Airbnb er „öryggisventill fyrir ferðamannaiðnaðinn“

Hag­fræð­ingur á vegum OECD segir Airbnb virka sem örygg­is­vent­ill fyrir ferða­manna­iðn­að­inn á Íslandi sökum sveigj­an­leika heimagist­ingar.

Hópur OECD lítur jákvæðum augum á heimagistingarfyrirtækið Airbnb
Hópur OECD lítur jákvæðum augum á heimagist­ing­ar­fyr­ir­tækið Airbnb Mynd: EPA.

Douglas Suther­land, hag­fræð­ingur á vegum OECD, segir Airbnb virka sem örygg­is­vent­ill fyrir ferða­manna­iðn­að­inn. Þetta kom fram á blaða­manna­fundi full­trúa OECD og fjár­mála­ráð­herra á Arn­ar­hváli í gær.

Á blaða­manna­fund­inum voru nið­ur­stöður úr skýrslu OECD um efna­hags­á­standið á Íslandi kynntar, en þar er meðal ann­ars gerð grein fyrir vax­andi verð­lagi á hús­næð­is­mark­aði. Samkvæmt skýrsl­unni má skýra hátt hús­næð­is­verð með fram­boðs­skorti á íbúðum vegna of lít­illar fjár­fest­ingar og ógn­ar­hraða vaxtar ferða­manna­iðn­að­ar­ins.

Hækkun á hús­næð­is­verði er talið áhyggju­efni í skýrsl­unni, þar sem það er talið auka verð­bólgu­þrýst­ing hér á landi, sem hald­ist þó lág vegna utan­að­kom­andi aðstæðna. Einnig hafi hús­næð­is­verð orðið hærra en lág­tekju­fólk ráði við, jafn­vel fyrir verð­hækkun und­an­far­inna miss­era hafi kostn­að­ar­byrði hús­næðis meðal lág­tekju­fólks hafi verið ein sú hæsta á Íslandi meðal OECD-landa.

Jafnvel fyrir nýlegar verð­hækk­anir á íbúða­mark­aði var kostn­að­ar­byrði vegna hús­næðis meðal lág­tekju­fólks ein sú hæsta meðal OECD-landa. Hins vegar er það mat skýrsl­unnar að fram­boðs­aukn­ing hús­næðis sé í vændum og komi til með að létta á þeirri spennu sem ríkir á mark­aðnum.

Aftur á móti þykir áhyggju­efni að útleigj­endur Airbnb- íbúða greiði til­tekna skatta. Í sumum löndum sjái fyr­ir­tækið sjálft um að inn­heimta þá til yfir­valda, en það sé ekki enn gert hér á landi. Skýrslu­höf­undar leggja til að tíma­tak­mörkun á útleigu íbúða, svokölluð 90 daga regla, verði end­ur­skoðuð ef raunin er sú að hún leiði til minni sam­keppni á mark­aðnum.

[links]Douglas Suther­land, hag­fræð­ingur OECD-hóps­ins, sagði heimagist­ingu vera heppi­lega fyrir hag­kerfið þar sem hún virk­aði sem örygg­is­vent­ill fyrir ferða­manna­iðn­að­inn. Sveigj­an­legt eðli heimagist­ingar geri hana betur í stakk búna til að taka á móti breyti­legum fjölda ferða­manna. Þar að auki hafi hótel stærri vist­spor og geta skapað sjá­an­leg „ör” í umhverfið ef ferða­manna­fjöld­inn minnkar.

Á blaða­manna­fundi í gær sagði hópur á vegum OECD það vera Íslandi að ákveða hvort banna ætti heimagist­ingar í mið­borg Reykja­víkur, þar sem aðrar ástæður getu legið að baki því en efna­hags­legar. Hins vegar bentu þeir á að fyr­ir­tæki líkt og Airbnb hefðu í grunn­inn góð áhrif á hag­kerfið. Jákvæð við­horf í garð fyr­ir­tæk­is­ins má einnig finna í skýrslu OECD, en þar segir að bönn á heimagist­ingu, líkt og sett hafa verið í Barcelona, séu íþyngj­andi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár