Chelsea Manning laus úr fangelsi í vor

Barack Obama Bandaríkja­forseti hefur náðað Chelsea Manning en hún hefði annars setið í fangelsi til 2035.

Barack Obama bandaríkja­forseti stytti dóm yfir uppljóstraranum Chelsea Manning í kvöld. Manning hefur setið í fangelsi í rúm sex ár fyrir að leka þúsundum gagna í eigu bandaríska ríkisins til Wikileaks. Gögnin vörpuðu meðal annars ljósi á aðgerðir hersins þar sem óbreyttir borgarar voru drepnir af hermönnum Banda­ríkjanna.

Reiknað er með því að Manning verði látin laus 17. maí. Helsti talsmaður Wikileaks, Julian Assange, var nýbúinn að lýsa því yfir að hann myndi gefa sig fram við yfirvöld í Banda­ríkjunum ef Manning yrði náðuð. Nú hefur það gengið eftir.

Wikileaks hafa fagnað náðuninni á Twitter síðu sinni.

Talið er ólíklegt að Donald J. Trump, sem tekur við embætti á föstudag, hugnist þessi ákvörðun forvera síns en hann hefur heimild til að snúa ákvörðuninni ef hann vill.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár