Einn af frumkristnu söfnuðunum: Ofsótt fyrir að vera kynóðir nautnabelgir

Kirkju­feður á borð við Klemens og Íreneus börð­ust af krafti gegn fylg­is­fólki Carpocratesar frá Alex­andríu sem bæði var talið komm­ún­istar og kyns­vall­arar.

Fornar nautnir:
Fornar nautnir: Carpocratar voru komm­ún­istar í þeim skiln­ingi að þeir virð­ast hafa talið að allt ætti að vera sam­eign safn­að­ar­ins. Og þeir virð­ast líka hafa metið lík­am­legar nautnir ekki síður en and­legar, þótt erfitt sé að segja til um slíkt stóð­líf hafi verið stundað á þeirra vegum og and­stæð­ing­arnir héldu fram.

Í dag, föstu­dag­inn langa, er minnst kross­fest­ingar Jesúa frá Nasaret. Því næst verður minnst upp­risu hans frá dauðum en sá atburður varð horn­steinn kirkj­unnar sem læri­sveinar Jesúa reistu, og stendur enn.

Á hitt er þó að líta að sú kirkja sem við þekkjum nú hefði vel getað orðið tölu­vert öðru­vísi. Fyrstu ald­irnar voru til mun fjöl­breyti­legri kristnir hópar en nú er haldið á lofti og einn þeirra óvenju­leg­ustu — í okkar augum — voru hinir svo­nefndu Carpocratar sem spruttu upp í Egifta­landi og náðu tölu­verðri fót­festu bæði í Grikk­landi og Mið­aust­ur­löndum.

Að minnsta kosti töldu kirkju­feður hinnar útbreidd­ustu kirkju­deildar fulla ástæðu til að berj­ast harka­lega gegn þessum hópi.

Carpocratar eru nefndir eftir upp­hafs­manni sínum, Carpocratesi í Alex­andríu. Sonur hans Epifanes er gjarnan sagður hafa skrifað helsta helgi­rit Carpocrata en um son­inn er raunar flest á huldu. Og helgi­ritið er glatað og hið eina, sem vitað er um Carpocrata, kemur úr ritum and­stæð­inga þeirra, kirkju­feðr­anna Klemens og Íreneusar. Því ber að taka öllu sem þar kemur fram með hæfi­legum fyr­ir­vara.

Þó er ljóst að kirkja Carpacrata var í grunn­inn gnostísk en gnostar kall­ast þau sem trúðu því að guð­legt hjálp­ræði væri fólgið í dul­speki­legum leynd­ar­dómum sem ekki væru opin­beraðir hverjum sem var. Fólk þurfti að hafa fyrir því að öðl­ast hinn eina sanna skiln­ing og þekk­ingu á hinum æðra guð­dómi.

Til þess voru brúkaðar ýmsar hinar dýpstu laun­helgar sem tók tíma að ná valdi á þurftu yfir­leitt að fara mjög leynt.

„Frjálsleg“ og jafnvel „ósiðleg“ trú

Gnostískir þættir höfðu all­lengi verið á kreiki í trú­ar­lífi Mið­aust­ur­landa. Sumir gnostar lög­uðu krist­in­dóm­inn að sínum hug­myndum og töldu jafn­vel að kristnin væri í eðli sínu gnostísk trú – því aðeins með laun­helgum gnosta mætti öðl­ast hið sanna and­lega líf með Jesúa frá Nasaret.

Ráðandi öfl í hinni ört vax­andi kristnu kirkju börð­ust frá upp­hafi gegn gnostískum áhrifum á kenn­ingu sína. En gegn fáum var barist af sömu hörku og Carpocrötum. Trú þeirra þótti yfir­máta „frjáls­leg“ og „ósið­leg“, eins og það var orðað í SKAKKA TURNINUM sínum tíma.

Þótt vita­skuld beri að taka með hæfi­legri varúð því sem and­stæð­ingar þeirra halda fram, má þó auð­veld­lega lesa úr skrifum kirkju­feðr­anna nokkur lítt umdeil­an­leg atriði um kenn­ingar og skoð­anir Carpcrata.

Þeir voru til dæmis þeirrar skoð­unar að Jesúa hefði ekki verið guð­legs eðlis, en vegna hrein­leika síns og fag­urs hjarta­lags hefði hann verið í beinu og nánu sam­bandi við Guð. Slíkar hug­myndir voru raunar alþekktar í grískri heim­speki.

Enn fremur töldu Carpocratar að þeir gætu sjálfir kom­ist í að minnsta kosti næstum eins náið sam­band við Guð og Jesúa sjálfur og því væru þeir ekki endi­lega bundnir af lög­máli Gyðinga til lengdar.

Það töldu Klemens, Íreneus og félagar vís­asta veg­inn til glöt­unar – lög­mál­inu yrði að fylgja í stórum dráttum, jafn­vel þótt ýmis­legt úr lög­máli Móse væri lagað að nýjum söfn­uðum þegar krist­in­dóm­ur­inn fór að breið­ast út til ann­arra en Gyðinga.

Kommúnistar — líka í rúminu?

Sömu­leiðis virð­ast Carpocratar hafa verið komm­ún­istar í þeim skiln­ingi að þeir töldu að allir hlutir ættu að vera sam­eign allra í söfn­uð­inum. Kristnir söfn­uðir sem hafa gegnum tíð­ina haldið fram slíkum kenn­ingum hafa á öllum tímum fengið gegn sér sömu mót­bár­una.

„Nú, kon­urnar líka, ha?“ þruma kirkju­feð­urnir og hefj­ast svo handa um að skamma við­kom­andi söfnuð fyrir nautna­hyggju, klám, stóð­líf og almennan dóna­skap.

Og Carpocratar fengu nóg af slíkum gusum frá kirkju­feðr­unum.

Hug­myndir um að allt væri sam­eign safn­að­ar­ins voru algengar meðal ýmissa gnostískra safn­aða í fornöld. Fæstir þeirra munu þó hafa litið á þær hug­myndir fyrst og fremst sem afsökun fyrir því að allir mættu hnykkja á öllum, heldur var um að ræða jafn­að­ar­mennsku sem sner­ist mest um frið­ar­þel og sam­vinnu innan safn­að­ar­ins en síður um kyn­líf.

Gagnrýni kirkju­feðr­anna virð­ist þó hafa átt sér þá stoð að Carpocratar hafa að lík­indum verið mun frjáls­lynd­ari í kyn­ferð­is­málum en títt var um meg­in­straums­kirkj­una. Þeir virð­ast hafa lagt áherslu á lífs­gleði og fjör fremur en að lífið væri ein­tómur tára­dalur. Þeir voru til dæmis frægir fyrir mjög lit­ríkar og glað­legar helgi­myndir.

Ekki var öll sagan sögð. Carpocratar munu líka hafa trúað á ein­hvers konar end­ur­holdgun.

Nauðsynlegt að öðlast ALLA reynslu

Sú trú fól í sér að mað­ur­inn losn­aði ekki úr jarð­líf­inu fyrr en hver ein­stak­lingur hefði reynt bók­staf­lega allt sem hægt væri, bæði gott og slæmt. Því lögðu Karpókratar sig fram um að öðl­ast alla reynslu sem hægt var að næla í, góða sem slæma, æski­lega sem óæski­lega.

Eins og fyrri dag­inn höfðu hinir sið­prúðu kirkju­feður mestar áhyggjur af því að þar á meðal væru allar nautnir og einkum þó öll kyn­lífs­reynsla sem hug­mynda­flugið náði til. Þeir lægju altso með hverjum sem er, af hvaða kyni sem væri, hnussuðu Klemens og Íreneus.

Þarna fengu þeir því annað vopn upp í hend­urnar til að berja á Carpocrötum fyrir ósið­semi.

Barátta kirkju­feðr­unum gegn Carpocrötum varð árang­urs­rík. Þessi lit­ríki frum­kristni söfn­uður varð undir í lífs­bar­átt­unni og hin sið­prúða kirkja varð ofan á. Talið er að síð­ustu Carpocratar hafði horfið úr sög­unni á sjöttu öld.

Kjósa
23
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Flækjusagan

Mest lesið

4
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár