Nýr Brexit-samningur samþykktur

Boris Johnson, for­sæt­is­ráð­herra Bret­lands, og Jean-Clau­de Juncker, for­seti fram­kvæmda­stjórn­ar Evr­ópu­sam­bands­ins, til­kynntu í morgun að nýr útgöngu­samn­ingur milli Bret­lands og Evr­ópu­sam­bands­ins væri í höfn.

Boris Johnson, forsætisráðherra Breta.
Boris Johnson, for­sæt­is­ráð­herra Breta. Mynd: EPA

Bor­is John­son, for­sæt­is­ráð­herra Bret­lands, til­kynnti í morgun að nýr samn­ingur um Brexit væri í höfn. Samn­ing­ur­inn verður bor­inn und­ir breska þingið á laug­ar­dag og hvet­ur John­son ráð­herra til að sam­þykkja hann.

Jean-Clau­de Juncker, for­seti fram­kvæmda­stjórn­ar Evr­ópu­sam­bands­ins, stað­fest­ir að samn­ing­ur sé í höfn á Twitter og seg­ir hann vilja beggja aðila til að semja hafa skilað sér. Þá seg­ir hann samn­ing­inn sann­gjarn­an og að tekið hafi verið til­lit til óska Bret­lands jafnt sem Evrópu. Juncker seg­ist jafn­framt ætla hvetja leið­toga­ráð Evr­ópu­sam­bands­ins til að taka vel í samn­ing­inn.

Lýð­ræð­is­legi sam­bands­flokk­ur­inn á Norður-Írlandi, DUP, sem stutt hefur stjórn breska Íhalds­flokks­ins á þing­inu lýsti því yfir í morgun að flokk­ur­inn væri and­vígur nýjum samn­ingi Johnson. Helsta ágrein­ing­ar­efnið í við­ræð­unum hefur snúið að mál­efnum Norður-Írlands og staða svæð­is­ins eftir Brexit.

Þá hefur Jeremy Corbyn, leið­togi breska Verka­manna­flokks­ins, hvatt breska þingið til að hafna samn­ingnum. Hann segir samn­ing­inn ekki vera til þess fall­inn að sam­eina bresku þjóð­ina, sem eigi að fá að tjá hug sinn í atkvæða­greiðslu.

Breska þingið hefur verið kallað til fundar á laug­ar­dag en þá þarf Johnson að fá breska þingið til að sam­þykkja hann. Bæði breska þingið og þing aðild­ar­ríkja þurfa þó að stað­festa samn­ing­inn áður en hann öðl­ast gildi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

2
Viðtal

Ef við kveðjum tungu­málið, þá týnum við vídd draumanna

Í sögu íslenskra bók­mennta í þús­und ár er lögð áhersla á raddir inn­flytj­enda, þá sem nú. Höf­und­ur­inn, Halldór Guð­munds­son, öðl­að­ist tveggja heima sýn ungur í Þýska­landi. Að læra lat­ínu frá 10 ára aldri lam­inn af kenn­ara sem skildi hann ekki, í sárum eftir heims­styrj­öld. Seinna spurði hann sig: „Hver má tala?" Í dag segir hann: „Íslend­inga­sögur dags­ins í dag eru að hluta til sagðar af fólki sem hingað hefur flutt."

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

5
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár