Nova stefnir á markað í byrjun sumars – Nýir hluthafar eignast 36 prósent

Nýir hluthafar hafa eignast um 36 prósenta hlut í fjarskipta­félaginu Nova, sem ætlar sér inn á aðal­markað Kaup­hallar fyrir mitt ár. Trúnaður ríkir um verðið sem greitt var fyrir rúmlega þriðjungs­hlut í félaginu.

Margrét Tryggvadóttir er forstjóri Nova.
Margrét Tryggva­dóttir er for­stjóri Nova. Mynd: Aðsend

Fjarskipta­fyrirtækið Nova stefnir á skráningu á aðal­markað Kaup­hallarinnar á fyrri helmingi ársins og segir frá því í frétta­tilkynningu í dag að undir­búningur að skráningu sé hafinn. Félagið hefur gengið frá hlutafjár­aukningu, sem ætlað er að styðja við framtíðar­vöxt félagsins og áfram­haldandi fjár­festingar „svo félagið viðhaldi forskoti sínu í fram­úrskarandi þjónustu til viðskipta­vina sinna.“

Samhliða hlutafjár­aukningunni hafa núverandi hluthafar selt hluta af eign sinni í félaginu og eignast nýir hluthafar um 36 prósent hlut í félaginu. Í tilkynningu segir að meðal nýrra hluthafa séu sjóðir í rekstri Stefnis, Íslands­sjóða og Lands­bréfa.

Margrét Tryggva­dóttir forstjóri Nova segir aðspurð í samtali við Kjarnann að trúnaður ríki um kaupverð þeirra hluta sem nýverið hafa verið seldir og að ekki sé mögulegt að fá hluthafalista félagsins afhentan strax, en í tilkynningu Nova segir að hluthafalisti ásamt ársreikningi og ítarlegri fjárhags­upplýsingum verði birtur í aðdrag­anda útboðsins.

Spennt fyrir skráningu

Í tilkynningunni frá Nova er haft eftir Margréti að vel heppnuð markaðs­setning, góð þjónusta og forysta í innleiðingu nýjustu tækni hafi skilað Nova sterkri markaðs­hlutdeild og ánægðum og tryggum viðskipta­vinum.

„Allir þessir þættir ásamt einstökum hópi starfs­fólks hefur skilað félaginu miklum ávinningi og tekju­vexti undan­farin ár. Við fögnum því að fá góðan liðstyrk inní eigenda­hópinn og erum spennt fyrir því að stíga það skref að skrá félagið á markað. Með skráningu félagsins fjölgar tækifærum fjárfesta til að koma að uppbyggingu fjarskipta­innviða á Íslandi,“ er einnig haft eftir Margréti í tilkynningu félagsins.

Fjár­festinga­félagið Pt Capital, sem er með höfuð­stöðvar sínar í Alaska í Banda­ríkjunum, er stærsti eigandi Nova. Hugh Short, forstjóri Pt Capital og stjórnar­formaður Nova, segir ánægju ríkja með nýja hluthafa. Í tilkynningu Nova er haft eftir Short að Pt Capital og Nova hlakki til að vinna með nýjum hluthöfum í átt að frekari vaxtar­tækifærum og til að styðja við skráningu á markað.

„Nova hefur sýnt stöðugan vöxt á fjarskipta­markaði og hefur náð sterkri markaðs­hlutdeild þar. Okkar stefna er að virkir innviðir fjarskipta­kerfis okkar séu í eigu Nova. Fyrir­tækið stefnir á fram­haldandi vöxt og frekari stuðning við uppbyggingu á 5G fjarskipta­kerfi,“ er einnig haft eftir Short.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár