Trump segir seðlabankann „brjálaðan“

Forseti Banda­ríkjanna er ekki ánægður með að vextir í landinu séu að hækka.

Donald Trump Bandaríkja­forseti er afar ósáttur við að stýri­vextir Seðla­banka Banda­ríkjanna hafi farið hækkandi að undan­förnu. Hann lét hafa eftir sér í vikunni að seðla­bankinn væri „brjálaður“ og að vaxta­hækkanirnar væru arfa­vitlausar.

Vextir hafa farið hækkandi í Banda­ríkjunum að undan­förnu og eru nú 2,25 prósent en því er spáð að þeir muni hækka nokkuð hratt upp í 3,5 prósent, árið 2020. Eftir áratugs tímabil lágra vaxta, á bilinu 0 til 0,25 prósent, er nú staðan breytt, og ljóst að nokkuð krefjandi tímar eru að taka við fyrir marga.

Á undan­förnum tveimur dögum hafa hlutabréf fallið um meira en 6 prósent í Banda­ríkjunum, og hafa þær skýringar verið nefndar, að fjár­festar séu að færa fjármagn frá hluta­bréfum yfir í skulda­bréf og aðrar eignir. Vísitölur hækkuðu þó aðeins í gær, eftir tvo slæma daga í röð.

Christine Lagarde, framkvæmda­stjóri Alþjóða­gjaldeyris­sjóðsins, lét hafa eftir sér á ársfundi Alþjóða­gjaldeyris­sjóðsins á Indónesíu, að hún væri ekki á því að Seðla­banki Banda­ríkjanna kæmi brjálæði nokkuð við.

Verðbólgu­þrýstingur hefur aukist nokkuð í Banda­ríkjunum að undan­förnu, ekki síst vegna þess hve olía hefur hækkað hratt undan­farna mánuði. Tunnan af hráolíu hefur hækkað um meira en 40 prósent á fimm mánuðum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár