Í þá tíð... Roswell og FFH-fræðin

Dular­fullt brak fannst í Roswell í Nýju Mexíkó og hefur síðan verið uppspretta kenninga um tilvist fljúgandi furðu­hluta.

Bærinn Roswell er ekki þekktur fyrir nokkuð annað en FFH-málið, en bæjarbúar skammast sín ekkert fyrir það. Í Roswell má nú t.d. finna safn um FFH.
Bærinn Roswell er ekki þekktur fyrir nokkuð annað en FFH-málið, en bæj­ar­búar skamm­ast sín ekk­ert fyrir það. Í Roswell má nú t.d. finna safn um FFH.

Um þessar mundir eru 70 ár síðan maður einn í Nýju Mexíkó, W.W. Brazel að nafni, sem gekk í leit að sauðum sem hann óttaðist um í kjölfar óveðurs nóttina áður, fann málmbrak á víð og dreif um landareign sína, sem og nýtilkominn grunnan skurð sem var tugi metra á lengd. Þessi fundur, sem var stutt frá bænum Roswell, átti svo sannarlega eftir að draga dilk á eftir sér og má segja að hann hafi markað kaflaskil í málefna­flokknum sem má kenna við „fljúgandi furðu­hluti“ (eða FFH, eins og þeir kölluðust í Andrésblöðum á síðustu öld).

Það var sum sé í Júlí 1947 þegar Brazel, eða Mack eins og hann var jafnan kallaður, afhenti sker­faranum í Roswell fundinn og sá kom þeim áfram til yfirmanna hjá flug­hernum sem áttu bækistöðvar þar stutt frá. Þeir gáfu stuttu seinna frá sér litla tilkynningu þar sem fram kom að þeim hefði borist rústir einhvers konar „fljúgandi disks“. Og þar með var viftan úr máltækinu fræga komin í yfirvinnu, því að eftir að staðar­blöðin sögðu frá tíðindunum komust lands­miðlar á sporið og smábærinn Roswell var í einni svipan orðinn miðdepill í nýuppsprottnum áhuga almennings á mögulegum lendingum geimvera hér á jörð.

Nokkrum dögum síðar sendi flug­herinn út aðra tilkynningu þar sem fram kom að þarna hafi ekki verið neinn Fljúgandi diskur heldur aðeins veður­athugunar­loftbelgur sem hafi hrapað til jarðar. Á kynningar­fundi voru dregin fram nokkur af brotunum sem fundust. Skila­boðin voru skýr og undirorpin sönnunum. Ekkert hér að sjá. Haldið áfram.

Áhuginn á Roswell-atvikinu fór fljótt dvínandi og lá í dróma um áraraðir þar til á áttunda áratugnum þegar aftur fóru á flug sögur um það sem fundist hafi þessa örlaga­nótt.

Einn af þeim fyrstu sem hófu nafn Roswell aftur upp til frægðar var kjarneðlisfræðingurinn Stanton Friedman, sem hafði þá um nokkurra ára skeið helgað starf sitt leitinni að sönnunum fyrir tilvist og komu geimvera til jarðar (og er raunar enn „framarlega á því sviði“ ef svo mætti að orði komast).

Í mynd sinni UFO´s are real frá árinu 1979 birti Friedman meðal annars viðtal við Jesse Marcel, majór í flug­hernum. Það var einmitt sá sem sker­farinn í Roswell hafði látið vita af fundinum á sínum tíma og Marcel var einn af þeim fyrstu sem kom á brot­lendingar­staðinn. Marcel sagðist í viðtalinu vera sann­færður um að það sem hann sá þar og flutti til baka á herstöðina, hafi ekki verið neinn veður­belgur, heldur rústir geimfars. Þessa sögu hélt hann sig við, í aðal­atriðum, allt til dauðadags.

Þessi mynd ásamt ýmsum greinum og bókum sem voru skrifaðar á svipuðum tíma, héldu fram svipuðum kenningum, að yfirvöld hafi reynt að villa um fyrir fjöl­miðlum og almenningi um hina raun­verulegu atburði í Roswell. Geimfar hafi brotlent þar, yfirvöld hafi tekið brakið – og jafnvel „jarð“neskar leifar stjörnu­ferðalanga – og geymt á „Svæði 51“, hinu annálaða öryggis­svæði sem er nú eins konar samnefnari fyrir meintar yfir­hylmingar bandarískra stjórn­valda. Þar séu geymdir þeir hlutir sem ekki þoli dagsins ljós.

Kenningar þessar hittu svo sannarlega í mark og skoðana­kannanir frá þeim tíma sýna glögglega að almenningur var almennt á þeirri skoðun að geimverur væru til og hefðu haft viðkomu hér.

Flug­herinn ákvað loks að kveða kjafta­sögurnar í kút í eitt skipti fyrir öll og gaf út tvær skýrslur um málið á tíunda áratugnum. Sú fyrri var 1.000 blaðsíðna doðrantur sem kom út árið 1994, en þar kom fram að hluturinn sem fannst í Roswell var sannarlega tæki sem hékk í veður­loftbelg, en það var ekki hefð­bundið veður­athugunar­tæki, heldur leyni­legur tilrauna­tækja­búnaður sem átti að geta numið merki um kjarnorku­tilraunir Sovét­manna.

Ekki varð hún þó til þess að sefa huga þeirra sem trúðu, og heldur bætti í ári síðar þegar fyrir augu almennings komu myndskeið sem áttu að sýna krufningu á líkömum geim­veranna sem áttu að hafa fundist í Roswell.

Seinni skýrslan kom svo út árið 1997 og átti að slá á grun­semdir fólks í eitt skipti fyrir öll. Yfir­skrift hennar var: Case Closed, eða „Málalok” og þar var tekið fram að ekkert í gögnum varnarmála­ráðuneytis Banda­ríkjanna gæfi til kynna að nokkurs konar lífverur hefðu fundist ítngslum við atburðina í Roswell á sínum tíma. Ekki væri heldur um neins konar yfir­hylmingu að ræða af hálfu yfirvalda.

Merkilegt nok hefur skýrslu­gerð opinberra stofnana ekkert slegið á þá bjarg­föstu trú margra að geimskip hafi brotlent við Roswell árið 1947. Þeir benda á ýmis konar misræmi í skýringum, en hafa þó ekki sannað sitt mál með óyggjandi hætti. Hvort þeim takist það einn daginn er ómögulegt um að spá, en sagði ekki einhver frómur maður einhverntíma að sann­leikurinn leyndist einhversstaðar þarna úti?

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár