Fæðingarorlofið verði lengt í ár og greiðslur hækkaðar í 600 þúsund

Eygló og Birkir Jón í dag.
Eygló og Birkir Jón í dag.

Fæð­ing­ar­or­lofið verður lengt í tólf mán­uði úr níu mán­uðum, þannig að hvort for­eldri um sig eigi fimm mán­aða rétt til orlofs og tveir mán­uðir verði sam­eig­in­legur réttur sem annað hvort getur notað. Þetta eru til­lögur starfs­hóps um fram­tíð­ar­stefnu í fæð­ing­ar­or­lofs­málum, sem skil­aði til­lögum sínum til Eyglóar Harð­ar­dóttur, félags- og hús­næð­is­mála­ráð­herra, í dag.

Þá verða hámarks­greiðslur úr fæð­ing­ar­or­lofs­sjóði hækk­aðar í 600 þús­und krónur á mán­uði, en hámarks­greiðslan í dag er 370 þús­und krónur. Einnig er lagt til að fyrstu 300 þús­und krón­urnar af við­mið­un­ar­tekj­unum verði óskertar, og af tekjum umfram 300 þús­und fái for­eldrar 80%.

Nefndin leggur einnig til að skipuð verði verk­efn­is­stjórn með full­trúum ríkis og sveit­ar­fé­laga í dag­vist­un­ar­málum barna að loknu fæð­ing­ar­or­lofi. Leita eigi leiða svo unnt sé að bjóða öllum börnum dvöl á leik­skóla við eins árs aldur.

Lögð er áhersla á það að greiðslur úr Fæð­ing­ar­or­lofs­sjóði verði hækk­aðar strax í byrjun næsta árs, til þess að hægt sé að ná mark­miðum um að for­eldrar og þá helst feður full­nýti rétt sinn til fæð­ing­ar­or­lofs.

Lenging fæð­ing­ar­or­lofs­ins á ekki að hefj­ast fyrr en 1. jan­úar 2019 og á að vera komin að fullu til fram­kvæmda 2021, sam­kvæmt til­lögum hóps­ins. Maríanna Trausta­dóttir, full­trúi ASÍ í starfs­hópnum, segir að ASÍ hefði viljað sjá breyt­ing­unum hraðað. Leng­ingin ætti að koma mun fyrr til fram­kvæmda en áætlað er nú.

Fjármála- og efna­hags­ráðu­neytið setur fyr­ir­vara um til­lögur starfs­hóps­ins þótt það styðji meg­in­mark­miðin. Liður í því að til­lög­urnar verði að veru­leika sé að fyr­ir­komu­lag fjár­mögn­unar sé sjálf­bært og tekið sé mið af lögum, sem gera ráð fyrir því að fæð­ing­ar­or­lofs­sjóður sé fjár­magn­aður með trygg­inga­gjaldi. Þess vegna setur ráðu­neytið fyr­ir­vara.

Samtök atvinnu­lífs­ins tala einnig um trygg­inga­gjaldið í sinni afstöðu og gerir kröfu um að breyt­ing­arnar sem fyr­ir­hug­aðar eru rúmist innan trygg­inga­gjalds­ins eins og það er núna, ekki komi til greina að hækka gjaldið.

Samtökin eru jafn­framt mót­fallin því að fæð­ing­ar­or­lofið verði lengt í 12 mán­uði, vegna auk­ins kostn­aðar og lengri fjar­veru for­eldra frá störfm. Þau segja alls óljóst að slík leng­ing muni stuðla að jafn­rétti kynj­anna. SA vilja heldur að auka eigi dag­vist­un­ar­þjón­ustu sveit­ar­fé­lag­anna til að brúa það bil sem til verður eftir að fæð­ing­ar­or­lofi lýkur og þangað til börn kom­ast í dag­vistun.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár