Áslaug Arna hættir á þingi – fékk 3,1 milljón á meðan námsleyfi stóð

Áslaug Arna Sigurbjörns­dóttir, þingmaður Sjálfstæðis­flokks, tilkynnti á Alþingi rétt í þessu að hún hygðist hætta á þingi. Hún fór í námsleyfi fyrir ári eftir að hafa tapað í formanns­kjöri flokksins og fékk 3,1 milljón króna í laun á meðan námi hennar stóð.

Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir
Áslaug Arna Sig­ur­björns­dóttir Áslaug Arna sett­ist á þing árið 2016 og var ráð­herra frá 2019 til 2024. Mynd: Facebook

Áslaug Arna Sigurbjörns­dóttir, fyrr­verandi ráðherra og þingmaður Sjálfstæðis­flokksins, tilkynnti á Alþingi í dag að hún væri hætt á þingi.

Eftir að hafa tapað formanns­kjöri í flokknum fyrir Guðrúnu Hafsteins­dóttur í fyrra tilkynnti hún í maí að hún mundi taka sér leyfi í níu mánuði til að leggja stund á MPA nám við Columbia háskóla. Námi hennar er nú lokið og hún snúin heim.

Á meðan Áslaug Arna hélt til New York borgar í nám fékk hún um 3,1 milljón króna í þing­fararkaup. Sigurður Örn Hilmarsson tók sæti sem varamaður en um langt skeið fékk Áslaug Arna engu að síður greiðslur þar sem kjörnir þingmenn taka aftur sæti fyrir varamenn á þeim tíma sem Alþingi er í leyfi.

Í ræðu sinni á Alþingi í dag sagðist Áslaug Arna hafa gefið stjórn­málum öll sín fullorðinsár. „Og með því að fara frá Íslandi um tíma áttaði ég mig líka …

Kjósa
-13
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (6)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Gunnar Björgvinsson skrifaði
    Sori
    0
  • Sveinn Ingólfsson skrifaði
    Er þetta ekki misnotkun á almannfé?????
    1
    • Olafur Kristjansson skrifaði
      Hvernig í ósköpunum dettur þér í hug að sómakær sjálfstæðiskona hagi sér þannig?
      0
  • Magnús Mörður Gígja skrifaði
    Forríkir Sjallar hafa alltaf verið snillingar að notfæra sér peninga almennings sér til framdráttar og hafa aldrei skammast sín fyrir. Skítapakk!!!!!!!
    0
  • MSB
    Margrét S. Björnsdóttir skrifaði
    Samtryggingakerfi stjórnmálamanna :(
    2
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár