Dagur tekur slaginn í borginni

Dagur B. Eggertsson borgar­stjóri tilkynnti í morgun að hann hyggðist gefa kost á sér til að leiða lista Samfylk­ing­ar­innar áfram. Skot­árásin á bíl hans á síðasta ári hafi haft veruleg áhrif á hann.

Óttast ekki að missa meirihlutann
Óttast ekki að missa meiri­hlut­ann Dagur seg­ist hafa ástríðu fyrir póli­tík og ótt­ist ekki að missa meiri­hlut­ann í borg­ar­stjórn. Mynd: reykjavik.is

Dagur B. Eggertsson mun gefa kost á sér til að leiða lista Samfylkingarinnar í komandi sveitar­stjórnar­kosningum í Reykjavík. Dagur segir að fyrir ári síðan hafi hann haft efasemdir um að fara fram á ný, ekki síst eftir að skotið var á bíl hans utan við heimili hans.

Dagur greindi frá ákvörðun sinni í Morgun­útvarpinu á Rás 2 nú í morgun. Þar sagði hann að umrædd skotárás hefði haft veruleg áhrif á hann, meiri en hann hefði viljað viðurkenna fyrsta kastið. Þannig hafi hann hætt að fara út að ganga á kvöldin með eiginkonu sinni.

Spurður um hvaða mál hann myndi leggja áherslu á á nýju kjör­tímabili sagði Dagur mörg stór mál þegar komin af stað og nefndi þar meðal annars samgöngur og skipulagsmál. Dagur var spurður hvort hann hefði áhyggjur af því að úrslit kosninganna gætu orðið með þeim hætti að hann myndi þurfa að sitja í minni­hluta á næsta kjör­tímabili, ef til að mynda Viðreisn kysi að starfa með Sjálfstæðis­flokknum. Dagur sagðist ekki óttast að sú staða gæti komið upp en hann væri þó meðvitaður um þann möguleika. Hann hefði hins vegar ástríðu fyrir þáttöku sinni í stjórn­málum.

Dagur hefur setið í borgar­stjórn í tæp tuttugu ár, var fyrst kjörinn árið 2002. Hann varð borgar­stjóri árið 2007 en sat aðeins í eitthundrað daga þar eð meirihlutinn í borgar­stjórn féll. Dagur var formaður Borgar­ráðs á árunum 2010 til 2014 en hefur setið sem borgaarstjóri frá kosningunum 2014.

 

 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Sigurður Þórarinsson skrifaði
    Þessi fallegi Dagur. Nóg um það. Kv
    0
  • ÁH
    Ásmundur Harðarson skrifaði
    Frábært. Davíð er einfaldlega besti borgarstjóri sem Reykjavík hefur haft. Ef hann hefði ekki gefið kost á sér myndi Sjálfstæðisflokkurinn eflaust ná að mynda meirihluta. Að vísu aukast möguleikar Sjálfstæðisflokksins með brotthvarfi Eyþórs og framboði Hildar en ég held þó að það nægi ekki. Til þess er hún ekki nógu sterkur frambjóðandi.
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár