Samherji segir namibísku lögregluna ekki leita sinna manna

Í yfir­lýs­ingu frá Samherja segir að namibísk yfir­völd hafi ekki reynt að hafa afskipti af núver­andi né fyrr­ver­andi starfs­mönnum fyr­ir­tæk­is­ins. Hvorki fyrr­ver­andi stjórn­endur félags­ins í Namibíu né aðrir séu á flótta undan rétt­vís­inni.

Þorsteinn Már Baldvinsson, annar forstjóra Samherja.
Þor­steinn Már Bald­vins­son, annar for­stjóra Samherja. Mynd: Samherji

„Hug­leið­ingar ein­stakra lög­reglu­manna í Namibíu ráða engu um þær heim­ildir sem gilda almennt um fram­sal milli ríkja í tengslum við rekstur saka­mála. Namibísk yfir­völd hafa engar laga­heim­ildir til að krefj­ast fram­sals yfir íslenskum rík­is­borg­urum þar sem eng­inn samn­ingur er til staðar milli ríkj­anna um fram­salið,“ segir í yfir­lýs­ingu sem birt er á vef Samherja í dag.

Þar segir einnig að namibísk stjórn­völd hafi „engar til­raunir gert til að hafa afskipti af núver­andi eða fyrr­ver­andi starfs­mönnum félaga tengdum Samherja,“ en til­efni yfir­lýs­ing­ar­innar er frétta­flutn­ingur RÚV af eið­svar­inni yfir­lýs­ingu sem rann­sókn­ar­lög­reglu­maður hjá namibísku spill­ing­ar­lög­regl­unni ACC lagði fram við namibískan dóm­stól nýlega.

Frétt RÚV birt­ist á þriðju­dags­kvöld. Í henni kemur fram að rann­sókn­ar­lög­reglu­mað­ur­inn hafi ritað, í 63 blað­síðna langri yfir­lýs­ingu sinni til dóm­stóls­ins, að namibíska lög­reglan hefði verið að reyna að graf­ast fyrir um dval­ar­stað tveggja nafn­greindra starfs­manna Samherja sem stjórnað hefðu fyr­ir­tækjum tengdum Samherja í Namibíu, auk ann­arra, í því skyni að fá þá fram­selda.

Í frétt­inni kom jafn­framt fram að namibíska lög­reglan hefði sent bréf til full­trúa Interpol í Namibíu í maí til þess að óska eftir hjálp við að hafa uppi á tíu Íslend­ingum sem tengj­ast Samherja. Fjallað var um hjálp­ar­beiðni namibískra yfir­valda til Interpol í namibískum og íslenskum fjöl­miðlum í byrjun júní.

Enginn verið á flótta undan réttvísinni

„Mik­il­vægt er að fram komi að eng­inn af núver­andi eða fyrr­ver­andi starfs­mönnum Samherja og tengdra félaga hefur verið eft­ir­lýstur af Interpol eða verið á flótta undan rétt­vís­inni, raunar þvert á móti. Hvorki namibísk stjórn­völd né Interpol hafa óskað eftir því að ná tali af umræddum starfs­mönnum. Virðist Interpol því ekki hafa á neinn hátt brugð­ist við áður­nefndu bréfi,“ segir í yfir­lýs­ingu Samherja um þetta efni.

Þar segir enn fremur að eng­inn núver­andi eða fyrr­ver­andi starfs­manna félaga í sam­stæðu Samherja hafi rétt­ar­stöðu sak­born­ings í tengslum við rann­sókn í Namibíu og full­yrt er að eng­inn þeirra hafi við­haft hátt­semi gæti rétt­lætt það. „Ráða­gerðir lög­reglu­manns­ins sem gerðar voru að frétta­efni eru því til­hæfu­lausar,“ segir í yfir­lýs­ingu Samherja.

Ríkissaksóknari Namibíu sagður með Samherja í sigtinu

Namibískir fjöl­miðlar hafa und­an­farna daga flutt fréttir af fram­gangi Sam­herj­a­máls­ins þar í landi.

Blöðin Namibian Sun og The Namibian hafa bæði sagt frá því að Martha Imalwa, rík­is­sak­sókn­ari Namibíu, hafi greint frá því í eið­svar­inni yfir­lýs­ingu til rétt­ar­ins í Windhoek að til standi að leggja fram ákærur á hendur félögum tengdum Samherja í land­inu og stjórn­endum þeirra.

Yfir­lýs­ingin var send til dóm­stóls­ins nýlega vegna beiðni um kyrr­setn­ingu eigna hjá fjöl­mörgum aðilum í Namibíu, þar af sex félögum tengdum Samherja, sem sett var fram vegna rann­sóknar á vafasömum milli­ríkja­samn­ingi á milli Namibíu og Angóla, sem gerði félögum tengdum Samherja mögu­legt að kom­ast yfir hrossa­makríl­kvóta.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Samherjamálið

FréttirSamherjamálið

Hlut­hafar Samherja taka út millj­arð í arð eftir upp­skipt­ingu félags­ins

Veru­legar breyt­ingar voru gerðar á upp­bygg­ingu útgerð­ar­ris­ans Samherja í fyrra þegar fjár­fest­ing­ar­starf­semin var aðskilin frá útgerð­ar­rekstri með stofnun eign­ar­halds­fé­lags­ins Látra­fjalla ehf. Líklegt er að eig­endur Samherja ætli sér einnig að færa útgerð­ar­fé­lagið inn í eign­ar­halds­fé­lagið Látra­fjöll en skatta­legar ástæður geta legið þar að baki.
FréttirSamherjamálið

Almenn­ings­hluta­fé­lag í stórri eigu Samherja kaupir í sölu­fyr­ir­tæki Samherja

Þor­steinn Már Bald­vins­son, for­stjóri Samherja og stjórn­ar­for­maður Síld­ar­vinnsl­unnar, vék sæti þegar almenn­ings­hluta­fé­lagið ákvað að kaupa hluta­bréf í sölu­fyr­ir­tæki Samherja af útgerð­inni. Síld­ar­vinnslan ákvað einnig að kaupa hluta­bréf af fyr­ir­tæki í eigu Þor­steins Más og Krist­jáns Vil­helms­sonar fyrir rúm­lega 2 millj­arða króna.

Mest lesið

1
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár