Bilið milli Hillary og Trump minnkar

Bilið á milli Hillary Clinton og Donald Trump hefur minnkað töluvert á undan­förnum vikum.

Bilið milli Hillary Clinton, fram­bjóðanda Demókrata, og Donald J. Trump, fram­bjóðanda Repúblikana, hefur minnkað töluvert á skömmum tíma, og sýnir mæling vefsins FiveThirtyEight nú að 48,8 prósent styðji Hillary en 44,8 prósent Donald Trump. Stuðningurinn við framboð Gary Johnson hefur farið vaxandi og mælist 4,6 prósent. Svo gæti farið að framboð hans geti haft verulega mikið að segja um það hvort Hillary eða Trump vinni, en talið er að framboð hans skaði fyrst og fremst Hillary.

Sigur­líkurnar eru þó enn Hillary megin, en vefurinn metur sigur­líkur hennar 71,2 prósent og líkur Donald Trump 28,8 prósent. Ekki eru nema 10 daga síðan líkurnar voru 87 prósent hjá Hillary, en á undan­förnum dögum hefur neikvæð umræða, vegna þeirrar ákvörðun alríkis­lögreglunnar FBI að hefja að nýju rannsókn á tölvu­póstum Hillary Clinton, haft slæm áhrif á framboð hennar.

Í New York Times kom fram í gær, að ákvörðun James B. Comey, framkvæmda­stjóra FBI, um að tilkynna þinginu um að rannsókn hefði verið tekin upp á nýjan leik, hefði sett FBI beint inn í kosninga­baráttuna á versta tíma. Daniel Richmann, prófessor í lögfræði við Columbia háskóla, segir í viðtali við blaðið að FBI sé að grafa undan sjálf­stæði stofnunarinnar með þessari tíma­setningu, og í versta falli muni það nýtast nýjum forseta.

Kosið verður í Banda­ríkjunum 8. nóvember, eða eftir sex daga. Kjarninn hefur haldið úti vikulegu ítalegu hlaðvarpi um kosningarnar, Kana­varpinu, en umsjónar­menn þess eru Hjalti Geir Erlendsson, lögfræðingur, og Hall­grímur Oddsson hagfræðingur. Í nýjasta þættinum er fjallað um rannsókn FBI á tölvu­póstum Hillary og starfs­fólki hennar, og hvernig staða mála er nú.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár