Landsbankinn gerir sátt við Samkeppniseftirlitið

Lands­bank­inn hefur, fyrstur íslenskra banka, lokið við­ræðum við Sam­keppn­is­eft­ir­litið um aðgerðir til að virkja sam­keppni milli við­skipta­banka. Aðgerð­irnar fela í sér m.a. aukið upp­lýs­inga­flæði og minni skuld­bind­ingar neyt­enda í banka­við­skiptum.

Páll Gunnar Pálsson, forstjóri Samkeppniseftirlitsins
Páll Gunnar Pálsson, for­stjóri Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins

Lands­bank­inn gerir sátt við Sam­keppn­is­eft­ir­litið um aðgerðir sem stuðla að virk­ari sam­keppni til hags­bóta fyrir heim­ili og lítil fyr­ir­tæki. Aðgerð­irnar eru marg­vís­legar, en þær eru allar til hags­bóta fyrir neyt­endur.

Markmið sátt­ar­innar er að draga úr skipti­kostn­aði í fjár­mála­þjón­ustu, stuðla að virkara aðhaldi við­skipta­vina og vinna gegn aðstæðum sem gætu leitt til sam­hæf­ingu á við­skipta­banka­mark­aði. Sam­keppn­is­eft­ir­litið hóf við­ræður þess efnis við alla við­skipta­bank­anna fyrir tveimur árum síðan, en við­ræður við Arion banka og Íslands­banka eru á loka­stigi.

Páll Gunnar Pálsson, for­stjóri Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins, segir mik­il­vægt að fólk og fyr­ir­tæki gæti þess að leita ætíð bestu kjara og skil­mála miðað við sínar þarfir. „Með því er veit­endum fjár­mála­þjón­ustu skapað aukið aðhald sem skilar sér í virk­ari sam­keppni þeirra á milli. Þau skil­yrði sem fram koma í sátt­inni við Lands­bank­ann eiga m.a. að leiða til þess að auð­veld­ara verði fyrir við­skipta­vini að veita slíkt aðhald.”

Í kjöl­far sátt­ar­innar mun bank­inn ráð­ast í ýmsar aðgerðir sem eru til hags­bóta fyrir neyt­endur, en þær eru eft­ir­far­andi:

  • Upp­greiðslu­gjöld munu ekki vera lögð á hjá útistand­andi lánum sem bera breyti­lega vexti
  • Sett verða hámörk á þóknun við flutn­ing bund­ins sér­eigna­sparn­aðar frá bank­anum.
  • Íbúða­kaup­andi þarf ekki lengur að færa önnur banka­við­skipti til bank­ans sem hann greiðir íbúða­lán
  • Yfirtaka íbúða­láns verður ekki háð því að kaup­and­inn færi önnur banka­við­skipti sín til bank­ans.
  • Tekið verður upp upp­lýs­inga­tækni­við­mót (e. API) sem gerir þriðju aðilum kleift að setja upp sam­an­burð­ar­vef­síðu sem virkjað gæti skil­virkara neyt­enda­að­hald.
  • Upplýst verður um veru­legar breyt­ingar á vöxtum og verð­skrá áður en þær eiga sér stað
  • Sett verður upp API-upp­lýs­inga­tækni­við­mót sem gerir þriðju aðilum kleift að setja upp sam­an­burð­ar­vef­síðu
  • Til­teknir skil­málar íbúða­lána sem fela í sér veru­lega bind­ingu verða ekki virkj­aðir
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

4
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár