Staðfestir frásögn fyrrum starfsmanns Reykjabúsins: „Hef aldrei getað gleymt þessu“

Fyrrum starfs­maður Reykja­búsins í Mosfellsbæ segir frá því þegar fuglar voru drepnir með útblæstri úr bíl. Starfs­mennirnir hafi borið grímur þegar hreinsað var til en það hafi engu bjargað, lyktin hafi smogið í gegn, sú viðbjóðs­leg­asta sem hann hefur nokkurn tímann fundið.

Af kjúklingabúi
Af kjúklinga­búi Tveir fyrrum starfs­menn Reykja­bús­ins lýsa ógeð­felldri aðferð við aflífun fugla. Mynd: Pixabay

Á dögunum birti Stundin frásögn, þar sem fyrrum starfs­maður Reykja­búsins í Mosfellsbæ, Björn Kolbeinsson, lýsti afar ógeð­felldri aðferð við að aflífa hátt í 3.000 fugla með útblæstri úr bíl. Sett hafi verið frauð fyrir alla glugga og op hússins, svo hafi barki úr púströri bíls verið tengdur við húsið og vélin látin ganga í 3 daga.

Hjalti Örn Jónsson rafvirki vann á Reykja­búinu í Mosfellsbæ í eitt ár kringum aldamót. Hann var einn þeirra sem viðstaddur var þegar umrætt atvik átti sér stað. „Jú, ég man vel eftir þessu, hef aldrei getað gleymt þessu. Þetta er mesti viðbjóður sem ég hef nokkurn tímann kynnst,“ segir hann. Í lýsingu Björns kom fram vélin hafi verið látin ganga í þrjá daga. Hjalti Örn segist ekki muna upp á hár hversu langur tími leið. Hins vegar muni hann eftir því að vélin hafi að minnsta kosti gengið í heilan dag og heila nótt. „Ástæðan fyrir því að þetta tók svona langan tíma var að þeir notuðu dísil­bílinn við þetta, fyrir mistök. Það er enginn koltvísýringur í útblæstri frá dísil­vélum.“ Fuglarnir hafi því fyrir rest drepist af dísileitrun. Koltvísýringur veldur hins vegar fyrst deyfingu og meðvitundar­leysi og loks köfnun. „Þetta er mesti viðbjóður sem ég hef nokkurn tímann kynnst. Fuglarnir voru gegn­sýrðir af dísileitrun. Um leið og maður kom við þá prumpuðu þeir út úr sér eitrinu. Við vorum með grímur sem dugðu engan veginn til þess að koma í veg fyrir lyktina. Svo var þeim mokað upp í traktors­gröfu og hljóðin sem þeir gáfu frá sér voru ógleymanleg. Ég hef aldrei upplifað annað eins og þó er ég ýmsu vanur, hefur til dæmis bæði unnið á refa- og minkabúi.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár