Airbnb bætir ferðaþjónustu á kostnað íbúðamarkaðs

Umfang gisti­þjón­ustu­vefs­ins Airbnb hefur aukið sveigj­an­leika ferða­þjón­ust­unnar á Íslandi en hækkað íbúða­verð. Einnig verða sveit­ar­fé­lögin af miklum fjár­hæðum vegna rangrar skrán­ingar margra íbúð­anna.

Íbúðalánasjóður telur Airbnb hafa margvísleg áhrif á íslenskt efnahagslíf.
Íbúða­lána­sjóður telur Airbnb hafa marg­vís­leg áhrif á íslenskt efna­hags­líf. Mynd: Samsett

Aukning Airbnb-gist­ingar virð­ist hafa aukið sveigj­an­leika ferða­þjón­ust­unnar á Íslandi, en dregið úr stöð­ug­leika á íbúða­mark­aði á sama tíma. Þar að auki er metið að sveit­ar­fé­lög verði af hund­ruðum millj­ónum króna á ári hverju vegna rangrar skrán­ingar Airbnb-íbúða í stöðugri útleigu. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu hag­deildar Íbúða­lána­sjóðs um stöðu Airbnb á Íslandi.

Í skýrsl­unni er farið yfir umfang Airbnb-gist­ingar á Íslandi, en í mars síð­ast­liðnum voru skráðar um 6.300 gisti­ein­ingar á síð­unni. Þar af taldi Íbúða­lána­sjóður að 1.400 íbúðir og 500 stök her­bergi voru í stöðugri útleigu og ekki í hefð­bund­inni notkun sem íbúð­ar­hús­næði. Sú tala virð­ist hafa minnkað tölu­vert, en í ágúst í fyrra má ætla að hátt í 2.000 íbúðir og 800 her­bergi voru í stöðugri útleigu á Airbnb.[adspot]

30% skráðra íbúða og her­bergja á Airbnb voru stað­sett í mið­borg og vest­urbæ Reykja­víkur, 37% ann­ars staðar á höf­uð­borg­ar­svæð­inu og 34% utan höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins. Samkvæmt gögnum Airdna er Reykja­vík í öðru sæti meðal helstu höf­uð­borga í Vestur- og Suður- Evrópu þegar kemur að fjölda Airbnb-skrán­inga miðað við höfða­tölu, en þær séu aðeins fleiri í Lissabon.

[links]Árið 2016 voru vergar tekjur af útleigu á Airbnb hér á landi um 9,4 millj­arðar, en í fyrra voru þær um 19,7 millj­arðar. Vöxtur tekn­anna hefur því numið 110% milli ára. Gistin­óttum á vegum Airbnb hefur einnig fjölgað, en sam­kvæmt skýrsl­unni hefur aukn­ing hennar að stórum hluta staðið undir miklum vexti í gist­ingu erlendra ferða­manna und­an­farin tvö ár. Þær tölur séu í ósam­ræmi við þá umræðu innan ferða­þjón­ust­unnar að fjölgun erlendra far­þega um Kefla­vík­ur­flug­völl hafi ekki skilað sér í fjölgun gistin­átta.

Hefur áhrif á fasteignaverð

Íbúða­lána­sjóður ályktar að svokölluð Airbnb-væð­ing ferða­þjón­ust­unnar hafi aukið við­náms­þrótt grein­ar­innar gagn­vart ytri áföllum, en hafi gert það að nokkru leyti á kostnað stöð­ug­leika á íbúða­mark­aði. Skamm­tíma­leiga íbúða hafi auk­ist tölu­vert á und­an­förnum árum, en það valdi ruðn­ings­á­hrif á fast­eigna­mark­að­inn og hækki fer­metra­verð. Samkvæmt útreikn­ingum skýrsl­unnar eru upp­söfnuð áhrif Airbnb-gist­ingar á hækkun fast­eigna­verðs á Íslandi árin 2015-2017 metin allt að 5-9 pró­sentu­stig.

Skráningu ábótavant

Einnig er skrán­ingu á íbúðum í stöðugri Airbnb-útleigu ábóta­vant, en í skýrsl­unni er gert ráð fyrir að að minnsta kosti 60% þeirra séu ekki skráð sem atvinnu­hús­næði, þrátt fyrir að lög um gisti­staði krefj­ist þess. Hagdeild Íbúða­lána­sjóðs metur svo að sveit­ar­fé­lög verði árlega af hund­ruðum millj­óna króna vegna þess­arar mis­skrán­ingar, jafn­vel yfir millj­arði, í formi fast­eigna­gjalda vegna Airbnb-íbúða.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

íbúðahúsnæði

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár