Ríkisútvarpið segir upp húsvörðum og semur við Securitas

Hag­ræð­ing­ar­að­gerðir halda áfram hjá RÚV.

Ríkisútvarpið
Rík­is­út­varpið Mynd: Kristinn Magnússon

Tveimur hús­vörðum hefur verið sagt upp hjá Rík­is­út­varp­inu og hefur þeim verið boðið að starfa fyrir Securitas í stað­inn. Samkvæmt skipu­lags­breyt­ingum mun Rík­is­út­varpið úthýsa hús- og örygg­is­vörslu um nætur og helgar.

Fimm hús­verðir starfa hjá Rúv og verða tveir hús­varð­anna áfram í vinnu á dag­inn. Sá fimmti hefur sagt upp störfum. Þeim tveimur sem er sagt upp býðst, sam­kvæmt heim­ildum Stund­ar­innar, að starfa hjá Securitas.

Rík­is­stofn­anir hafa í auknum mæli gripið til þess að úthýsa þjón­ustu. Í fyrra sagði Stjórn­ar­ráðið upp 17 ræst­inga­konum í hag­ræð­ing­ar­skyni og buðu þjón­ust­una út. Að sögn Eflingar eru dæmi um að starfs­menn við ræst­ingar í Stjórn­ar­ráð­inu séu undir lág­marks­launum. 

Land­spít­al­inn hefur einnig úthýst ræst­ing­ar­þjón­ustu sinni. Í fyrra fækk­aði spít­al­inn síðan ræsti­tæknum úr 25 í 12. Starfs­menn ræsti­fyr­ir­tæk­is­ins Hreint kvört­uðu undan bágum kjörum og starfs­að­stæðum í kjöl­far þess. 

Vil­hjálmur Birg­is­son, for­maður Verka­lýðs­fé­lags Akraness, sagði á blogg­síðu sinni að það væri lít­il­mann­legt af rík­inu að spara á lægst laun­uðu starfs­mönnum sínum með úthýs­ingu.

Samkvæmt heim­ildum Stund­ar­innar var hald­inn starfs­manna­fundur í gær þar sem Magnús Geir Þórð­ar­son útvarps­stjóri fór yfir batn­andi horfur í rekstri Rúv.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

2
Viðtal

Ef við kveðjum tungu­málið, þá týnum við vídd draumanna

Í sögu íslenskra bók­mennta í þús­und ár er lögð áhersla á raddir inn­flytj­enda, þá sem nú. Höf­und­ur­inn, Halldór Guð­munds­son, öðl­að­ist tveggja heima sýn ungur í Þýska­landi. Að læra lat­ínu frá 10 ára aldri lam­inn af kenn­ara sem skildi hann ekki, í sárum eftir heims­styrj­öld. Seinna spurði hann sig: „Hver má tala?" Í dag segir hann: „Íslend­inga­sögur dags­ins í dag eru að hluta til sagðar af fólki sem hingað hefur flutt."

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

5
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár