Er hægt að treysta Rússum?

Frammi fyrir þeirri spurn­ingu stóðu Úkra­ínu­menn árið 1994 þegar bæði Banda­ríkja­menn og Rússar lögð­ust á eitt um að fá þá til að afhenda kjarn­orku­vopn sín.

Ein af kjarnorkueldflaugum Úkraínumanna búin til flutnings til Rússlands 1997.
Ein af kjarn­orku­eld­flaugum Úkra­ínu­manna búin til flutn­ings til Rúss­lands 1997.

Eitt af því sem veldur hvað mestum vanda varð­andi hugs­an­lega frið­ar­samn­inga í Úkraínu er sú ómót­mæl­an­lega stað­reynd að Úkra­ínu­menn treysta ekki Rússum. Þeir segja sem svo: Jú, kannski væri hægt að semja um stríðs­lok við Rússa gegn ein­hverri (lág­marks) eft­ir­gjöf land­svæða og reyna svo að hefj­ast handa um end­ur­bygg­ingu lands­ins en sama hvað stæði í þeim samn­ingum, þá gætu Rússar farið af stað aftur eftir eitt ár eða tvö, fimm ár eða tíu.

Og Úkra­ínu­menn hefðu vissu­lega ástæðu til ótt­ast það.

Orðspor Rússa hvað snertir orð­heldni og samn­inga er ekki gott.

Og Úkra­ínu­menn vísa þá sér­stak­lega til Búdapest-yfir­lýs­ing­ar­innar svo­nefndu frá 1994.

Skoðum þá yfir­lýs­ingu.

Sov­ét­ríkin hrundu eins og allir muna glöggt um jólin 1991. Þá höfðu öll 15 Sov­étlýð­veldin sem mynd­uðu ríkið lýst yfir sjálf­stæði og full­veldi, þar á meðal bæði Rússland og Úkraína.

Vita­skuld reynd­ist flókið mál að gera upp dán­arbú Sov­ét­ríkj­anna …

Kjósa
30
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Flækjusagan

Mest lesið

5
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár