Airbnb-gistingum fækkar um fjórðung í Reykjavík

Óskráðum gist­ingum sem greiddar eru í gegnum vef­síður fækk­aði um 26 pró­sent milli júní­mán­aða í ár og í fyrra. Á lands­vísu nam fækk­unin 19 pró­sentum á sama tíma­bili.

Umsvif Airbnb gistinga hefur stórminnkað í Reykjavík miðað við í fyrra
Umsvif Airbnb gist­inga hefur stór­minnkað í Reykja­vík miðað við í fyrra Mynd: Samsett

Áætlaðar óskráðar gistinætur í gegnum vef­síður á borð við Airbnb og Homeaway voru 19% færri síð­ast­lið­inn júní heldur en á sama tíma í fyrra. Mesta breyt­ingin er á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, en þar er áætlað að gistin­óttum hafi fækkað um 26% á tíma­bil­inu. Þetta kemur fram þegar rýnt er í nýbirtar tölur Hagstofu.

Kjarninn fjall­aði í gær um töl­urnar, en sam­kvæmt þeim fækk­aði skráðum gistin­óttum erlendra ferða­manna milli júní­mán­aða 2017 og 2018, en það er í fyrsta skipti sem slíkt ger­ist í heilan ára­tug. Fækkunin var líka sú mesta sem mælst hefur hjá Hag­stof­unni, en töl­urnar ná aftur til árs­ins 1998.

Umræddar tölur ná hins vegar ekki til óskráðra gist­inga, líkt og heimagist­ingar í kringum vef­síð­urnar Airbnb og Homeaway. Frá byrjun síð­asta árs hefur Hagstofa hins vegar áætlað umfang slíkra óskráðra gist­inga, en það gerir hún með hjálp gistin­átta­taln­ing­ar­innar auk nið­ur­staðna úr landamæra­rann­sókn erlendra ferða­manna sem fram­kvæmd er í Flugstöð Leifs Eiríks­sonar.

19 prósenta fækkun á Íslandi

Samkvæmt áætl­unum Hagstofu voru óskráðar gistinætur sem greiddar voru í gegnum vef­síður um 191 þús­und tals­ins í júní síð­ast­liðnum. Þetta er 19% færri gist­ingar en áætl­aðar voru fyrir júní 2017, en þá var talið að þær næmu 234 þús­undum.

Hins vegar er breyt­ingin milli júní­mán­aða mis­jöfn eftir lands­hlutum. Til að mynda juk­ust óskráðar gist­ingar um 6 pró­sent á Vest­ur­landi og dróg­ust lít­il­lega saman um 3 pró­sent á Aust­ur­landi. Á Suð­ur­landi og Norð­ur­landi vestra dróg­ust þær einnig saman um 5-6 pró­sent, en sam­drátt­ur­inn nam 10 pró­sentum á Suð­ur­nesjum og 14 pró­sentum á Norð­ur­landi eystra. Á Vest­fjörðum fækk­aði óskráðum gist­ingum um 18 pró­sent, en mest var fækk­unin á höf­uð­borg­ar­svæð­inu þar sem hún nam rúmum 26 pró­sentum milli júní­mán­aða 2017 og 2018.

Hefur áhrif á fasteignaverð

Mikið hefur verið rætt um áhrif Airbnb á leigu-og gisti­markað hér á landi, en sam­kvæmt skýrslu Íslands­banka sem birt var í apríl síð­ast­liðnum er talið að hlut­deild vef­síð­unnnar á gisti­þjón­ustu­mark­aði nemi um 30 pró­sentum. Hlut­deildin hefur vaxið hratt á und­an­förnum árum, en Íbúða­lána­sjóður ályktaði í skýrslu sinni fyrr í sumar að svokölluð Airbnb-væð­ing ferða­þjón­ust­unnar hafi aukið við­náms­þrótt grein­ar­innar gagn­vart ytri áföllum á kostnað stöð­ug­leika á íbúða­mark­aði. Þar að auki taldi sjóð­ur­inn aukin skamm­tíma­leiga í gegnum heima­síð­una hafa haft tölu­verð áhrif á hækkun fast­eigna­verðs hér­lendis á árunum 2015-2017.

„Öryggisventill“ fyrir ferðamannaiðnaðinn

Hag­fræð­ingur á vegum OECD sagði heimagist­ingu, eins og þá sem Airbnb býður upp á, vera heppi­lega fyrir íslenska hag­kerfið á blaða­manna­fundi í fyrra. Samkvæmt honum virk­uðu Airbnb-gist­ingar eins og „örygg­is­vent­ill“ fyrir ferða­manna­iðn­að­inn, þar sem sveigj­an­legt eðli hennar geri ferða­þjón­ust­una betur í stakk búna til að taka á móti breyti­legum fjölda ferða­manna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

2
Viðtal

Ef við kveðjum tungu­málið, þá týnum við vídd draumanna

Í sögu íslenskra bók­mennta í þús­und ár er lögð áhersla á raddir inn­flytj­enda, þá sem nú. Höf­und­ur­inn, Halldór Guð­munds­son, öðl­að­ist tveggja heima sýn ungur í Þýska­landi. Að læra lat­ínu frá 10 ára aldri lam­inn af kenn­ara sem skildi hann ekki, í sárum eftir heims­styrj­öld. Seinna spurði hann sig: „Hver má tala?" Í dag segir hann: „Íslend­inga­sögur dags­ins í dag eru að hluta til sagðar af fólki sem hingað hefur flutt."

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

5
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár