Íslandsbanki sér fram á að græða meira en hann ætlaði sér í byrjun árs

Leið­beinandi bil um arðsemi í rekstri Íslands­banka hefur hækkað talsvert á árinu. Nú stefnir bankinn á að arðsemi eigin fjár verði á bilinu 11 til 13 prósent. Fyrir þremur mánuðum var markmiðið hækkað upp í 10 prósent vegna velgengni á árinu.

Ánægð
Ánægð Haft er eftir Birnu í til­kynn­ingu frá Íslands­banka að afkoma bank­ans sé gríð­ar­sterk. Mynd: Stundin / Davíð Þór

Íslands­banki hélt áfram að hagnast umfram væntingar á síðustu þremur mánuðum ársins, líkt og bankinn hefur gert allt þetta ár. Í tilkynningu á vef bankans kemur fram að hagnaðurinn þessa þrjá mánuði hafi verið 7,5 milljarðar króna og arðsemi eigin fjár upp á 14,4 prósent. Vegna þessa góða gengis í rekstri bankans hefur markmið um arðsemi ársins verið hækkuð enn á ný, úr því að vera yfir 10 prósent í 11 til 13 prósent. 

Tekjur bankans eru að lang­stærstum hluta úr reglulegri starfsemi; það er lán til heimila og fyrir­tækja og gjöld sem bankinn leggur á fyrir veitta þjónustu. Vaxta­munur bankans, sem er munurinn á þeim vöxtum sem bankinn lánar á og þeim vaxta­kjörum sem bankanum sjálfum býðst þegar hann fær sjálfur lánað, hélt líka áfram að aukast. Vaxta­munurinn var 3 prósent á þessu þriggja mánaða tímabili, saman­borið við 2,4 prósent á sama tímabili í fyrra. 

„Gríðarsterk afkoma“

Birna Einars­dóttir, banka­stjóri Íslands­banka, var að vonum mjög ánægð með hagnað bankans, samkvæmt tilkynningunni. „Afkoma Íslands­banka á þriðja ársfjórðungi var gríðar­sterk þar sem hagnaður var 7,5 ma. kr. og arðsemi eigin fjár 14,4% sem er yfir fjárhags­markmiðum bankans,“ var haft eftir henni þar. 

Bankinn hagnast verulega á hækkandi vaxta­umhverfi en stýri­vextir hafa hækkað um 5 prósentu­stig að undan­förnu; farið úr 0,75 prósentum í mars á síðasta ári í 5,75 prósent nú. Bankinn, líkt og hinir stóru íslensku bankarnir tveir, hefur samhliða hækkað útlána­vexti sína til viðskipta­vina. Bankinn sjálfur verður hins vegar ekki fyrir sömu áhrifum þessara stýrivaxtahækkanna þar sem fjár­mögnun bankans er ekki að jafn stórum hluta á breyti­legum vöxtum og útlánin.

Í umfjöllun Stundarinnar um hækkandi vaxtamun bankanna frá 8. október kom fram að um 30 prósent af útlána­safni Íslands­banka væru óverðtryggð húsnæðislán á breyti­legum vöxtum. Allar breytingar á vöxtum snerta þennan hóp því bæði beint og hratt, sem hefur greitt sífellt hærri vexti undan­farin misseri, sem hefur þýtt aukinn hagnað bankans.  

Minni arðsemi Arion og Landsbanka

Arion banki skilaði ekki jafn mikilli arðsemi og Íslands­banki en Benedikt Gíslason, banka­stjóri Arion banka, segir sig og sitt teymi „nokkuð sátt við afkomu bankans“. Arðsemi eiginfjár var 10,5 prósent, saman­borið við 17 prósent á sama tímabili í fyrra. Hagnaðurinn var 4,9 milljarðar á tíma­bilinu. 

Vaxta­munur Arion hækkaði líkt og hjá Íslands­banka á milli tímabila og var 3,2 prósent. Það er ívið meira en markmið bankans um vaxtamun er. Í áður­nefndri umfjöllun Stundarinnar um vexti kom fram í svari upplýsinga­fulltrúa bankans að markmið Arion væri að hafa vaxta­muninn 3 prósent. 

Hagnaður Lands­bankans var lægri en Íslands­banka en hærri en Arion; nam 5,8 milljörðum króna, samkvæmt tilkynningu bankans frá því í gær um uppgjör þriðja ársfjórðungs. Vaxta­munurinn jókst á milli tímabila líkt og hjá hinum tveimur og var 2,8 prósent. Arðsemi bankans, sem er að nær öllu leyti í eigu ríkisins, var 8,5 prósent. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár