Fer fram á endurtalningu í helstu barátturíkjunum

Jill Stein, fram­bjóðandi Græningja í forseta­kosningunum í Banda­ríkjunum, lagði gær fram formlega beiðni um endur­talningu atkvæða í Wisconsin ríki. Það er eitt þeirra þriggja ríkja þar sem afar mjótt var á munum milli Donald Trump og Hillary Clinton, en eins og alkunna er þá sigraði Trump í kosningunum, þrátt fyrir að Hillary hafi fengið meira en tveimur milljónum fleiri atkvæði enn hann. Trump fékk 61 milljón atkvæða, en Hillary ríflega 63 milljónir.

Donald Trump fékk meirihluta atkvæða í öllum ríkjunum þremur, Wisconsin, Pennsylvaníu og Michigan. Stein hefur sagst hafa gögn um það að rússneskir tölvu­hakkarar kunni að hafa hagrætt úrslitunum Trump í hag, en

AFP frétta­stofan greindi frá því í gær að kjör­stjórn Wisconsin sé að undirbúa endur­talningu atkvæða um allt ríkið. Talningu eigi að vera lokið þrettánda desember í síðasta lagi. Stein hefur sagst einnig ætla að fara fram á endur­talningu í Michigan og Pennsylvaníu.

Stein segist hafa náð að safna 4,8 milljónum bandaríkja­dala og stefnir að því að safna sjö. Hún hefur þar til á miðvikudag í næstu viku til að fara fram á endur­talningu í hinum ríkjunum tveimur.

Haukur Arnþórsson, sérfræðingur í rafrænni stjórn­sýslu, sagði í grein á vef Kjarnans 24. nóvember síðastliðinn, að það væri mögulegt fyrir hakkara að hafa áhrif á rafrænar kosningar en mögu­leikinn væri þó lítill. „Fimmtán ríki í BNA reka kosn­inga­kerfi án papp­írs­slóð­ar. Sér­fræð­ingar í tölvu­tækni hafa dregið í efa öryggi taln­ing­ar­innar í þeim ríkjum í nýaf­stöðnum for­seta­kosn­ingum og bent á að Clinton hafi komið verst út þar sem þau eru not­uð. Þeir telja að hag­ræð­ing nið­ur­staðna geti numið 7%. Úrslit í Wiscons­in, Michigan og Penn­syl­vania réðu nið­ur­stöðum kosn­ing­anna og bein­ist athyglin því að þeim. Meðal sér­fræð­ing­anna eru áður­nefndur J. Alex Hald­erman og kosn­inga­rétt­ar­lög­mað­ur­inn John Bon­i­faz. Þeir hafa lagt til að kosn­ing­arnar verði kærðar og kraf­ist end­ur­taln­ingar og rann­sóknar á fram­kvæmd þeirra [...] Afar ósenni­legt er að end­ur­taln­ing og rann­sókn á kosn­inga­mis­ferli í raf­ræna kerf­inu breyti nið­ur­stöð­um. Lík­leg­ast er að tor­tryggnin í garð þess auk­ist og lögð verði áhersla á papp­írs­slóð og taln­ingu kjör­seðla eftir á. Enda má rök­styðja að upp­lýs­inga­tæknin ein og sér ráði ekki við verk­efnið leyni­legar kosn­ing­ar,“ sagði Haukur meðal annars í grein sinni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár