Læknanemar krefjast aðgerða

Tíu lækna­nemar sendu í gær fram­kvæmda­stjórn Land­spít­ala bréf þar sem þau biðla hana að gera strax ráð­staf­anir til að tryggja full­nægj­andi mönnun á bráða­mót­töku.

Hrædd um að gera yfirsjónir
Hrædd um að gera yfir­sjónir Lækna­nem­arnir segj­ast hræddir við að ger­ast sekir um yfir­sjónir í slíkum aðstæðum og segja að það reyn­ist lík­lega hverjum lækni þung­bært að vera hlut­eig­andi í atviki er varðar sjúk­ling en sér­stak­lega lækna­nemum í upp­hafi starfs­fer­ils síns. Mynd: Heiða Helgadóttir

„Tilefni þessa bréfs eru þungar áhyggjur okkar af þeirri stöðu sem nú er komin upp á okkar vinnu­stað“ segir í bréfi sem tíu lækna­nemar sendu á fram­kvæmda­stjórn spít­al­ans í gær. 

Við erum tíu lækna­nemar sem nýverið lukum fimmta ári í lækna­deild og störfum nú í sum­ar­afleys­ingum fyrir lækna á bráða­mót­töku Land­spít­ala.

Standa einir eftir á gólfinu

Nemanir, sem eru tíu, luku nýverið fimmta ári í lækna­deild og starfa í sum­ar­afleys­ingum fyrir lækna á bráða­mót­töku Land­spít­ala. Í bréf­inu segja þeir að eins og staðan sé núna sé aðgengi þeirra að ábyrgum sér­fræð­ingum „full­kom­lega óvið­un­andi“ en greitt aðgengi að þeim segja þeir nauð­syn­lega for­sendu þess að lækna­nemar geti sinnt afleys­inga­störfum lækna. „Við þetta bæt­ist að þegar bráð­veikir sjúk­lingar leita á bráða­mót­töku t.d. vegna fjölá­verka, krefj­ast þeir sjúk­lingar óskiptrar athygli sér­fræð­inga og reynd­ustu sér­náms­lækn­anna. Þá stöndum við, óreyndu lækna­nem­arnir, og nýút­skrif­aðir læknar sem hófu störf nú í júní, einir eftir á gólf­inu án aðgengis að sér­fræði­læknum eða reynd­ari læknum.“

„Við erum óreynd og við erum óör­ugg í þessum aðstæðum sem þegar hafa skap­ast“

Þeir segja þetta hættu­legt ástand og ljóst að sjúk­lingar fái ekki full­nægj­andi þjón­ustu. Þar að auki sé það hvorki sjúk­lingum, þeim sjálfum né sam­starfs­fólki þeirra bjóð­andi. Nemarnir séu hræddir um að í slíkum aðstæðum geta þeir orðið sekir um yfir­sjónir. „ Við erum að stíga okkar fyrstu skref á starfs­ferl­inum, við erum óreynd og við erum óör­ugg í þessum aðstæðum sem þegar hafa skap­ast. Við erum hrædd um að ger­ast sek um yfir­sjónir sem leiða til ófull­nægj­andi með­ferðar sjúk­linga og sam­svar­andi atvika. Að vera hlut­að­eig­andi í atviki reyn­ist lík­lega flestum læknum þung­bært, hvað þá lækna­nema í upp­hafi starfs­fer­ils síns,“ segja þeir. 

Nauðsynlegt að bregðast við strax

Í lok bréfs­ins biðla lækna­nem­arnir til fram­kvæmd­ar­stjórnar spít­al­ans að gera „strax“ ráð­staf­anir til að tryggja full­nægj­andi mönnun sér­fræð­inga á bráða­mót­töku. „Það er okkar mat að nauð­syn­legt sé að bregð­ast við stöð­unni þegar í stað til þess að tryggja öryggi sjúk­linga og starfs­fólks.“ 

Undir bréfið skrifa lækna­nem­arnir Teitur Ari Theo­dórs­son, Thelma Krist­ins­dóttir, Daníel Hrafn Magn­ús­son, Karó Hanzen, Hlíf Sam­ú­els­dóttir, Guðrún Karls­dóttir, Rakel Hekla Sig­urð­ar­dóttir, Rebekka Lísa Þór­halls­dóttir, Tómas Viðar Sverr­is­son og Jón Tómas Jónsson.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Sjá meira

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Spítalinn er sjúklingurinn

FréttirSpítalinn er sjúklingurinn

Léttir að heil­brigð­is­ráð­herra ætlar að skoða rétt­ar­stöðu heil­brigð­is­starfs­fólks

Ásta Kristín Andr­és­dóttir hjúkr­un­ar­fræð­ingur varð meyr við að lesa frétt­ar­til­kynn­ingu frá stjórn­ar­ráð­inu þess efnis að heil­brigð­is­ráð­herra hefur ákveðið að taka til skoð­unar rétt­ar­stöðu heil­brigð­is­starfs­fólks í tengslum við til­kynn­ingar og rann­sókn alvar­legra atvika í heil­brigð­is­þjón­ustu. Ásta er eini heil­brigð­is­starfs­mað­ur­inn á Íslandi sem hefur fengið rétt­ar­stöðu sak­born­ings vegna starfs síns.
ViðtalSpítalinn er sjúklingurinn

Missti allt úr hönd­unum eftir sýknu­dóm

Ásta Kristín Andr­és­dóttir hjúkr­un­ar­fræð­ingur er eini heil­brigð­is­starfs­mað­ur­inn á Íslandi sem hefur verið ákærð fyrir mann­dráp af gáleysi í starfi. Lög­reglu­rann­sókn, ákæran, sem og máls­með­ferðin, tóku mikið á Ástu sem lýsir með­ferð máls­ins sem stríði. Þrátt fyrir að hafa hlotið sýknu í mál­inu hefur stríðið setið í henni, leitt hana á dimma staði þangað til að hún „missti allt úr hönd­unum“.

31 mín. lestur

FréttirSpítalinn er sjúklingurinn

Yfirfull bráða­mót­taka gat ekki tekið á móti sjúk­lingi í hjarta­stoppi

Helga Rósa Más­dóttir, deild­ar­stjóri bráða­mót­töku Land­spít­al­ans, stað­festir í sam­tali við Stundina að sjúk­lingi í hjarta­stoppi var vísað frá bráða­mót­tök­unni yfir á Hjarta­gátt spít­al­ans vegna þess að bráða­móttakan var full. Skráð hefur verið atvik vegna máls­ins. „Við erum að hafna deyj­andi fólki,“ segir áhyggju­fullur starfs­maður.
VettvangurSpítalinn er sjúklingurinn

Veikt fólk inni­lokað í glugga­lausu rými

Á þeim þremur mán­uðum sem liðnir eru frá því að starfs­fólk bráða­mót­tök­unnar sendi frá sér hjálp­ar­kall þar sem það sagð­ist lifa ham­farir hefur lítið sem ekk­ert verið aðhafst til að bæta starfs­að­stæður þeirra. Ef eitt­hvað er þarf það að hlaupa enn hraðar og mann­rétt­indi sjúk­linga eru brotin að mati bráða­læknis sem fylgdi blaða­manni í gegnum deild­ina. Aðstæður á vett­vangi voru slá­andi.

30 mín. lestur

FréttirSpítalinn er sjúklingurinn

Áhyggjur af því að kom­andi kosn­ingar hafi áhrif á sam­stöðu almenn­ings

Hjalti Már Björns­son, bráða­læknir á Land­spít­al­anum, segir að hann og annað heil­brigð­is­starfs­fólk hafi áhyggjur af því að það „muni skorta á sam­stöðu fólks til að takast á við þetta með sama hætti og hefur verið gert hingað til“. Þá seg­ist hann einnig hafa áhyggjur af sam­stöðu almenn­ings í ljósi þess að kosn­ingar séu á næsta leiti og að stjórn­mála­menn lýsi and­stöðu sinni við ráð­legg­ingar sótt­varna­læknis.

Mest lesið

1
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár