessir átta ríkustu menn heims eru skoðaðir, má sjá að þeir hafa ekki orðið ríkir af ofur­launum, heldur er auður þeirra að mestu til kominn vegna þess að þeir stofnuðu fyrirtæki sem hafa vaxið og orðið verð­mætari vegna mikils áhuga stórs hluta jarðarbúa á þeim vörum eða þeirri þjónustu sem þau veita,“ skrifaði hann. 

Í október árið 2014 eftir að skatt­rannsóknar­stjóri hafði sent fjármála­ráðuneytinu erindi vegna boðs um að kaupa gögn um skatta­skjóls­starfsemi Íslendinga skrifaði Erlendur grein í Morgun­blaðið undir yfir­skriftinni „Að kaupa þýfi“ þar sem hann lagðist eindregið gegn því að íslenska ríkið keypti gögnin. Síðar átti Bjarni Benediktsson eftir að sæta gagnrýni fyrir aðkomu sína að umræddu máli, en ráðuneyti hans setti embætti skatt­rannsóknar­stjóra skilyrði fyrir kaupunum sem ollu töfum auk þess sem Bjarni sakaði skatt­rannsóknar­stjóra ranglega um að þvælast fyrir málinu.

Fjallað er um skipan sérfræðinga­hóps um stöðugleika­sjóð á vef forsætis­ráðuneytisins. „Gert er ráð fyrir að fjár­mögnun stöðugleika­sjóðs verði með þeim hætti að til hans verði ráðstafað fjárhags­legum arði ríkisins af orku­auðlindum, eftir atvikum í formi afnota­gjalda, arðgreiðslna orku­fyrirtækja, verðbréfa tengd orku­fyrir­tækjunum eða í öðru formi,“ segir á vefnum. „Þá þarf að meta hvort til sjóðsins yrði lagðar aðrar fjárhagslegar eignir, svo sem fjármunir sem varð­veittir eru í gjaldeyris­varaforða Seðla­banka Íslands samkvæmt sérstöku samkomu­lagi við bankann.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

ACD-ríkisstjórnin

Fréttir

Unnu náið með hæsta­réttar­dómurunum meðan þeir dæmdu Arn­fríðar­mál

Arnfríður Einars­dóttir landsréttar­dómari starfaði sjálf sem vara­dómari með tveimur þeirra hæstaréttar­dómara sem tóku afstöðu um hæfi hennar og bærni til að kveða upp dóma á sama tíma og málið var til meðferðar. Hinir þrír sem valdir voru í Landsrétt í trássi við stjórn­sýslulög störfuðu einnig náið með hæstaréttar­dómurunum meðan Hæstiréttur tók fyrir mál sem hefði getað sett dómara­störf fjór­menninganna í uppnám.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár