Kosningar á Grænlandi litaðar af geópólitík og Trump

Kjósendur í Nuuk telja kosningarnar í ár sérstak­lega mikil­vægar vegna óútreikn­an­legs sambands Grænlands og Danmerkur við Banda­ríkin. Rasmus Leander Nielsen, lektor við Háskólann á Grænlandi, segir utan­ríkismálin skipa stærri sess í umræðunni en almennt gerist í kosningum til þjóðþings Danmerkur. Heimildin fór á kjörstað.

Á kjörstað
Á kjör­stað Kosið í Nuuk. Mynd: Esther

„Það er mikilvægt að kjósa í dag, sérstak­lega í ljósi drama á milli Grænlands, Danmerkur og Banda­ríkjanna,“ sagði einn kjósandi þegar blaða­maður Heimildarinnar spurði af hverju hún hefði mætt á kjörstað í Nuuk í dag. Kjósendur sem blaða­maður tók tali í höfuð­staðnum voru einróma: Kosningarnar í ár eru sérstak­lega mikil­vægar í ljósi óútreiknanlegs sambands Grænlands og danska konungs­ríkisins við Banda­ríkin. 

Blaðamann bar að garði um hálf fimm leytið seinni­partinn að staðar­tíma. Í frostinu fyrir utan kjörstað mátti líta gáma og skýli skreytta fánum og plaggötum þar sem að fram­bjóðendur gáfu gestum og gangandi bæklinga, kaffi og með því og nýttu allra síðasta tækifærið til þess að sannfæra kjósendur um að láta atkvæði sitt falla þeim í vil. 

Rasmus Leander Nielsen, lektor í stjórmálafræði við Ilisimatusarfik – Háskólann á Grænlandi, segir geópólitíkina hafa áhrif á kosningarnar í ár og þá einna helst framganga Donalds Trumps Bandaríkja­forseta undan­farið.

Þá …

Kjósa
6
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár