Hátíðarfundurinn á Þingvöllum kostaði 87 milljónir

Heild­ar­kostn­aður við hátíð­ar­fund Alþingis á Þing­völlum í júlí var tæpar 87 millj­ónir króna, eða 41 milljón umfram áætlun. Alls voru greiddar rúmar 9 millj­ónir fyrir hönnun og ráð­gjöf í tengslum við hátíð­ar­fund­inn og rúm­lega 2,5 millj­ónir í gæslu.

Heild­ar­kostn­aður við hátíð­ar­fund Alþingis á Þing­völlum í júlí var tæpar 87 millj­ónir króna. Þetta kemur fram í til­kynn­ingu á vef Alþingis. Alls voru greiddar rúmar 22 millj­ónir fyrir lýs­ingu á fund­inum og rúm 31 milljón fyrir efni og vinnu við upp­setn­ingu palla og gang­vega. Þá voru greiddar rúmar 9 millj­ónir fyrir hönnun og ráð­gjöf í tengslum við hátíð­ar­fund­inn og rúm­lega 2,5 millj­ónir í gæslu.

Kostn­aður var nokkuð umfram áætlun, einkum vegna þess að tekin var ákvörðun um að hafa lýs­ingu og hljóð af „bestu gæðum“ þar sem atburð­ur­inn var í beinni útsend­ingu. „Einnig var haft í huga að upp­taka af fund­inum myndi varð­veit­ast til fram­tíðar sem heim­ild um sögu þjóð­ar­innar,“ segir í til­kynn­ing­unni. Þá segir einnig að vinna við að bæta og laga göngu­stíga á Þing­völlum fyrir við­burð­inn mun áfram nýt­ast gestum þjóð­garðs­ins.

Alls fór kostn­aður þannig 41 milljón fram úr áætlun, þar sem upp­haf­leg rekstr­ar­á­ætlun gerði ráð fyrir kostn­aði upp á 45 millj­ónir.

Kostn­að­ar­lið­irnir við hátíð­ar­fund­inn skipt­ast þannig:

Fund­ur­inn var hald­inn þann 18. júlí síð­ast­lið­inn af því til­efni að þá voru 100 ár liðin frá und­ir­ritun samn­inga um sam­bands­lögin svoköll­uðu, milli Íslands og Dan­merk­ur. Lögin tóku gildi 1. des­em­ber 1918 eftir þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu um haustið og varð Ísland þá full­valda ríki.

Fram­kvæmdin var afar umdeild, fyrst og síð­ast vegna þess að Pia Kjærs­gaard, for­seti danska þings­ins sem og stofn­andi og fyrr­ver­andi for­maður Danska þjóð­ar­flokks­ins, til margra ára, flutti sér­stakt ávarp og kveðju dönsku þjóð­ar­inn­ar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

4
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár