Hillary birtir læknisvottorð sitt

Hillary Clinton freistar þess að eyða efasemdum um heilsu hennar, með því að birta læknis­vottorð. Hún hleður nú batteríin fyrir síðasta slaginn við Trump.

Hillary Clinton, fram­bjóðandi Demókrata í kosningunum í Banda­ríkjunum, hefur birt vottorð frá Lisu Bardack lækni hjá CareMount Medical, þar sem stendur skýrum stöfum að Hillary sé hæf til að starfa sem forseti Banda­ríkjanna. Í bréfinu segir enn fremur að hún hafi fengið sýkingu í eyra, áður en hún greindist með lungna­bólgu, en hafi fengið lyf til að vinna á henni og það hafi gengið vel.

Með læknis­vottorðinu vill Clinton eyða vafa um það, að hún sé ekki hæf til að starfa sem forseti Banda­ríkjanna vegna heilsu­brests. Frá því hún þurfti að yfirgefa minningar­athöfn um árásirnar 11. september vegna lungna­bólgu og ofhitnunar þá hefur verið hávær orðrómur uppi um það, að hún sé ekki við góða heilsu. Demó­kratar funduðu um stöðu mála, eftir að Hillary yfirgaf minningar­athöfnina og fór til læknis, en fljótlega varð ljóst að hún glímdi við flensu og lungna­bólgu, og þurfti á hvíld að halda. Alvarlegra var það ekki.

Donald J. Trump, andstæðingur hennar í röðum Repúblikana, hikaði ekki við að skjóta því fram í umræðuna, að Hillary væri veikburða jafnvel þó hún væri yngri en „gamlinginn“ hann sjálfur, eins og hann komst sjálfur að orði. Hillary er 68 ára gömul en Trump sjötugur.

Í bréfi frá Bardack lækni, kemur fram að hún hafi gengist undir hefð­bundna læknis­skoðun þar sem blóð­þrýstingur var mældur og almenn heilsa könnuð. Ekkert alvarlegt hafi komið í ljós.

Hillary hefur nokkurt forskot á Trump í flestum skoðana­könnunum, nú þegar um sjö vikur eru til kosninga, en þó er jafnt á munum í mörgum ríkjum. Samkvæmt könnun CNN frá því í gær hefur Trump tekið fram úr Hillary í Ohio. Spennandi loka­sprettur er framundan, og hefur Hillary sagt að hún ætli sér að hlýða læknum í þetta skiptið, hvíla lúin bein og koma tvíefld inn í loka­sprettinn.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár