„Börnin fengu ekki að borða af því að ég var alltaf að skrifa“

Elísabet Kristín Jökuls­dóttir er skáld, rithöfundur og leikskáld. Bækur hennar hafa hlotið viður­kenn­ingar, verðlaun og tilnefningar. Elísabet flutti úr vesturbæ Reykja­víkur á síðasta ári og segist hafa verið í sorgar­ferli í níu mánuði vegna flutninga en ekki hafa áttað sig á því fyrr en daginn sem hún vaknaði laus við sorgina. Nú vill hún hvergi annars staðar vera.

Elísabet fæddist árið 1958, dóttir Jóhönnu Kristjóns­dóttur blaðakonu og Jökuls Jakobs­sonar

leik­skálds. Hún bjó á Seltjarnarnesi fyrstu tíu ár lífs síns, fyrir utan eitt ár sem fjöl­skyldan bjó í Grikk­landi. Foreldrar hennar ákváðu að flytja þangað í von um að bjarga hjóna­bandinu, sem gekk þó ekki og skildu þau eftir að heim til Íslands var komið. Hún segir bernsku sína hafa verið stöðuga frjóvgun og ekki síst vegna Grikk­lands­dvalarinnar, þar hafi hún upplifað nýtt bragð- og lyktar­skyn, séð mandarínur vaxa á trjánum og brotið hnetur á tröppunum heima hjá sér. 

„Barnæskan er tíminn sem sálin frjóvgast, ef vel er á spöðunum haldið. Hún er stöðug frjóvgun. Svo getur nátt­úrlega lokast fyrir þessa frjóvgun þegar maður kemst á fullorðinsár eða byrjar í skóla. Ég held að ég hafi verið svo heppin að hafa náð aftur í barnið í mér. Kannski er það þess vegna sem mér finnst ég vera …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár