Viðbúnaðarstig í Bretlandi hækkað

Fimm þúsund manna lið breska hersins hefur verið kallað út.

Theresa May,forsætis­ráðherra Bretlands, upplýsti á fréttamanna­fundi á níunda tímanum í kvöld að viðbúnaðar­stig í Bretlandi hefði verið sett á hæsta stig. Kosninga­baráttu hennar, vegna þing­kosninga í sumar, hefur verið frestað. 

Samtals létust 22 og um 60 slösuðust í sjálfsmorðs­árás sem beindist gegn börnum og unglingum á tónleikum Ariöndu Grande, í Manchester Arena í gærkvöldi. Hótanir um frekari árásir hafa borist, að sögn breska ríkis­útvarpsins BBC.

Fimm þúsund manna lið hersins hefur verið kvatt til aðstoðar, vegna hækkunar á viðbúnaðar­stigi. May segir að hugsanlega hafi hópur manna staðið að árásinni í Manchester, en málin eru þó enn í rannsókn og eru allar vísbendingar sem berast lögreglu kannaðar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár