Neitar að horfa á vinnumarkaðinn sem stríðsvöll

Kjarninn hitti bæði full­trúa atvinnu­lífs og launa­fólks og fékk sýn þeirra á stöðu mála, í upp­hafi hausts. Sá þriðji sem rætt er við er Halldór Benjamín Þor­bergs­son, fram­kvæmda­stjóri Samtaka atvinnu­lífs­ins.

Ég neita að líta svo á að kjara­við­ræður eða umbætur á vinnu­mark­aði séu ein­hvers­konar stríð á milli atvinnu­rek­enda og verka­lýðs­hreyf­ingar. Við getum farið nokkur ár eða nokkra ára­tugi aftur í tím­ann og séð að hinir raun­veru­legu galdrar í sam­spili atvinnu­rek­enda og verka­lýðs­hreyf­ingar eiga sér stað þegar við náum fram sam­eig­in­legu mark­miði. Ég vil sam­ein­ast verka­lýðs­hreyf­ing­unni um það mark­mið að eyða atvinnu­leysi. Að skapa ný störf og skil­yrði til áfram­hald­andi vaxtar.“

Þetta segir Halldór Benjamín Þor­bergs­son, fram­kvæmda­stjóri Samtaka atvinnu­lífs­ins, í sam­tali við Kjarnann. Fyrir dyrum hjá honum stendur núna á haust­mán­uðum að ráð­ast í mat á for­sendum lífs­kjara­samn­ing­ins á almennum vinnu­mark­aði, sem und­ir­rit­aður var í apríl árið 2018.

„Grunn­spurn­ingin sem við vorum að spyrja okkur var: „Hvað er til skipt­anna og hvernig eigum við að skipta því? Nið­ur­staðan úr þeim kjara­samn­ingum varð eins og þú veist að fara í krónu­tölu­hækk­anir. Krónu­tölu­hækk­anir gagn­ast hlut­falls­lega best þeim sem lægst hafa launin, enda hef ég sagt við við­mæl­endur mína og við­hlæj­endur hér inn­an­húss að í lok efna­hags­upp­sveiflu eins og varð fyrir einu og hálfu ári myndi aldrei nást nein sam­fé­lags­leg sátt um annað en að hækka, hlut­falls­lega, lægstu launin mest og það er það sem við gerðum. Ég get alveg sagt að ég held að bæði verka­lýðs­hreyf­ingin og atvinnu­rek­endur hafi getað vel við unað við lífs­kjara­samn­ing­inn þegar hann var und­ir­rit­aður, en það er allt breytt. For­sendur allra í sam­fé­lag­inu eru brostnar,“ segir Halldór Benjamín.

Og nú stendur fyrir dyrum að rýna í for­send­urna samn­ing­anna og meta hvort þær hafi haldið. „Ég hef stundum vitnað í Jón Gnarr, þegar hann sagði að þetta væri eins og les­hringur þar sem við værum bara að ræða staf­setn­ing­una í bók­inni, en ræðum aldrei efni bók­ar­innar. Og hvað á ég á við með því? Jú, for­sendur allra eru aug­ljós­lega brostnar. Ekki bara á Íslandi, heldur á Norð­ur­löndum, í Evrópu, í Asíu, í Banda­ríkj­unum. For­sendur allrar áætl­ana­gerðar eru brostnar um allan heim — og þá þurfum við að setj­ast niður og velta fyrir okkur hvort for­sendur séu brostnar.“

Ein af helstu for­sendum samn­ings­ins voru að vextir myndu lækka. Það hefur sann­ar­lega gerst og Halldór Benjamín segir að það telji hann eina mestu kjara­bót sem hægt sé að ná fram fyrir íslensk heim­ili.

„Kjara­samn­ingar sem stuðla að lækkun vaxta eða koma í veg fyrir hækkun vaxta, eru sam­kvæmt mínum bókum skil­virkasta leiðin til þess að bæta hag íslenskra heim­ila. Núna sjáum við að íslensk heim­ili hafa verið að end­ur­fjár­magna fast­eigna­lán sín og það skiptir ekki máli hvort að fólk á sitt hús­næði eða er á leigu­mark­aði, lækk­andi vextir skila sér ann­ars­vegar í lækk­andi leigu­verði eða lækk­andi afborg­unum og vöxtum fyrir heim­ilin í land­inu. Og fyrir flesta er lækk­unin á afborg­unum og greiðslu fast­eigna­lána, marg­feldi af þeim launa­hækk­unum sem samið er um í kjara­samn­ingum. Það sem ég var ánægður með við lífs­kjara­samn­ing­inn var að það náð­ist eins konar svona sam­sett lausn, þar sem aðilar urðu ásáttir um það að launa­hækk­anir væru mik­il­vægar, en þær væru ekki eini þátt­ur­inn sem ætti að taka til­lit til í kjara­samn­ingum. Þessi sam­setta lausn byggði meðal ann­ars á því að skapa skil­yrði fyrir vaxta­lækkun í land­inu, sem sann­ar­lega hefur gengið og það er ein af þeim for­sendum sem sann­ar­lega er upp­fyllt.“

Einnig verður litið til þess við end­ur­mat samn­ing­anna hvort kaup­máttur hafi auk­ist á tíma­bil­inu. „Jú, það er rétt á þessum tíma­punkti að þegar við lítum í bak­sýn­is­speg­il­inn þá hefur kaup­máttur sann­ar­lega auk­ist. En ég segi við þig með 100 pró­sent vissu að kaup­máttur mun verða á fallandi fæti á næstu miss­erum og ástæð­urnar fyrir því eru ósköp ein­faldar. Eft­ir­spurnin hefur gufað upp úr hag­kerf­inu og á sama tíma hefur gengi krón­unnar gefið eftir með ein­hver­konar nálg­unum um 15 pró­sent og sá und­ir­liggj­andi verð­bólgu­þrýst­ingur sem veik­ing krón­unnar mun mynda mun naga kaup­mátt­inn í burtu eða draga úr honum á næstu miss­erum,“ segir Halldór Benjamín.

Þriðja for­sendan er svo þáttur stjórn­valda – hvort stjórn­völd hafi efnt þau atriði sem fylgdu yfir­lýs­ingu í aðdrag­anda lífs­kjara­samn­ings­ins. SA leggja mat sitt á það og Alþýðu­sam­band Íslands sömu­leiðis. „Síðast varð nið­ur­staðan sú að SA mátu sem svo að for­sendur hefðu ekki brostið, en Alþýðu­sam­bandið mat sem svo að for­sendur væru brostnar og köll­uðu eftir við­brögðum frá SA til að bregð­ast við því. Svona er ferlið, þetta er verk­efni sem við þurfum að glíma við núna á haust­mán­uðum og höfum nokkrar vikur til að ganga frá.“

Hærra atvinnustig verði að verða forgangsatriði

Það eru við­sjár­verðir tímar í íslensku efna­hags­lífi og mikil óvissa nán­ast hvert sem litið er. Halldór Benjamín segir að með nokk­urri ein­földun megi áætla að allt að fimmti hver ein­stak­lingur verði atvinnu­laus eða hluta­at­vinnu­laus, sé horft til svo­kall­aðs „skugga­at­vinnu­leysis“ eins og það er fram­sett í nýj­ustu útgáfu Pen­inga­mála Seðla­banka Íslands.

„Við tveir getum reynt hérna að rýna í krist­alskúlu og spurt okkur: „Mun atvinnu­á­standið á Íslandi batna í sept­em­ber, októ­ber og nóv­em­ber?“ Ég skal bara gefa þér mitt afdrátt­ar­lausa svar, að atvinnu­leysið mun halda áfram að aukast alla þessa mán­uði. Allir ábyrgir aðilar, hvort sem það eru stjórn­völd, Samtök atvinnu­lífs­ins eða verka­lýðs­hreyf­ingin, hljóta að líta til þess­arar stöðu og þetta atvinnu­leysi hlýtur að marka við­brögð okkar til fram­tíðar. Grunn­á­byrgð verka­lýðs­hreyf­ing­ar­innar og atvinnu­lífs­ins í sam­ein­ingu hlýtur að vera sú að fólk sem vill vinna geti unnið. Við hljótum að reyna að finna leiðir til þess að draga úr þessu atvinnu­leysi, auka atvinnustig á nýjan leik og setja það í for­gang alls sem við gerum á næstu mán­uðum og miss­erum,“ segir Halldór Benjamín.

Öðruvísi kreppa en aðrar sem hafa gengið yfir

Blaða­maður spyr hver þessi við­brögð ættu að verða, að mati Halldórs, og hvar hann sjái mögu­lega til vaxtar og nýrra starfa, sem gætu til dæmis komið í stað hluta þeirra starfa sem hafa tap­ast eða fyr­ir­séð er að munu tap­ast í ferða­þjón­ustu­geir­anum.

„Áður en ég svara þess­ari spurn­ingu held ég að við verðum að velta aðeins fyrir okkur eðli efna­hags­sam­dráttar og kreppa á Ísland og hvernig höfum við kom­ist út úr þeim hingað til. Við getum litið ríf­lega 10 ár aftur í tím­ann til fjár­málakrepp­unnar eða lengra aftur, því ég hef stundum sagt að hag­saga Íslands sé blóði drifin, það skipt­ast á skin og skúrir, en hvernig við höfum unnið okkur út úr kreppum for­tíðar hefur eig­in­lega und­an­tekn­inga­laust verið með sama hætti. Krónan hefur gefið eftir og sam­keppn­is­hæfni útflutn­ings­at­vinnu­veg­anna, sem hefur rýrst í gegnum of miklar launa­hækk­anir, hefur leið­rétt sig af í gegnum veik­ingu krón­unnar. Samhliða veik­ingu krón­unnar hefur sam­keppn­is­hæfni úflutn­ings­at­vinnu­veg­anna styrkst og þessir þrír stærstu, sjáv­ar­út­vegur, ferða­þjón­usta og stór­iðja, hafa hjálpað okkur út úr krepp­unum.“

Mynd: Arnar Þór Ingólfsson
Mynd: Arnar Þór Ing­ólfs­son

Halldór Benjamín segir að honum finn­ist ekki nægi­lega margir hafa áttað sig á því geng­is­leið­rétt­ing og eft­ir­spurn­ar­aukn­ing muni ekki geta orðið bjarg­ræðið með sama hætti og áður út úr þess­ari kreppu.

„Ef við byrjum á sjáv­ar­út­vegi, þá hefur gengið ágæt­lega í sjáv­ar­út­vegi á und­an­förnum árum en hins vegar er það svo að mark­að­irnir með hæstu verðin eru brot­hættir. Annars vegar veit­inga­húsa­mark­að­irnir, sem helg­ast af því að veit­inga­hús víða um heim eru ein­fald­lega lokuð, sama á við um stór­mark­að­ina fyrir ferskan fisk, þeir eru til staðar en verðin eru því miður ekki á þeim stað sem við vildum sjá. Við­snún­ing­ur­inn þar verður ekki með sama hætti og við höfum séð í for­tíð­inni.

Hvað varðar ferða­þjón­ust­una og undra­verðan vöxt hennar á árunum eftir hrun, þar sem gengi krón­unnar vissu­lega hjálp­aði til, þá getum við ekki litið til hennar með sama hætti. Það mun taka tíma fyrir ferða­þjón­ustu í heim­inum að ná fyrri styrk og ég held að allar spár og mat sann­gjarnra aðila geri ráð fyrir því að þetta verði ekki ein­hver svona tví­und­ar­kerf­is­á­kvörðun, þar sem þrýst verður aftur á „on“-takk­ann, heldur að það muni taka tíma að ná fyrri styrk. Ferða­þjón­ustan mun ekki vaxa jafn hratt og hún hefur gert í for­tíð.

Síðan erum við með stór­iðj­una, sem sann­an­lega hefur átt erfitt upp­dráttar og við sjáum það bara út frá heims­mark­aðs­verðum á þeim afurðum sem fram­leiddar eru hér. Hún mun heldur ekki verða bjarg­ræðið út úr krepp­unni,“ segir Halldór Benjamín, sem telur COVID-krepp­una af þessum sökum alvar­legri en margar sem áður hafa sést.

„Fórn­ar­lömbin eru ekki þau sömu, birt­ing­ar­mynd þess­arar kreppu er allt önnur en birt­ing­ar­mynd síð­ustu kreppu. Þá var það efna­hags­reikn­ingur fyr­ir­tækja og heim­ila sem fór algjör­lega á hlið­ina, vegna mjög mik­illar verð­bólgu, hárra stýri­vaxta og hruns krón­unnar, þar sem margir voru með geng­is­tryggð lán. En núna er þetta með allt öðrum hætti, þarna voru það nafn­stærðir sem voru að hreyfast, núna eru það raun­stærðir. Atvinnu­leysið er mæli­kvarð­inn á þessa kreppu,“ segir Halldór Benjamín.

Eitthvað misræmi til staðar sem ekki gangi upp

Í þessu ástandi sem ríkir hafa verið háværar kröfur uppi frá verka­lýðs­hreyf­ing­unni um hækkun grunnatvinnu­leys­is­bóta, en Samtök atvinnu­lífs­ins hafa lagst gegn þeim. Stjórn­völd hafa ákveðið að tekju­teng­ing­ar­tíma­bil bóta verði lengt úr þremur mán­uðum í sex en ekki boðað að bætur verði hækk­aðar. Drífa Snædal for­seti ASÍ hefur nýlega sakað SA um mann­fjand­sam­lega afstöðu.

„Mér finnst svona munn­söfn­uður ekki sæm­andi for­seta ASÍ,“ segir Halldór Benjamín.

„Ég, eins og svo margir, fór hring­inn um Ísland í sumar með börnin, við fjöl­skyldan. Og það er alveg sama hvar við drápum niður fæti, atvinnu­rek­endur hring­inn í kringum landið hafa allir sömu sögu að segja, það er erfitt, þrátt fyrir atvinnu­á­standið, að fá fólk til vinnu. Meira að segja í ferða­þjón­ustu hefur ekki tek­ist að full­manna í störf í sumar þrátt fyrir atvinnu­leysi. Við sáum núna nýlega órækan vitn­is­burð frá leik­skól­unum í Reykja­vík að þrátt fyrir und­ir­liggj­andi kjara­samn­inga sem voru umfram lífs­kjara­samn­ing­inn hefur ekki ennþá tek­ist að manna stöður. Staðan núna er verri en fyrir tveimur árum, þegar það ríkti full atvinna á Íslandi. Hér er eitt­hvað mis­ræmi sem aug­ljós­lega gengur ekki upp, en það er fleira sem kemur til“ segir Halldór Benjamín.

Hann seg­ist um nokk­urt skeið hafa ótt­ast að nátt­úru­leg atvinnu­leys­is­stig á Íslandi, atvinnu­leysi við fulla atvinnu, væri að fara hækk­andi á Íslandi. „Ef við greinum hvar atvinnu­leysið liggur, þá sjáum við til dæmis að atvinnu­leysi á meðal ungs fólks er að aukast mjög mikið og þetta er eitt­hvað sem við höfum ekki séð í for­tíð. Þetta er breyt­ing sem hefur orðið núna á und­an­förnum árum meðal ann­ars vegna breyt­inga á kjara­samn­ingum,“ segir Halldór Benjamín, sem telur tæki­færi liggja í því að gera breyt­ingar á kjara­samn­ingum með það að mark­miði að minnka atvinnu­leysi.

Sem dæmi um þetta nefnir hann „yfir­vinnu­kúlt­úr­inn“ á Íslandi og að Samtök atvinnu­lífs­ins hafi viljað reyna að draga úr vægi yfir­vinnu í heild­ar­launa­greiðslum á Íslandi í síð­ustu kjara­samn­ingum.

„Við buðum verka­lýðs­hreyf­ing­unni í síð­ustu kjara­lotu að hækka laun fyrir dag­vinnu þeim mun meira, gegn því að eyða út yfir­vinn­unni, því það er búið að gera þetta á Norð­ur­lönd­unum. Af heild­ar­launa­greiðslum á Íslandi eru yfir­vinnu­greiðslur á bil­inu fimmt­ungur til fjórð­ungur. Á Norð­ur­lönd­unum er hlut­fallið 1-3 pró­sent. Yfir­vinna, í þeim mæli sem unnin er hér á landi þekk­ist ekki á Norð­ur­löndum. Það er miklu skil­virkara að beina þessum launa­greiðslum inn í dag­vinnu og láta fólk vinna vinn­una á dag­vinnu­tíma,“ segir Halldór Benjamín.

Nýsköpun verði drifkrafturinn

Halldór segir ann­ars ljóst að nýsköpun hvers­konar verði drif­kraft­ur­inn í atvinnu­líf­inu á næstu árum, en að það verði ekki hægt að taka stjórn­valds­á­kvarð­anir um að ný nýsköp­un­ar­verk­efni spretti upp og skapi störf á undra­skjótan máta. 

„Stóru fram­far­irnar í öllum atvinnu­greinum á Íslandi byggja á nýsköpun, hug­viti og tækni­þekk­ingu og það mun halda áfram á næstu árum. Algeng­asta dæmið sem við þekkjum er í sjáv­ar­út­vegi, þar sem manns­höndin er með færri og færri snertifleti á vinnslu­lín­unum, en við getum líka horft inn í fjár­mála­þjón­ustu. Ég get sagt, fyrir mitt leyti, að ein sú mesta tækni­fram­för sem snertir mig beint á umliðnum árum er að þurfa ekki lengur að ganga með veski, að geta verið með veskið í sím­anum,“ segir Halldór Benjamín.

Hann seg­ist líka hrif­inn af þeirri nýsköpun sem hefur átt sér stað varð­andi þjón­ustu hins opin­bera hjá Stafrænu Íslandi. „Ég hef látið þau skila­boð ganga til stjórn­mála­manna, sama hvar í flokk þau eru, tífaldið fram­lög í þetta, eða tutt­ugu­faldið þau. Þarna er því­lík skil­virkni­aukn­ing og sparn­aður fyrir opin­bera kerfið,“ segir Halldór Benjamín, sem telur að stjórn­völd mættu ganga enn lengra í þessum efnum og til dæmis ráð­ast í að færa þing­lýs­ingu skjala á staf­rænt form.

„Þú getur ímyndað þér þær vinnu­stundir sem munu spar­ast við raf­ræna þing­lýs­ingu skjala. Þetta er bara svona, „just do it“-mál, lát­iði vaða! Þetta er það sem fyr­ir­tækin eru að gera,“ segir Halldór Benjamín, sem telur einnig að umbætur í mennta­kerf­inu séu brýnt verk­efni í þeirri stöðu sem við glímum við núna vegna COVID-krepp­unnar.

Við erum föst í viðjum van­ans og erum of hrædd við að gera drastískar breyt­ingar, sama hvort við horfum inn í heil­brigð­is­kerfið, mennta­kerfið eða stjórn­kerfið.

„Á end­anum þurfum við að styrkja það og gera fjöl­breytta og mín per­sónu­lega skoðun; að styrkja raun­greina­menntun og iðn­menntun í land­inu. Það má færa mjög sterk rök fyrir því, ef við horfum 10 ár aftur í tím­ann, að við höfum ekki verið að mennta ungt fólk í þeim greinum sem eft­ir­spurn ríkir í á vinnu­mark­aði. Ég get alveg fall­ist á það sjón­ar­mið að fólk eigi að læra það sem hugur þeirra stefnir til, en síðan er líka til fólk sem er öðru­vísi inn­réttað og hugsar: „Ég vil mennta mig eitt­hvað sem mér finnst áhuga­vert, en atvinnu­tæki­færi fram­tíð­ar­innar skipta mig líka heil­miklu máli.“ Við þurfum líka að tala með þeim hætti gagn­vart því fólki sem er þannig inn­réttað, en við höfum ekki verið að gera það sem sam­fé­lag,“ segir Halldór Benjamín, en varð­andi mennta­kerfið, eins og fleiri þætti sam­fé­lags­ins telur hann að okkur sem þjóð hafi mis­tek­ist að ná fram hag­kvæmni í því sem við erum að gera.

„Við erum föst í viðjum van­ans og erum of hrædd við að gera drastískar breyt­ingar, sama hvort við horfum inn í heil­brigð­is­kerfið, mennta­kerfið eða stjórn­kerfið. Ég vil meina að skipu­lag á vinnu­mark­aði sé ekki ákjós­an­legt heldur og það sé kostn­að­ar­samt og búi til sóun í kerf­inu,“ segir Halldór Benjamín og bendir í því sam­hengi á að núna, þegar eitt og hálft ár sé liðið frá því að lífs­kjara­samn­ing­ur­inn var und­ir­rit­aður, sé enn ekki búið að ljúka kjara­lot­unni. Mögu­leiki sé þannig á að samn­ingnum verði sagt upp án þess að búið sé að semja við öll félög á hans grunni.

„Það hljóta allir að geta verið sam­mála um það að þetta er ekki ákjós­an­legt staða. Þess vegna hef ég sagt og hef talað fyrir því lengi að það eigi að vera sam­eig­in­legt verk­efni stjórn­valda, Samtaka atvinnu­lífs­ins og verka­lýðs­hreyf­ing­ar­innar að færa vinnu­lög­gjöf­ina, sem að stofni til er frá 1938, inn í nútíma­horf. Ef við veltum fyrir okkur hvernig sam­fé­lagið var árið 1938, þá hefur því fleytt fram á öllum sviðum. Sama hvort litið er til rekst­urs fyr­ir­tækja, mennta­kerf­is­ins, stjórn opin­berra fjár­mála eða sam­skipta á vinnu­mark­aði. Ekkert þessa er með þeim hætti sem það var árið 1938 en engu að síður er lög­gjöfin frá þeim tíma. Vissu­lega var henni breytt 1995, en við höfum stigið allt of lítil skref og bara sem dæmi, ef við horfum á hlut­verk rík­is­sátta­semj­ara á Íslandi miðað við hlut­verk rík­is­sátta­semj­ara á Norð­ur­löndum, þá er vald­heim­ildir og vald­svið rík­is­sátta­semj­ara á Íslandi nán­ast ekki neitt. Með fullri virð­ingu fyrir því emb­ætti, sem er bara fórn­ar­lamb þess­arar lög­gjafar, þá hefur rík­is­sátta­semj­ari afar tak­mörkuð tól til að grípa inn í kjara­deilur og það er hluti af því sem sam­talið á milli SA og ASÍ og ann­arra verka­lýðs­fé­laga sner­ist m.a. um í SALEK-til­raun­inni, sem við sem sam­fé­lag hljótum að gera kröfu til okkar sjálfra um að við náum þroska áfram á næstu árum.

Ég hef talað fyrir því að til dæmis ættum við í sam­ein­ingu, stjórn­völd, verka­lýðs­hreyf­ing og atvinnu­lífið, að setja okkur lang­tíma­mark­mið og lang­tíma­mark­mið er orð sem heyr­ist ekk­ert oft í íslensku sam­hengi. Lang­tíma­mark­mið sem væri þess efnis að ein­falda þennan raun­veru­leika við kjara­samn­ings­gerð, til dæmis með því að það þyrfti að vera ákveð­inn fjöldi ein­stak­linga sem stæði á bak við hvern kjara­samn­ing,“ segir Halldór Benjamín.

Skipulagsheildirnar tregbreytanlegar

Hann seg­ist ekki vera að tala um að umbylta kerf­inu á einni nóttu, en að ljóst sé að ekki sé neinum í hag að Samtök atvinnu­lífs­ins séu að gera kjara­samn­inga sem ná jafn­vel ein­ungis til launa­manna sem telj­andi eru á fingri ann­arrar handar, eins og raunin sé.

Hann segir að hið sama eigi við um fjölda sveit­ar­fé­laga og margt annað í sam­fé­lag­inu. Það sé tregða til þess að breyta núver­andi ástandi. „Allt er breytt í heim­inum á und­an­förnum 20 árum, en þessar skipu­lags­heildir, þessar stoðir sam­fé­lags­ins, þær eru mjög treg­breyt­an­legar og ég hygg að þetta sé ein af þeim áskor­unum sem við stöndum frammi fyrir á næstu árum og ára­tugum.“

Oft sé tregðan vegna per­sónu­legra hags­muna þeirra sem stýra hverju sinni. „Þrír sveit­ar­stjórar sem hitt­ast að ræða sam­ein­ingu, sjá að þetta er bara stóla­leikur þar sem einn situr eftir. Hver ætlar að fá stól­inn? En við eigum að vera stærri en svo og við eigum að gera meiri kröfur til sjálfra okkar en svo að þetta sé ákvörð­un­ar­þátt­ur­inn sem hefur úrslita­á­hrif. Í frum­kvæði er falið mikið vald.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið undanfarið ár