Icelandair heldur áfram að tapa – Tapið samtals 86 milljarðar frá byrjun árs 2018

Tap Icelandair Group á fyrsta ársfjórðungi 2021 var 65 prósent meira en það var á sama tímabili í fyrra. Gríðarlegar hækkanir á heims­markaðs­verði á eldsneyti réðu þar miklu um en einnig hafði ómikron afbrigðið áhrif á eftir­spurn.

Icelandair Group tapaði 6,5 milljörðum króna á fyrstu þremur mánuðum ársins. Það er meira tap en varð á fyrsta ársfjórðungi 2021, þegar starfsemi félagsins var mun minni vegna heims­faraldursins. Þá tapaði flug­félagið tæpum fjórum milljörðum króna á núverandi gengi, en Icelandair Group gerir upp í Bandaríkja­dölum. Tap Icelandair Group á fyrsta ársfjórðungi 2022 var því 65 prósent meira en það var á fyrsta ársfjórðungi í fyrra.

Þetta kemur fram í uppgjöri félagsins fyrir fyrstu þrjá mánuði ársins sem birt var í gær.

Umsvif Icelandair Group hafa aukist mikið síðustu misseri eftir að heimurinn opnaðist á ný í kjölfar þess að ferða­takmörkunum vegna kórónu­veiru­faraldursins fækkaði. Tekjur Icelandair Group voru 20,3 milljarðar króna á fyrsta ársfjórðungi sem er 178 prósent hærri tekjur en félagið hafði á sama tímabili í fyrra. Í tilkynningu útskýrir Bogi Nils Bogason, forstjóri Icelandair Group, tapið með því að ýmsir þættir hafi haft áhrif á rekstrar­niður­stöðuna. Þar beri fyrst að nefna mikla hækkun á eldsneytis­verði, en heims­markaðsverð eldsneytis hækkaði um 75 prósent milli ára, áhrif ómíkron afbrigðisins á eftir­spurn og „umtalsverður útlagður kostnaður á fjórðungnum í tengslum við undir­búning metnaðar­fullrar flug­áætlunar okkar í sumar“.

Lausafjár­staða Icelandair Group í lok mars var 49 milljarðar króna. Þar af voru handbært fé og markaðs­verðbréf upp á 42,3 milljarða króna. Auk þess hefur Icelandair Group aðgengi að lánalínu upp á 6,7 milljarðar króna hjá tveimur íslenskum bönkum, en ekki var búið að draga á hana í lok mars.

Félagið var lána­línu með ríkis­ábyrgð upp á 16,5 millj­­arða króna sem það sagði upp fyrr á þessu ári, á sama tíma og það kynnti hugmyndir um nýtt hvata­kerfi fyrir stjórn­endur sína. Lausafjár­staða Icelandair Group hefur versnað um tólf prósent frá áramótum.

Mikið tap í lengri tíma

Samanlagt tap Icelandair Group frá byrjun árs 2018 er því næstum 86 milljarðar króna. Félagið tapaði 13,7 milljörðum króna í fyrra, 51 milljarði króna árið 2020, árið 2019 tap­aði það 7,8 millj­­arðar króna og á árinu 2018 var tapið um 6,8 millj­­arðar króna.

Icelandair Group fór í nokkrar hluta­fjár­­­aukn­ingar eftir að kór­ón­u­veiru­far­ald­­­ur­inn skall á. Félagið safn­aði alls 23 millj­­­­örðum króna í útboði sem fór fram í sept­­­­em­ber 2020, en það hefur átt í miklum rekstr­­­­ar­­­­vanda um ára­bil sem jókst veru­­­­lega þegar kór­ón­u­veiru­far­ald­­­­ur­inn reið yfir.

Icelandair Group gerði svo bind­andi sam­komu­lag við banda­ríska fjár­­­­­­­fest­ing­­­­ar­­­­sjóð­inn Bain Capital um að hann keypti nýtt hlutafé í flug­­­­­­­fé­lag­inu í fyrra­sum­­­­­ar. Sam­­­­kvæmt sam­komu­lag­inu greiddi Bain Capital 8,1 millj­­­­arð króna og eign­að­ist fyrir vikið 16,6 pró­­­­sent hlut í Icelandair Group. Bain Capital á 14,96 pró­­­sent hlut í Icelandair Group og er lang stærsti eig­andi félags­­­ins. Aðrir stórir eig­endur eru íslenskir líf­eyr­is­­sjóð­­ir. Til við­bótar hafa verið sóttir nokkrir millj­arðar króna og alls nemur umfang þess fjár sem Icelandair Group hefur sótt sér 33 millj­örðum króna.

Þrátt fyrir mik­inn tap­­­rekstur hefur hluta­bréfa­verð í Icelandair Group rúm­­­lega tvö­­­fald­­­ast frá því að hluta­bréfa­út­­­­­boðið í sept­­­em­ber 2020 fór fram.

Innleiddu hvatakerfi fyrir lykilfólk

Ekk­ert eitt fyr­ir­tæki fékk meiri fyr­ir­greiðslu úr rík­­is­­sjóði vegna kór­ón­u­veiru­far­ald­­ur­s­ins en Icelandair Group. Þá hefur Icelandair Group end­­ur­­samið, af mik­illi hörku, við helstu stétt­­ar­­fé­lög starfs­­manna sinna. Sagði meðal ann­­ars 95 pró­­sent flug­­freyja upp á meðan að á kjara­við­ræðum við þær stóð. Eftir að þær kol­­­felldu kjara­­­samn­ing var talað um að ráða fólk úr öðru stétt­­­ar­­­fé­lagi.

Þrátt fyrir mikinn taprekstur og ríkis­stuðning ákvað stjórn Icelandair Group að setja á fót hvata­kerfi fyrir framkvæmda­stjórn og lykil­starfsmenn félagsins fyrr á þessu ári, og var tillaga hennar þar um samþykkt á aðalfundi. Mark­miðið með inn­­­­­leið­ing­u ­hvata­­­kerf­is­ins var meðal ann­­­ars sagt vera að draga úr líkum á að hópurinn yfir­­­­­gefi Icelandair Group með litlum fyr­ir­vara.

Í kerf­inu felst að hóp­­­ur­inn mun geta fengið allt af 25 pró­­­sent af árs­­­launum sínum í bónus í formi kaup­réttar á hlutum í Icelandair Group. Fyr­ir­hugað er að gefa út 250 milljón hluti í ár vegna kerf­is­ins og alls 900 milljón hluti á þriggja ára tíma­bili. Miðað við mark­aðsvirði Icelandair Group í dag er virði þeirra hluta sem greiða á út sem kaupauka um tveir millj­­­arðar króna. Hægt verður að inn­­­­­leysa umrædda kaup­rétti að þremur árum liðn­­­­­um.

Áður hafði Kjarninn greint frá því að laun og hlunnindi forstjóra Icelandair Group hefðu hækkað um 48 prósent milli 2020 og 2021. Í svari við fyrir­spurn Kjarnans um ástæður þessa sagði að breytinguna mætti „lang­­­­­mestu leyti rekja til þess að á árinu 2020 tók for­­­­­stjóri á sig 30 pró­­­­­sent launa­­­­­lækkun stærstan hluta árs­ins. Þess má geta í þessu sam­hengi að árs­­­­­reikn­ingur félags­­­­­ins er í USD en öll laun á Íslandi, þ.m.t. for­­­­­stjóra eru greidd í íslenskum krón­­­­­um. Með­­­­­al­­­­­gengi íslensku krón­unnar gagn­vart USD styrkt­ist á milli ára og ýkir það hækk­­­­­un­ina í árs­­­­­reikn­ingn­­­­­um.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár