Flugmálastjórnin fordæmd vegna MAX-vélanna

Skýrsla á vegum Banda­ríkjaþings fordæmir flugmála­stjórn Banda­ríkjanna fyrir yfirsjón á göllum Boeing 737 MAX-vélanna, sem ollu tveimur mann­skæðum flug­slysum í fyrra. Flugmála­stjórnin hyggst breyta reglu­verki sínu í kjölfar niður­stöðunnar.

Samgöngu-og innviða­nefnd Banda­ríkjaþings fordæmdi í dag flugmála­stjórn Banda­ríkjanna (FAA) fyrir að hafa veitt leyfi fyrir útgáfu Boeing 737 MAX-vélanna í nýrri skýrslu sem var gefin út í morgun.

Skýrslan er afrakstur 18 mánaða rannsóknar­vinnu nefndarinnar, sem var ætlað að varpa ljósi á það hvað hafi farið úrskeiðis við þróun flug­vélarinnar og leyfis­veitingu hennar. Í henni segir að nefndin hafi fundið alvarlega galla á framkvæmd leyfis­veitingarinnar, þrátt fyrir að bæði Boeing og FAA hafi haldið því fram að hún væri í samræmi við núverandi reglur.

Samkvæmt nefndinni voru tvö flugslys MAX-vélanna, sem kostuðu 346 manns lífið, „hrikaleg afleiðing“ hönnunar­mistaka og lélegrar stjórnunar frá flugvéla­fram­leiðandanum og alvarlegrar yfir­sjónar flugmála­stjórnarinnar.

Í umfjöllun New York Times um málið kemur fram að nefndin telji regin­mistök hafa legið í áherslum Boeing á gróða umfram öryggismál og linkind FAA gagnvart flugvéla­fram­leiðandanum.

FAA var nálægt því að aflétta kyrr­setningu MAX-vélanna fyrr í sumar, eftir röð tilrauna­flugferða. Samkvæmt New York Times myndi slík leyfis­veiting hafa áhrif á ákvarðanir flugmála­yfirvöld annarra landa og jafnvel leiða til þess að vélarnar færu í loftið í vetur.

Í skýrslunni sem gefin var út í dag benti samgöngu­nefndin hins vegar á fjölda vandamála í hönnun vélarinnar, ásamt uppbyggingu hennar og leyfis­veitingu. Nefndin segir það vera nauðsynlegt af Boeing og FAA að takast á við þessi vandamál.

Munu fylgja tilmælunum

Bæði flugvéla­fram­leiðandinn og flugmála­stjórnin gáfu frá sér yfir­lýsingar þess efnis í dag að þau hyggjast fylgja tilmælum nefndarinnar: „Við höfum unnið hart að því að styrkja öryggis­menningu okkar og endur­byggja traust gagnvart viðskipta­vinum okkar, yfir­völdum og almenningi,“ kom fram í yfir­lýsingu Boeing. Í yfir­lýsingu FAA segir einnig að flugmála­stjórnin hyggst vinna náið með nefndinni til þess að koma á ráðlögðum breytingum.

Icelandair hefur samtals keypt tólf 737 MAX-vélar og hyggst koma þeim öllum í gagnið innan tveggja ára, samkvæmt fjárfesta­tilkynningu félagsins. Sex þessara véla eru nú í flota flug­félagsins, en þrjár munu bætast við á næsta ári. Ef fram fer sem horfir mun þriðjungur flotans saman­standa af MAX-vélum.

Fjárfesta­tilkynning Icelandair fyrir yfir­standandi útboð á hlutafé byggir á þeirri forsendu að MAX-flugvélar félagsins verði teknar í gagnið á síðasta fjórðungi þessa árs.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár