Laganna armur langur þó Íslendingar fáist ekki framseldir

Sagt hefur verið frá vilja namibískra yfirvalda til að fá íslenska borgara framselda vegna Samherja­málsins undan­farna daga. Íslendingar verða þó ólíklega fram­seldir til Namibíu.

Frá Windhoek, höfuðborg Namibíu. Þangað mun ólíklega nokkur Íslendingur fást framseldur í bráð.
Frá Windhoek, höf­uð­borg Namibíu. Þangað mun ólík­lega nokkur Íslend­ingur fást fram­seldur í bráð. Mynd: Pexels

Undan­farna daga hafa fjöl­miðlar fjallað um mála­rekstur namibíska ríkisins gagnvart þeim aðilum þar innanlands sem sakaðir eru um mútuþægni og spillingu í tengslum við úthlutun á kvóta til félaga tengdum Samherja. Í umfjöllunum miðla bæði hér á landi og í Namibíu hefur komið fram að spillingar­lögreglan í Namibíu hafi íslenska starfs­menn Samherja í sigtinu, samkvæmt dómskjölum sem lögð hafa verið fram af hálfu yfirvalda.

RÚV sagði frá því í upphafi mánaðar að í eiðsvarinni yfir­lýsingu rannsóknar­lögreglu­manns segði að namibíska lögreglan væri að reyna að grafast fyrir um dvalar­staði að minnsta kosti tveggja nafn­greindra Íslendinga tengdum starfsemi Samherja í Namibíu, með það að markmiði að hefja ferli til að fá þá framselda.

„Glæpir eiga sér engin landamæri,“ hafði namibíska blaðið Republikain eftir ríkis­saksóknara landsins, Mörthu Imalwa, í viðtali á dögunum.

Samherji segir á móti, bæði í yfir­lýsingu á vef sínum og í svörum til namibískra fjölmiðla, að engar tilraunir hafi verið gerðar af hálfu fulltrúa namibískra stjórn­valda til að hafa afskipti af núverandi eða fyrr­verandi starfs­mönnum félaga tengdum Samherja, fyrir­tækið sjálft eða yfirvöld hvorki á Íslandi né öðrum ríkjum þar sem umræddir starfs­menn hafa verið við störf.

Einnig hefur sjávar­útvegs­fyrirtækið haldið því til haga að namibísk yfirvöld hafi engar laga­heimildir til að krefjast framsals íslenskra ríkis­borgara, þar sem enginn samningur sé til staðar á milli Íslands og Namibíu um framsalið. Þetta er að sjálfsögðu rétt. Íslenska ríkis­borgara þarf ekki að framselja til Namibíu, þrátt fyrir að beiðnir um framsal berist þaðan.

Íslenska ríkis­borgara þarf einungis að framselja til ríkja Evrópu­sambandsins og Noregs, samkvæmt evrópsku handtöku­skipuninni, sem lögfest var á Íslandi árið 2016 og tók endanlega gildi 1. nóvember 2019, í kjölfar þess að öll aðildar­ríki þessarar handtöku­skipunar höfðu fullgilt samninginn.

Ekki framsal en alþjóðleg lögsaga um mútubrot

Frá því að Samherja­skjölin komu upp á yfir­borðið í nóvember í fyrra hefur nokkrum sinnum verið fjallað um mögu­leikann á framsali íslenskra sakborninga til Namibíu, færi svo að namibísk yfirvöld legðu fram ákærur á hendur einhverjum.

Ólafur Þór Hauksson héraðs­saksóknari ræddi þetta atriði við Mannlíf í sumar, skömmu eftir að fregnir höfðu borist þess efnis að namibísk yfirvöld hefðu sent beiðni til alþjóða­lögreglunnar Interpol með ósk um liðsinni vegna málsins.

„Í öllum tilvikum þegar fram kemur beiðni um framsal þarf alltaf að vísa til einhverra heimilda. Til þess að framsal sé inni í myndinni þurfa að vera einhvers konar samningar eða skuld­bindingar þarna á milli landa,“ sagði Ólafur Þór.

Þórdís Inga­dóttir, sérfræðingur í alþjóð­legum refsirétti, ræddi þessi mál í Kastljósi á RÚV í nóvember í fyrra. Hún sagði að þrátt fyrir að ekki þyrfti að framselja menn samkvæmt íslenskum lögum væri víð lögsaga um mútu- og spillingarmál, á grund­velli alþjóðlegra samninga sem Ísland hefði gerst aðili að.

Aðild Íslands að samningi Efnahags- og framfara­stofnunar Evrópu (OECD) um baráttu gegn mútum í alþjóða­viðskiptum er það sem varð til þess að í íslenskum hegningar­lögum hefur allt frá árinu 1998 mátt finna laga­ákvæði sem gerir mútu­greiðslur til opinberra starfs­manna refsiverða á Íslandi, sama hvar brotið er framið. Sé sakfellt fyrir slíkt brot getur refsing numið sektum eða allt að 5 ára fangelsi.

Drago Kos, formaður vinnuhóps OECD um mútur, sagði við RÚV í nóvember í fyrra að það yrði „góður prófsteinn á íslensku lögregluna og ákæru­valdið“ að takast á við rannsókn málsins og að vel yrði fylgst með, af hálfu OECD.

Greint var frá því í byrjun september að sex ein­stak­lingar hefðu fengið rétt­ar­stöðu sak­born­inga í rann­sókn hér­aðs­sak­sókn­ara á starf­semi Sam­herj­a. Einn þeirra er Þorsteinn Már Baldvinsson, annar forstjóra fyrir­tækisins.



Í þeim hópi eru einnig þeir Ingvar Júlíusson fjármála­stjóri Samherja á Kýpur og Egill Helgi Árnason fyrr­verandi framkvæmda­stjóri Samherja í Namibíu. Nöfn þeirra tveggja hafa sérstak­lega verið nefnd til sögunnar í umfjöllunum namibískra miðla um vilja namibískra laganna varða til þess að leggja fram framsals­kröfur undan­farna daga.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Samherjaskjölin

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár