6.400 kröfuhafar höfðu ekki sótt peningana sína

Nokkur þúsund kröfuhafa í bú Kaupþings hafa ekki sótt þá fjármuni sem þeir eiga að fá greitt í samræmi við nauða­samninga félagsins. Þeir fjármunir sem geymdir eru á vörslu­reikningi eru um 8,5 milljarða króna virði á gengi dagsins í dag.

Paul Copley, forstjóri Kaupþings ehf.
Paul Copley, for­stjóri Kaup­þings ehf. Mynd: Skjáskot/RÚV

Um það bil 6.400 minni kröfu­hafar Kaupþings banka höfðu ekki sótt þær greiðslur sem þeir áttu rétt á að fá um síðustu áramót, samkvæmt nauða­samningi sem gerður var í lok árs 2015. Þetta kemur fram í ársreikningi Kaupþings ehf., félags utan um eftir­standandi eignir hins fallna banka, fyrir árið 2018.

Þar segir að í lok janúar 2019 hafi félagið geymt 27,2 milljónir evra í reiðufé og 29,2 milljónir punda í breytanlegum skulda­bréfum á vörslu­reikningi til að mæta greiðslum kröfuhafa sem höfðu ekki sótt peningana sína. Samanlagt virði þeirra fjármuna sem geymdir voru á vörslu­reikningi, umreiknað í íslenskar krónur á gengi dagsins í dag, er um 8,5 milljarðar króna.

Búið að greiða út háar upphæðir

Slitabú Kaupþings samdi við íslenska ríkið um greiðslu stöðugleika­framlaga sumarið 2015, gegn því að fá að klára gerð nauða­samnings og hefja útgreiðslu fjármuna til kröfuhafa sinna.

Sá nauða­samningur var kláraður í desember sama ár.

Í lok síðasta árs hafði Kaupþing í heild skilað skuldabréfa­eigendum sínum 2.621,9 milljónum punda í greiðslum með reiðufé og lækkun á höfuðstól breytanlegra skulda­bréfa í kjölfar lausnar á ágreinings­málum. Það gera greiðslur upp á 422,1 milljarða króna á gengi dagsins í dag.

Eignir félagsins hafa aukist það sem af er þessu ári. Meðal annars fékk Kaupþing greitt 97,8 milljónir punda, um 15,7 milljarða króna á núvirði, þann 10. janúar 2019 eftir að samkomulag náðist við Robert Tchenguiz, stærsta lántakanda bankans fyrir hrun. Með því lauk áralöngum mála­ferlum Roberts og bróður hans Vincents við Kaupþing. Greiðslan kom úr fjár­festinga­félaginu Oscatello, sem var í eigu Robert Tchenguiz.

Hafa greitt mikið til ríkisins

Stöðugleika­framlögin sem Kaupþing greiddi fólust meðal annars í því að félagið skilaði uppistöðu þeirra fjármuna sem fengust við sölu á hlut félagsins í Arion banka til íslenska ríkisins vegna afkomu­skipta­samnings sem gerður var milli aðilanna. Samkvæmt honum átti íslenska ríkið að fá þriðjung af öllu sölu­and­virði Kaup­þings á eign­ar­hlutum félags­ins í Arion ­banka milli 100 og 140 millj­arða króna en helm­ing­inn á milli 140 og 160 millj­arða króna. Þá fær rík­is­sjóður þrjá fjórðu í sinn hlut af sölu­and­virði umfram 160 millj­arða króna.

Í sumar hafði ríkis­sjóður þegar fengið í heildina um 100 milljarða króna í tengslum við sölu­ferli Kaup­þings á eign­ar­hlutum sínum í Arion ­banka. Auk þess hafði félagið greitt um 8,3 millj­arða króna í vexti vegna 84 millj­arða króna veð­skulda­bréfs sem Kaup­þing gaf út til rík­is­ins í árs­byrjun 2016. Skulda­bréf­ið, sem var með veði í hluta­bréfum í Arion ­banka og var hluti af stöð­ug­leika­fram­lagi Kaup­þings, var greitt upp að fullu í fyrra.

Með milljarða í laun

Kjarninn greindi frá því í upphafi viku að stjórn og forstjóri Kaupþings hefðu samtals fengið 1.216 millj­ónir króna í laun í fyrra. Alls námu greiðslur til starfs­manna félags­ins, sem voru 17 tals­ins, í heild rúm­lega 3,5 millj­örðum króna á árinu 2018 og hækk­uðu um 900 millj­ónir króna þrátt fyrir að starfs­fólki hefði fækk­að. Frá árinu 2016 hafa greiðslur til starfs­fólks Kaup­þings auk­ist um 1,9 millj­arð króna en starfs­fólk­inu sjálfu fækkað úr 30 í 17.

1.216 millj­ónir króna í laun í fyrra. Alls námu greiðslur til starfs­manna félags­ins, sem voru 17 tals­ins, í heild rúm­lega 3,5 millj­örðum króna á árinu 2018 og hækk­uðu um 900 millj­ónir króna þrátt fyrir að starfs­fólki hefði fækk­að. Frá árinu 2016 hafa greiðslur til starfs­fólks Kaup­þings auk­ist um 1,9 millj­arð króna en starfs­fólk­inu sjálfu fækkað úr 30 í 17.

Greint var frá því fyrir þremur árum síðan að um 20 manna hóp­ur lyk­il­­starfs­­manna Kaup­­þings gæti fengið allt að 1,5 millj­­arða króna til að skipta á milli sín ef hámörkum á virði óseldra eigna Kaup­­­þings myndi nást. Næð­ust mark­miðin átti að greiða út bón­us­greiðsl­­­urnar eigi síðar en í apríl 2018.

Lang­stærsta óselda eign Kaup­­­þings á þeim tíma var 87 pró­­­sent hlutur félags­­­ins í Arion banka, sem nú hefur verið seld að öllu leyti eftir að bank­inn var skráður á mark­að. Umræddar bón­us­greiðslur áttu ein­ungis að ná til starfs­­­manna Kaup­­­þings, ekki stjórn­­­­­ar­­­manna og ráð­gjafa sem unnið höfðu fyrir félag­ið. Greiðslur til þeirra áttu að koma til við­­­bótar því sem greidd­ist til starfs­­­manna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár