Namibísk yfirvöld hafa óskað liðsinnis Interpol vegna Samherjamálsins

Sex menn sem hafa verið í haldi namibískra yfir­valda vegna rann­sóknar á Sam­herj­a­skjöl­unum verða áfram í haldi til 28. ágúst. Rannsókn máls­ins hefur reynst flókin og haf namibísk yfir­völd beðið Interpol um aðstoð.

Sex sakborningar í málinu, þeirra á meðal Bernhard Esau og Sacky Shanghala fyrrverandi ráðherrar í ríkisstjórn Namibíu, verða í gæsluvarðhaldi til 28. ágúst.
Sex sak­born­ingar í mál­inu, þeirra á meðal Bernhard Esau og Sacky Shang­hala fyrr­ver­andi ráð­herrar í rík­is­stjórn Namibíu, verða í gæslu­varð­haldi til 28. ágúst. Mynd: Skjáskot

Namibísk yfir­völd hafa leitað á náðir alþjóða­lög­regl­unnar Interpol til þess að hjálpa sér við rann­sókn sína í tengslum við Sam­herj­a­skjölin. Frá þessu er greint á vef namibíska mið­ils­ins Infor­m­anté í dag, en RÚV sagði frá fyrst hér­lendra miðla.

Rannsókn namibískra yfir­valda teygir sig til níu landa, meðal ann­ars Íslands, og er ekki lokið. Í dag voru sex sak­born­ingar í mál­inu, þeirra á meðal ráð­herr­arnir fyrr­ver­andi Bernhard Esau og Sacky Shang­hala, úrskurð­aðir í áfram­hald­andi gæslu­varð­hald til 28. ágúst á meðan yfir­völd rann­saka mál þeirra.

Menn­irnir sex fóru fram á það, frammi fyrir dóm­stóli í höf­uð­borg­inni Windhoek, að þeim yrði sleppt úr haldi. Helstu rök þeirra fyrir því voru þau, sam­kvæmt frá­sögn Infor­m­anté, að yfir­völd í Namibíu vissu ekki hvenær rann­sókn á málum þeirra yrði lokið. Ósann­gjarnt væri að halda þeim í varð­haldi á meðan.

Sak­sókn­ari í mál­inu sagði að rann­sóknin hefði reynst afar flókin til þess og málið væri reyndar svo flókið að rann­sókn þess myndi leggja miklar fjár­hags­legar byrðar á namibísk yfir­völd. Efna­hags­legar afleið­ingar kór­ónu­veiru­far­ald­urs­ins bæta heldur ekki úr skák, að sögn sak­sókn­ar­ans, og ferða­tak­mark­anir vegna far­ald­urs­ins flækt rann­sókn­ina enn frekar.

Hér­aðs­sak­sókn­ari hefur verið með við­skipta­hætti Sam­herj­a­sam­stæð­unnar í Namibíu til rann­sóknar frá því að Kveikur, Stundin, WIkileaks og Al Jazeera fjöll­uðu um meintar mútu­greiðslur, pen­inga­þvætti og skatta­snið­göngu fyr­ir­tæk­is­ins í nóv­em­ber­mán­uði.

Í umfjöll­un­inni steig fram upp­­­ljóstr­­ar­inn Jóhannes Stef­áns­­son, fyrr­ver­andi starfs­­maður Sam­herja í Namib­­íu, sem sagði að öll ætluð mút­u­brot Sam­herja í land­inu hefði verið fram­­kvæmd með vit­und og vilja for­­stjór­a fyr­ir­tæk­is­ins, Þor­steins Más Bald­vins­sonar, sem sneri aftur í for­stjóra­stól­inn við hlið Björg­ólfs Jóhanns­sonar í lok mars­mán­aðar.

Engin nið­­ur­­staða liggur fyrir í rann­­sókn á mál­inu hér­­­lendis enn sem komið er, en hún hefur verið í gangi und­an­farna mán­uð­i, sam­kvæmt upp­lýs­ingum Kjarnans.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Samherjaskjölin

AfhjúpunSamherjaskjölin

Lög­reglan á nýrri slóð: Fundu skila­boð Þor­steins

Tækni­mönnum á vegum hér­aðs­sak­sókn­ara tókst á dög­unum að end­ur­heimta á annað þús­und smá­skila­boð sem fóru á milli Þor­steins Más Bald­vins­sonar og Jóhann­esar Stef­áns­sonar, á meðan sá síð­ar­nefndi var við störf í Namibíu. Skila­boðin draga upp allt aðra mynd en for­stjór­inn og aðrir tals­menn fyr­ir­tæk­is­ins hafa reynt að mála síð­ustu fimm ár.

16 mín. lestur

RannsóknirSamherjaskjölin

Lögmaður namibískra sjó­manna við Samherja: „Borgið það sem þið skuldið þeim“

Lögmaður skip­verj­anna tutt­ugu og þriggja sem dæmdar voru bætur vegna ólög­legrar upp­sagnar Sam­herj­a­fé­lags í Namibíu, kallar eftir því að Íslend­ingar axli ábyrgð á fram­komu sinni í Namibíu. Það stand­ist enga skoðun að Samherji hafi ekki vitað af mál­inu. For­stjóri Samherja lof­aði því að fyr­ir­tækið myndi sjá til þess að staðið yrði við allar skuld­bind­ingar og sér­stak­lega hugað að sjó­mönnum sem starfað hefðu fyrir félagið.

Mest lesið

1
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár