Hækka fæðingarorlofsgreiðslur

Ásmundur Einar Daðason, félags- og jafnréttis­mála­ráðherra, hefur undir­ritað reglugerð um hækkun á greiðslum til foreldra í fæðingar­orlofi frá 1. janúar 2019. Hámarks­greiðslur í fæðingar­orlofi hækka um 80.000 krónur á mánuði.

Ásmundur Einar Daðason, félags- og jafnréttismálaráðherra.
Ásmundur Einar Daðason, félags- og jafn­rétt­is­mála­ráð­herra. Mynd: Bára Huld Beck

Ásmundur Einar Daða­son, félags- og jafn­rétt­is­mála­ráð­herra, hefur und­ir­ritað reglu­gerð um hækkun á greiðslum til for­eldra í fæð­ing­ar­or­lofi frá 1. jan­úar 2019. Óskertar greiðslur hækka um 80.000 krón­ur, úr 520.000 krónur í 600.000 krónur á mán­uði. Í til­kynn­ingu frá Vel­ferð­ar­ráðu­neyt­inu segir Ásmundur Einar hækk­un­ina mik­il­væga og sýna í verki áherslur stjórn­valda á að efla stuðn­ing við börn og barna­fjöl­skyld­ur.

„Við hækk­uðum hámarks­greiðsl­urnar um 20.000 í byrjun þessa árs. Nú stígum við stærra skref með umtals­verðri hækkun sem er til þess fallin að koma tekju­lágum for­eldrum til góða,“ segir Ásmundar Ein­ar.

Horfa til þess að lengja fæðingarorlofið

Í til­kynn­ing­unni segir einnig að áfram verði unnið að því að styðja betur við for­eldra í fæð­ing­ar­or­lofi og þar sé meðal ann­ars horft til þess að lengja fæð­ing­ar­or­lof­ið. „Þetta er mik­il­vægt vel­ferð­ar­mál og eins vil ég nefna sér­stak­lega að þetta er tví­mæla­laust lóð á vog­ar­skálar auk­ins kynja­jafn­rétt­is.“

Aukin fram­lög rík­is­ins vegna hækk­unar hámarks­greiðslna fæð­ing­ar­or­lofs 1. jan­úar næst­kom­andi eru áætluð um 1,8 millj­arður króna á ársgrundvelli.

Hækkunin lögð til fyrir rúmum tveimur árum

Að hækka hámarksgreiðslur úr fæðingarorlofssjóður í 600 þúsund krónur var lögð til fyrir tveimur og hálfu ári. Það var ein af tillögum starfshóps um framtíðarstefnu í fæðingarorlofsmálum sem skilaði tillögum sínum til Eyglóar Harðardóttur, þáverandi félags- og hús­næð­is­mála­ráð­herra, þann 11. mars 2016. Þá voru hámarksgreiðslur 370 þúsund krónur á mánuði.

Starfshópurinn lagði einnig til að fæð­ing­ar­or­lofið yrði lengt í tólf mán­uði úr níu mán­uð­um, þannig að hvort for­eldri um sig eigi fimm mán­aða rétt til orlofs og tveir mán­uðir verði sam­eig­in­legur réttur sem annað hvort getur not­að.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár