Vínkaupmaður búinn að kæra forstjóra ÁTVR til lögreglu

Arnar Sig­urðs­son vín­kaup­maður og -inn­flytj­andi hefur beint kæru til lög­regl­unnar á höf­uð­borg­ar­svæð­inu vegna þess sem hann segir rangar sak­ar­giftir for­stjóra ÁTVR á hendur sér og fyr­ir­tækjum sínum.

Ívar J. Arndal, forstjóri ÁTVR.
Ívar J. Arndal, for­stjóri ÁTVR. Mynd: ÁTVR

Arnar Sig­urðs­son, sem rekur vef­verslun sem selur vín til neyt­enda hér á landi í gegnum franskt félag, hefur kært Ívar J. Arndal for­stjóra ÁTVR fyrir rangar sak­ar­giftir á hendur sér, en ÁTVR beindi kæru til bæði lög­reglu og skatta­yf­ir­valda á hendur Arnari og fyr­ir­tækjum hans hér­lendis og erlendis undir lok síð­asta mán­aðar.

Þar var Arnar sak­aður um skattaund­an­skot með því að brjóta gegn lögum um virð­is­auka­skatt í vín­við­skiptum sínum. Þessu hefur Arnar alfarið hafnað. Hann hefur bent á, og gerir það að nýju í kæru sinni til lög­reglu í dag, að franskt félag hans sé bæði með íslenska kenni­tölu og virð­is­auka­skatts­núm­erið 140848, sem skráð hafi verið hjá Skatt­inum í apríl.

Einnig segir Arnar að félag hans gefi út reikn­inga með 11 pró­sent virð­is­auka­skatti í sam­ræmi við gild­andi lög og hafi gert frá því félagið hóf starf­semi hér á landi. Gjald­dagi virð­is­auka­skatts sé einum mán­uði og fimm dögum eftir lok hvers almenns upp­gjörs­tíma­bils, sem í til­viki franska félags­ins sé tveir mán­uðir. Inn­heimtur virð­is­auka­skattur frá upp­hafi starfsmi félags­ins sé því ekki fall­inn í gjald­daga.

Arnar hefur nú kært for­stjóra ÁTVR per­sónu­lega fyrir að leggja fram þessar ásak­anir á hendur sér og segir í kæru sem send var á fjöl­miðla í dag að telja megi ljóst að for­stjóri ÁTVR „hafi borið fram kæru sína gegn betri vit­und“ til þess eins að fá sig sak­aðan um refsi­verðan verknað.

Kæra Arnars á hendur Ívari var send á fjöl­miðla síð­degis í dag, en á mánu­dag krafði Arnar rík­is­for­stjór­ann um afsök­un­ar­beiðni og veitti honum frest til kl. 15 í dag til þess að bregð­ast við þeirri beiðni.

Hann fór fram á að for­stjór­inn aft­ur­kall­aði kærur á hendur Arnari og fyr­ir­tækjum hans hér­lendis og erlendis og bæð­ist opin­ber­lega afsök­unar með heil­síðu­aug­lýs­ingum í prent­miðlum og vef­borðum á tveimur víð­lesn­ustu frétta­síðum lands­ins. Það hefur ekki gerst.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

2
Viðtal

Ef við kveðjum tungu­málið, þá týnum við vídd draumanna

Í sögu íslenskra bók­mennta í þús­und ár er lögð áhersla á raddir inn­flytj­enda, þá sem nú. Höf­und­ur­inn, Halldór Guð­munds­son, öðl­að­ist tveggja heima sýn ungur í Þýska­landi. Að læra lat­ínu frá 10 ára aldri lam­inn af kenn­ara sem skildi hann ekki, í sárum eftir heims­styrj­öld. Seinna spurði hann sig: „Hver má tala?" Í dag segir hann: „Íslend­inga­sögur dags­ins í dag eru að hluta til sagðar af fólki sem hingað hefur flutt."

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

5
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár