Kostnaðaráætlun hátíðarfundarins á Þingvöllum sagður misskilningur

Skrif­stofa Alþingis hefur sent Stein­grími J. Sig­fús­syni for­seta Alþingis bréf, vegna umræðu í fjöl­miðlum síð­ustu daga um und­ir­bún­ing og kostnað við hátíð­ar­þing­fund Alþingis á Þing­völlum 18. júlí.

Steingrímur J. Sigfússon, forseti Alþingis.
Stein­grímur J. Sig­fús­son, for­seti Alþingis. Mynd: Bára Huld Beck

Skrif­stofa Alþingis hefur sent Stein­grími J. Sig­fús­syni for­seta Alþingis bréf, vegna umræðu í fjöl­miðlum síð­ustu daga um und­ir­bún­ing og kostnað við hátíð­ar­þing­fund Alþingis á Þing­völlum 18. júlí. Upplýst var um end­an­legan kostað við fund­inn í síð­ustu viku, eins og Kjarninn greindi frá, og var heild­ar­kostn­aður alls 87 millj­ónir króna eða 41 milljón um fram áætlun.

Í bréf­inu, sem birt er á vef Alþingis, kemur fram að við gerð rekstr­ar­á­ætl­unar Alþingis fyrir árið 2018 hafi verið ákveðið að taka frá 45 millj­ónir króna til verks­ins en að öðru leyti reiknað með að greiða kostnað með rekstr­ar­fjár­veit­ingum og höf­uð­stól. „Hér var því ekki um eig­in­lega kostn­að­ar­á­ætlun að ræða, enda ekki for­sendur til þess, en nokk­urs mis­skiln­ings hefur gætt um þetta í umræð­unni. Á þeim tíma­punkti var ljóst að tals­verð óvissa væri um ýmsa kostn­að­ar­liði enda var jafnan tekið fram við umfjöllun um málið innan Alþingis, m.a. á fundi for­sætis­nefndar 19. jan­úar 2018, að kostn­aður við verk­efnið gæti orðið meiri en sú fjár­hæð sem ráð­stafað hafði verið til þess í rekstr­ar­á­ætlun Alþingis, sbr. einnig svar for­seta við fyr­ir­spurn þing­manns nokkru síðar,“ segir í bréf­inu.

22 milljóna króna lýsing á fundinum

Kostn­að­ar­lið­ur­inn „Lýsing“ hefur verið gagn­rýndur nokkuð harka­lega, enda kost­aði lýs­ing fund­ar­ins, sem hald­inn var um mitt sumar, rúmar 22 millj­ónir króna. Í síð­ustu viku kom fram að kostn­aður hafi farið nokkuð umfram áætlun einkum vegna þess að tekin hafi verið ákvörðun um að hafa lýs­ingu og hljóð af bestu bæðum þar sem atburð­ur­inn var í beinni útsend­ingu. „Einnig var haft í huga að upp­taka af fund­inum myndi varð­veit­ast til fram­tíðar sem heim­ild um sögu þjóð­ar­innar.

Í bréf­inu sem skrif­stofan hefur nú sent þing­for­seta segir um þetta að snemma í und­ir­bún­ingnum hafi haf­ist umræður um nauð­syn­legan tækni­búnað (hljóð, lýs­ingu, raf­magn o.s.frv.) og kröfur til hans. „Að mörgu var að hyggja, hljóð þurfti að ber­ast nokkra leið frá þing­pall­inum, lýs­ing að henta beinni sjón­varps­út­send­ingu sem mik­ill metn­aður var lagður í og þá þurfti að leiða raf­magn að þing­staðnum. Eftir afgreiðslu til­boða í upp­setn­ingu þing­pall­anna var kallað eftir verð­til­boðum í stærstan þátt tækni­mál­anna frá þeim fyr­ir­tækjum sem upp­haf­lega höfðu lagt inn verð­til­boð í pall­ana. Unninn var sam­an­burður milli þess­ara til­boða og var nið­ur­staðan sú að taka til­boði frá Exton í tækni­málin í heild sinni. Þegar verð­til­boðin í tækni­málin (hljóð- og ljósa­búnað ásamt burð­ar­kerfi og upp­hengi­bún­aði auk vinnu tækni­manna við upp­setn­ingu bún­að­ar­ins og stýr­ingu hans) og mat á þeim lá fyrir, sem reynd­ist vera um 25 m.kr., var fyrst hægt að gera sér raun­hæfa grein fyrir heild­ar­kostn­aði við verk­efnið í heild sinni, þ.e. ríf­lega 80 m.kr. Um öll tækni­mál tengd þing­fund­inum hafði Fram­kvæmda­sýsla rík­is­ins og verk­kaupi (Alþingi) sam­ráð við fjöl­marga aðila.“

Viðkvæmur fundarstaður

Í bréf­inu er sér­stak­lega tekið fram að Þing­vellir séu á heimsminja­skrá Sam­ein­uðu þjóð­anna og „helgur staður fyrir þjóð­ina. Áhersla var því lögð á að reyna að mæta öllum kröfum um að vernda sem mest svæðið þar sem pall­ur­inn var settur upp. Þegar pallar og allur bún­aður hafði verið fjar­lægður að kvöldi fund­ar­dags, 18. júlí sl., var ekki hægt að sjá að þar hefði verið fundur fyrr um dag­inn.“

Þá er þess einnig getið að skrif­stofa Alþingis hafi leit­ast vi að svara öllum þeim fyr­ir­spurnum sem borist hafi, ýmist frá þing­mönnum, frétta­mönnum eða ein­stak­lingum, um kostnað við hátíð­ar­fund­inn.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

4
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár