„Þarna er fullt af konum að tengjast“

Á Akureyri er hópur ungra kvenna sem hittist reglulega og les saman í hljóði. Þær hafa myndað vina­sambönd á fullorðins­árum í gegnum sameig­in­legan áhuga á bókum. Sandra Rebekka Önnu­dóttir Arnars­dóttir er annar stofnandi bóka­klúbbsins Les píurnar.

Litli bókaklúbburinn
Litli bóka­klúbb­ur­inn Hittist og les saman. Klúbb­ur­inn varð til eftir félaga­lestur á nýj­ustu bók­inni í Fourth Wing ser­í­unni. Mynd: Aðsend

Í gegnum bækur, þá sérstak­lega rómantískar fantasíur, hefur hópur kvenna á Akureyri myndað vina­sambönd á fullorðins­árum. Sandra Rebekka Önnu­dóttir Arnars­dóttir stofnaði bókaklúbb ásamt vinkonu sinni og heldur mánaðar­lega viðburði þar sem ungar konur koma saman og lesa sér til skemmtunar. 

Sandra RebekkaEign­að­ist vin­konu­hóp út frá bókatok en þar deilir fólk skoð­unum sínum á nýlesnum bókum.

Deila sínum upplifunum

Árið 2021 ákváðu Sandra og vinkona hennar að stofna bókaklúbb á Facebook. Fyrst um sinn voru þær bara tvær í klúbbnum og notuðu hann til að deila efni með hvor annarri. Hópurinn fékk nafnið Les píurnar. Nú fjórum árum síðar eru 26 meðlimir í hópnum sem hittist mánaðar­lega og les saman. 

„Okkur vantaði vettvang til að deila bóka­tengdu efni,“ rifjar Sandra upp og segir hópinn í raun hafa stækkað eins og snjóbolta. Þær auglýstu …

Kjósa
7
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár