Okurlán Netgíró og tengslin við smálánafyrirtækin

Netgíró er eitt helsta fjár­tækni­fyr­ir­tæki Íslands sem er í sam­keppni um neyslu­lán við banka. Býður upp á smá­lán og rað­greiðslu­lán sem bera vexti sem almennt eru nálægt 30 pró­sentum og geta farið upp í 50. Umboðs­maður skuld­ara gerir ekki grein­ar­mun á Netgíró og smá­lána­fyr­ir­tækj­unum. Fram­kvæmda­stjór­inn neitar að gefa upp veltu­tölur en hefur sagt fyr­ir­tækið stefna á 14 millj­arða veltu á þessu ári.

Gengur út á að viðskiptavinurinn borgi ekki
Gengur út á að við­skipta­vin­ur­inn borgi ekki Við­skipta­módel Netgíró, sem og ann­arra fjár­tækni­fyr­ir­tækja, eins og Klarna, gengur út á að við­skipta­vin­ur­inn velji að borga ekki skuldir sínar sem fyrst svo fyr­ir­tækið geti inn­heimt vexti og inn­heimtu­kostnað af lán­unum. Skorri Rafn Rafnsson er eig­andi Netgíró og nokk­urra smá­lána­fyr­ir­tækja.

Greiðslu- og smá­lána­fyr­ir­tækið Netgíró hf., sem veitt hefur íslenskum almenn­ingi smá- og neyslu­lán fyrir marga millj­arða króna, lýtur tak­mörk­uðu opin­beru eft­ir­liti og í raun bara Neyt­enda­stofu. Netgíró er ekki eft­ir­lits­skyldur aðili eins og bankar eða trygg­inga­fé­lög, þar sem fyr­ir­tækið er ekki fjár­magnað með inn­lánum, pen­ingum almenn­ings, og lýtur því ekki eft­ir­liti Fjár­mála­eft­ir­lit­is­ins. Netgíró er ungt fyr­ir­tæki, stofnað 2012, en fyr­ir­tækið hefur aukið veltu sína umtals­vert á hverju ári og náði að skila hagn­aði árið 2016 þegar hlutafé þess var tvö­faldað upp í tæp­lega 300 millj­ónir.

Fram­kvæmda­stjóri fyr­ir­tæk­is­ins, Helgi Björn Krist­ins­son, hefur sagt í við­tali við Við­skipta­blaðið að hann bindi vonir við að velta fyr­ir­tæk­is­ins verði meiri en 14 millj­arðar króna á þessu ári. Stundin hefur heim­ildir fyrir því að velta ein­stakra fyr­ir­tækja með vörur sem Netgíró hefur lánað fyrir nemi allt að einum millj­arði króna. Helgi Björn vill ekki segja hverjar veltu­tölur fyr­ir­tæk­is­ins eru í svörum sínum við spurn­ingum …

Kjósa
1
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið undanfarið ár