Þjóð föst í viðjum vanans

Fram­kvæmda­stjóra Samtaka atvinnu­lífs­ins finnst ekki ganga nógu hratt að færa ýmsar stórar skipu­lags­heildir í sam­fé­lag­inu til nútíma­horfs. Íslend­ingum hafi heilt yfir mis­tek­ist að ná fram hag­kvæmni í því sem verið er að gera.

Halldór Benjamín Þorbergsson, framkvæmdastjóri SA.
Halldór Benjamín Þor­bergs­son, fram­kvæmda­stjóri SA. Mynd: Arnar Þór

„Við erum föst í viðjum van­ans og erum of hrædd við að gera drastískar breyt­ingar, sama hvort við horfum inn í heil­brigð­is­kerfið, mennta­kerfið eða stjórn­kerfið,“ sagði Halldór Benjamín Þor­bergs­son í sam­tali við Kjarnann nýlega og bætti við að hann teldi skipu­lagið á vinnu­mark­aði ekki ákjós­an­legt heldur, það væri kostn­að­ar­samt og byggi til sóun í kerf­inu.

Hann sagði að heilt yfir hefði Íslend­ingum sem þjóð mis­tek­ist að ná fram hag­kvæmni í því sem verið væri að gera og að það væri að reyn­ast okkur þungt að breyta stórum skipu­lags­heildum í sam­fé­lag­inu og færa þær til nútíma­horfs.

„Allt er breytt í heim­inum á und­an­förnum 20 árum, en þessar skipu­lags­heildir, þessar stoðir sam­fé­lags­ins, þær eru mjög treg­breyt­an­legar og ég hygg að þetta sé ein af þeim áskor­unum sem við stöndum frammi fyrir á næstu árum og ára­tugum,“ sagði Halldór Benjamín.

Hann bætti við að oft væru það per­sónu­legir hags­munir þeirra sem væru við stjórn­völ­inn hverju sinni sem ráði för og nefndi til dæmis tregðu við sam­ein­ingu sveit­ar­fé­laga sem dæmi um þetta.

„Þrír sveit­ar­stjórar sem hitt­ast að ræða sam­ein­ingu, sjá að þetta er bara stóla­leikur þar sem einn situr eftir. Hver ætlar að fá stól­inn? En við eigum að vera stærri en svo og við eigum að gera meiri kröfur til sjálfra okkar en svo að þetta sé ákvörð­un­ar­þátt­ur­inn sem hefur úrslita­á­hrif. Í frum­kvæði er falið mikið vald,“ sagði Halldór Benjamín.

Nýsköpun verði drifkrafturinn næstu ár

Í við­tal­inu sagði hann ljóst að nýsköpun hvers­konar yrði drif­kraft­ur­inn í atvinnu­líf­inu á næstu árum, út úr COVID-krepp­unni, en bætti við að ekki væri hægt að taka stjórn­valds­á­kvarð­anir um að nýsköp­un­ar­verk­efni yrðu til og sköp­uðu störf á undra­skjótan máta.

Hann hvatti stjórn­völd til að ganga lengra með þá nýsköpun í opin­berri þjón­ustu sem hefur verið í gangi hjá Stafrænu Íslandi, verk­efna­stofu innan fjár­mála­ráðu­neyt­is­ins, á umliðnum miss­erum.

„Ég hef látið þau skila­boð ganga til stjórn­mála­manna, sama hvar í flokk þau eru, tífaldið fram­lög í þetta, eða tutt­ugu­faldið þau. Þarna er því­lík skil­virkni­aukn­ing og sparn­aður fyrir opin­bera kerfið,“ sagði Halldór Benjamín.

Viðtalið við Halldór Benjamín, sem birt­ist á Kjarn­anum síð­asta laug­ar­dag, má lesa í heild sinni hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár