Norskt flugfélag gagnrýnt fyrir að bjóða flugstjórum 900 þúsund krónur í grunnlaun

Flug­félagið Flyr, sem hyggst hefja starfsemi í lok mánaðarins, bauð flug­stjórum 900 þúsund krónur í grunnlaun fyrr í vor. Einn flug­stjóri kallaði tilboðið, sem er hærra en það sem flug­stjórum hjá PLAY býðst, niðrandi.

Flug­stjóri sem sótti um vinnu hjá nýja norska lággjalda­flug­félaginu Flyr sakar félagið um að hafa reynt að nýta sér slæma stöðu flug­starfsmanna í heims­faraldrinum og bjóða þeim langtum lægri laun en annars. Flyr reyndi fyrst að bjóða flug­stjórum hærri grunnlaun en eru í boði hjá PLAY, en hafa núna hækkað þau eftir að hafa gert kjara­samning við stéttar­félag flugmanna þar í landi.

Samkvæmt frétt NRK um málið fól upphaf­lega tilboð Flyr til flug­stjóra með mikla reynslu í sér 750 þúsund norskar krónur í grunnlaun á ári. Þetta jafn­gildir 911 þúsund íslenskum krónum á mánuði. Samkvæmt kjara­samningi íslenska flug­félagsins PLAY við ÍFF fá flug­stjórar í sama launa­flokki 900 þúsund krónur á mánuði í grunnlaun. Kjara­samninginn á milli ÍFF og PLAY má nálgast með því að smella hér.

Launin sem Flyr bauð eru 40 prósent lægri en launin sem bjóðast flug­stjórum með sömu reynslu hjá norska lággjalda­flug­félaginu Norwegian, samkvæmt heimildum NRK.

Flug­félagið varði sjálft eigið tilboð og sagði flug­stjóra vel geta lifað eðlilegu lífi á þessum kjörum. Eðlilegt væri að fólk sem hefði unnið sig upp í önnur launaþrep í öðrum félögum fengi lægri laun þegar þeir sæktu um vinnu í nýju félagi. Þess utan segir félagið að flugmenn fái árangurs­tengda bónusa sem myndu bætast við grunn­launin.

Flyr, sem var stofnað af Norð­manninum Erik G. Braathen, fyrrum forstjóra Braathens-flug­félagsins, stefnir á sína fyrstu flugferð þann 30. júní. Flug­félagið mun fljúga til Alicante, Malaga og Nice, auk fimm annarra áfanga­staða í Noregi.

Thomas Ramdahl, markaðs­stjóri Flyr, sagði heims­faraldurinn hafa gert flug­félaginu kleift að lækka verðið á flug­miðunum sínum, þar sem flugvélar séu nú ódýrar og auðvelt sé að ráða inn starfs­fólk. Í síðustu viku störfuðu um 60 manns hjá félaginu, en búist er við að þeir verði 350 talsins fyrir lok árs.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár