Skuldin fimmfaldaðist vegna „innheimtukostnaðar“

Í Svíþjóð, Danmörk og Finnlandi hefur verið sett hámark á leyfi­legan innheimtu­kostnað. Á Íslandi svarar dómsmála­ráðherra ekki Neytenda­samtökunum erindum um að setja hömlur á innheimtu lögmanna.

Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir
Áslaug Arna Sig­ur­björns­dóttir Neyt­enda­sam­tökin kvarta undan því að dóms­mála­ráð­herra svari ekki beiðnum um að tryggja rétt neyt­enda gegn óhóf­legum inn­heimtu­að­gerðum. Mynd: xd.is

Dæmi er um að innheimtu­fyrirtæki fimmfaldi kröfu á hendur neytendum vegna vanskila. Þannig greina Neytenda­samtökin frá tilfelli í nýju tölublaði Neytenda­blaðsins þar sem höfuð­stóll fór úr 5.085 krónum í 31.694 krónur vegna „innheimtu­kostnaðar“, en um var að ræða raðgreiðslu.

Neytenda­samtökin hafa leitað til dómsmála­ráðherra og dómsmála­ráðuneytisins með að „skikki verði komið á eftirliti með innheimtu­starfsemi óháð starfs­heiti eigenda þessara fyrir­tækja“. Í Neytenda­blaðinu kemur fram að „þrátt fyrir ótal ítrekanir hafa engin svör borist frá ráðherra eða ráðuneytinu.“

Lögmenn nýta smugu í lögunum

Innheimtu­ferillinn er þannig upp byggður að fyrst er farið í frum- og milli­innheimtu, eftir innheimtu­viðvörun, ef neytandi greiðir ekki kröfu fyrir eindaga. Um þessi stig gilda innheimtulög. Þegar krafa er ekki greidd á þessum stigum getur lánveitandi eða fulltrúi hans farið í löginnheimtu, sem á að vera undanfari að því að yfirvöld knýja skuld­arann til að greiða með réttarfars­úrræðum. Ákvæði innheimtu­laga eiga ekki við um löginnheimtuna. 

Hin hliðin er að lögmenn sem reka innheimtu­starfsemi eru undan­skildir eftirliti Fjármála­eftirlitsins, ólíkt innheimtu­fyrirtækjum. Þannig geta lögmenn sem stunda löginnheimtu átt nokkuð frítt spil gegn skuldurum og þurfa aðeins að lúta eftirliti Lögmanna­félags Íslands, sem hefur þó enga heimild til að aftur­kalla starfs­leyfi.

„Telja Neytenda­samtökin mjög brýnt að eftirlit með innheimtu­starfsemi sé á einni hendi og hjá stofnun sem hefur heimild til að aftur­kalla starfs­leyfi þegar það á við,“ segir í Neytenda­blaðinu.

Samtökin taka dæmi af lögmanni sem innheimti lán, sem staðfest var að bryti gegn neytenda­lögum. Þótt lögmaðurinn hefði verið áminntur fyrir að stunda löginnheimtu „sem augljós­lega var ekki hugsuð sem undanfari réttarfars­aðgerða“ gat hann haldið óáreittur áfram starfs­háttum sínum. Eftir að hafa verið úrskurðaður brotlegur stefndi hann neytandanum fyrir dóm til þess að fá úrskurðinum hnekkt.

„Nær takmarkalaus“ kostnaður við vanskil

Dæmið sem Neytenda­samtökin tilgreina snýr að því að ef raðgreiðslulán fer í vanskil er hver afborgun innheimt sérstak­lega, með fyrr­greindum afleiðingum, þar sem dráttarvegxtir af rúmlega 5 þúsund króna skuld eru 864 krónur, seðil­gjald 298 krónur og „innheimtu­kostnaður“ 25.447 krónur.

Ástæður þess að Norður­löndin hafa sett meiri skorður við innheimtu­starfsemi en Ísland er að viðskipta­módel smálána­fyrirtækja gerir ráð fyrir að þau nýta sér heimild til að margfalda kostnað neytenda með hörðum innheimtu­aðgerðum sínum.

„Smálán sem í boði eru á Íslandi bera ekki lengur ólöglega háa vexti, en á hinn bóginn getur kostnaður við vanskil verið nær takmarka­laus,“ segir í umfjöllun Neytenda­samtakanna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár