„Miðstýrt hagkerfi“ HÍ sagt óhagkvæmt og koma í veg fyrir nýliðun

Hagfræði­deild Háskóla Íslands er hætt komin, samkvæmt einum af kennurum deildarinnar. Hann segir stöðuna að mörgu leyti tilkomna vegna fjár­veitingar­kerfis háskólans, sem sé miðstýrt og óhagkvæmt.

Fjár­veitingar­kerfi Háskóla Íslands felur í sér mikið óhagræði, sem endur­speglast meðal annars í hvötum til að lágmarka kennslu og miklum halla­rekstri hagfræði­deildar skólans. Þetta skrifar Gylfi Zoega, hagfræði­prófessor við skólann, í nýjasta tölublaði Vísbendingar.

Kaldhæðnisleg örlög hagfræðideildar

Gylfi er einn af sjö fastráðnum kennurum við hagfræði­deild háskólans, en á undan­förnum árum hafa þrír kennarar þar hætt störfum. Þar af hafa tveir þeirra farið á eftirlaun, en einn þeirra, Ásgeir Jónsson, er nú seðla­bankastjóri. Samkvæmt Gylfa er fyrirséð að tveir aðrir kennarar í deildinni fari á eftirlaun á næstu tveimur til þremur árum.

„Þrátt fyrir að mörgu leyti ágætan árangur af starfi hagfræði­deildar þá ber skugga á þegar kemur að fjárhag deildarinnar,“ segir Gylfi og bætir við að það sé kaldhæðnislegt að sú deild sem fjallar um rekstur fyrir­tækja og kostnaðar- og ábata­greiningu hafi verið rekin með halla flest árin frá því hún var fyrst sett á laggirnar.

Þessi halli gerir hagfræði­deildinni erfitt fyrir að bæta við sig starfs­mönnum, þrátt fyrir að kennurum hafi fækkað sem um munar. Vonir standa nú til að hægt verði að ráða einn kennara í viðbót og verða þeir því sex í árslok 2025, sem er um helmings­fækkun frá því sem var fyrir nokkrum árum.

Ójöfn fjármögnun og skrýtnir hvatar

Samkvæmt Gylfa er hallinn tilkominn vegna fjár­mögnunar­kerfis Háskóla Íslands, sem sé byggt á svokölluðu deili­líkani. Líkanið úthlutar fasta fjárhæð fyrir hvern útskrifaðan nemanda sem útskrifast innan hverrar deildar, en fjárhæðin á hvern nemanda er mismun­andi eftir deildum. Þannig fær hug- og félags­vísinda­deild, ásamt stærð­fræði- og tölvunar­fæðideild minnsta peninginn fyrir hvern útskrifaðan nemanda, á meðan þau eru mun hærri í verkfræði og raun­vísindum, kennslu­fræðum og heilbrigðis­vísindum.

Til viðbótar við ójafna fjár­mögnun bendir Gylfi á að kerfið bjóði upp á ýmsa aðra skrýtna hvata, líkt og að kennarar hvetji ekki nemendur sína til að taka námskeið í öðrum deildum eða að þeir leggi ofuráherslu á rann­sóknir í stað kennslu en vilji þó fjölga nemendum.

„Eins og í miðstýrðum hagkerfum felur miðstýrt hagkerfi Háskóla Íslands í sér margs konar óhagræði,“ bætir Gylfi við. „Það er offramleiðsla á sumu og ekki nóg framleitt af öðru.“ Þá segir hann að hvati kennara til að lágmarka kennslu gera þá dýrari og að hækkandi kostnaður þeirra komi í veg fyrir nýliðun.

Hægt er að lesa grein Gylfa í heild sinni með því að gerast áskrifandi að Vísbendingu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár