Nemendur fengu frí til að fara á fyrirlestur stóriðjufyrirtækja

Nemendur Fjölbrauta­skóla Vestur­lands á Akranesi fengu frí frá tíma til að hlusta á fyrir­lestur fulltrúa Elkem og Norðuráls. Fulltrúar fyrir­tækjanna fjölluðu fyrst og fremst um hve umhverfis­sinnuð félögin eru.

FVA
FVA Nem­end­urnir fengu frí í tíma til að hlusta á upp­lýs­inga­full­trúa Fjarð­ar­áls.

Fyrir rúmri viku síðan var öllum nemendum á unglinga­stigi Fjölbrauta­skóla Vestur­lands safnað saman í matsal skólans til að hlýða erindi um íslenskt atvinnulíf á vegum Háskólans á Bifröst. Nemendur hlustuðu á erindi fulltrúa Elkem og Norðuráls í hádegishlé sínu. Nemendur fengu enn fremur frí í næstu kennslu­stund eftir hádegishlé til að hlusta á erindin. Meðal efnis var kynning upplýsinga­fulltrúa álvers Norðuráls á því hversu umhverfisvæn starfsemin væri.

Ágústa Elín Ingþórs­dóttir skóla­meistari segir að erindin hafi verið haldin í hádegishlé í matsal og ekki verið skyldu­mæting. 

Nota minna rafmagn en almenningur

Frétta­tilkynning var gefin út vegna fyrir­lestranna af Háskólanum á Bifröst sem bar fyrir­sögnina „Ísskápur fullur af áli“. Í þessari frétta­tilkynningu er haft eftir brot af ræðum starfs­manna stór­iðju­fyrir­tækjanna. „Elkem á Íslandi er hluti af sterkri alþjóðlegri heild, Elkem AS, sem er einn af helstu fram­leiðendum heims á málm­blendi. Við fram­leiðum hágæða kísiljárn og leggjum mikla áherslu á að mæta kröfum viðskipta­vina okkar. Framleiðslu­geta málm­bræðsluofna verksmiðjunnar eru 120.000 tonn. Við leitumst eftir að innleiða vinnu­ferla sem lágmarka áhrif á umhverfið og notum til að mynda ekki mikla raforku saman­borið við álver og almenning til dæmis,“ er haft eftir fulltrúum Elkem, Örvari Sveins­syni og Róbert Gunnars­syni.

„Ísskápur fullur af áli“

Fréttatilkynning
Frétta­tilkynning Hér má lýsingu Háskólans á Bifröst á viðburðinum.
 

Því næst tók til máls upplýsinga­fulltrúi Norðuráls, Sólveig Bergmann, og vakti hún athygli nemenda á því hve víða ál væri að finna í nærumhverfi þeirra eins og því er lýst í tilkynningu. „Ál er frumefni og það má endur­vinna nær endalaust án þess að það tapi eigin­leikum sínum, ál er af þessum sökum oft kallað græni málmurinn. Ál er að finna mjög víða, ef þið lítið inn í ísskápinn heima hjá ykkur þá er mjög líklegt að hann sé fullur af áli en það er notað í umbúðir sem er að finna utan um ýmsar matvörur. Álið er notað til að auka endingar­tíma vörunnar. Ál er einnig mikið notað í bíla en það er helmingi léttara en aðrir málmar og þegar bíll léttist þá eyðir hann minna eldsneyti og er fyrir vikið mun umhverfis­vænni,“ var haft eftir Sólveigu.

„Ál er af þessum sökum oft kallað græni málmurinn.“

Hugsað sem starfskynning

Ágústa Elín segir að erindi full­trúanna hafi verið hugsað sem starfs­kynning. „Þetta var kynning í sal í frímínútum og var í framhaldi af skóla­kynningu um íslenskt atvinnulíf hérna í skólanum. Þetta er bara kynning í frímínútum. Ég var nú ekki sjálf þarna stödd og veit því ekki hvernig þetta var nákvæmlega. Þetta var unnið í samstarfi við Háskólann á Bifröst. Þeir hafa verið á faralds­fæti með þessa sýningu í framhalds­skólum. Þetta eru fleiri, fleiri fyrirtæki þannig að þetta er mjög sniðugt concept,“ segir Ágústa.

„Þetta voru bara tvö fyrirtæki, þessi stóru á svæðinu“

Hins vegar voru Elkem og Norðurál einu fyrir­tækin sem fluttu fyrir­lestur fyrir nemendur. „Það var fulltrúum fyrir­tækja boðið sem eru í nánasta umhverfi til að fylgja þessu betur eftir. Þetta voru bara tvö fyrirtæki, þessi stóru á svæðinu [...] Þetta er aðallega starfs­fræðsla og þannig var þetta hugsað. Þetta getur alltaf farið út í [lofræðu] en hugmyndin er að þetta sé starfa­kynning fyrir nemendur og svo líka til að leggja áherslu á þessi fyrirtæki sem eru í nánasta umhverfi til að kynna fyrir nemendum fjöl­breytt störfin,“ segir Ágústa Elín.

Nýútskrifaður nemi úr skólanum, sem Stundin ræddi við, undrast að stór­iðju­fyrirtækin fái slíkan aðgang að nemendum, en hann segir slíkt ekki hafa tíðkast.

„Það sem mér finnst býsna merkilegt er að nemendum var smalað inn á sal. Ég man ekki til þess að þetta hafi gerst meðan ég var nemi við skólann þegar Háskólar eða því um líkt komum í heimsókn,“ segir hann.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár