Hvetur ríki til að binda enda á „stríðið gegn náttúrunni“

Alþjóðleg skýrsla segir að stefna stjórn­valda dugi ekki til að vernda 30 prósent lands og hafsvæða fyrir árið 2030. Ríki ræða stöðuna á COP17 í Armeníu í næstu viku.

António Guterres
António Guterres Fram­kvæmda­stjóri Sam­ein­uðu þjóð­anna segir ríki heims ekki gera nóg til að ná mark­miðum um vernd líf­fræði­legrar fjöl­breytni. Mynd: MICHAEL TEWELDE / AFP

António Guterres, framkvæmda­stjóri Sameinuðu þjóðanna, sagði í dag að „stríðinu gegn nátt­úrunni sé ekki enn lokið“ þegar hann kynnti skýrslu sem sýnir að ríki heims standi ekki við skuld­bindingar sínar um líffræði­lega fjöl­breytni.

Ríki heims munu fara yfir árangur og hindranir á leið að mark­miðinu um að stöðva eyðingu nátt­úrunnar fyrir árið 2030 þegar þau koma saman í Armeníu í næstu viku til viðræðna Sameinuðu þjóðanna um líffræði­lega fjöl­breytni.

Fyrir fjórum árum gerðust nærri 200 ríki aðilar að hinu tímamóta­samkomulagi sem kallað hefur verið „Parísar­samkomu­lagið um náttúruna“, en hægt hefur gengið að hrinda markmiðum þess í framkvæmd.

Í samkomu­laginu eru 23 markmið um að stöðva hnignun nátt­úrunnar og snúa henni við fyrir árið 2030. Þar á meðal eru markmið um að draga úr mengun, vernda tegundir í hættu og vernda 30 prósent lands og hafsvæða heimsins.

En mörg þessara markmiða eru ekki á réttri leið, …

Kjósa
7
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár