Þinghúsinu í Washington lokað vegna „öryggisógnar”

Starfs­menn þing­hússins í Washington fengu skilaboð um að halda sig frá gluggum og ef þeir væru úti að leita sér skjóls. Að minnsta kosti einn maður hefur verið skotinn fyrir utan húsið.

Þinghúsið í Washington.
Þing­húsið í Washington. Mynd: EPA

Að minnsta kosti einn var skotinn í nágrenni við þinghúsið í Washington í dag. Þing­lögreglan hefur lokað húsinu og næsta nágrenni þess. Starfs­mönnum í þing­húsinu fengu send skilaboð um að þeir mættu ekki yfirgefa það og voru beðnir að halda sig fjarri gluggum. Þeir starfs­menn sem voru úti voru beðnir að „leita skjóls“. Fréttir af vettvangi eru enn óljósar en mikill viðbúnaður er alla daga við þinghúsið eftir að hundruðum manna tókst að brjótast inn í það fyrir um þremur mánuðum síðan. Mann­söfnuður sem hlýddu á ræðu forsetans sem tapað hafði kosningunum, Donald Trump, ruddist inn í þinghúsið.

Þing­lögreglan segir að um öryggisógn utan veggja þing­hússins sé að ræða. AP-frétta­stofan hefur eftir lögreglu­manni að bíl hefði verið ekið á tvo lögreglu­menn við öryggis­girðingar hússins. Ökumaður bílsins var skotinn og er í lífshættu. Annar lögreglu­maðurinn er sagður alvarlega slasaður.

Nýverið voru ytri öryggis­girðingar við þinghúsið teknar niður í tilraun til að opna svæðið aftur að hluta fyrir almenningi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár