„Viðbúið“ að Bandaríkin myndu kalla hermenn frá Þýskalandi

Þýski varnarmála­ráðherrann segir Evrópu þurfa að taka meiri ábyrgð á eigin börnum. Það hafi verið viðbúið að Bandaríkja­forseti myndi kalla hermenn heim frá Evrópu. Fimm þúsund bandarískir hermenn hafa verið kallaðir heim.

Heimleið
Heimleið Nokkur fjöldi banda­rískra her­manna er á leið heim frá Þýska­landi fljót­lega. Mynd: SAUL LOEB / AFP

Varnarmála­ráðherra Þýska­lands segir að brott­flutningur bandarískra hermanna frá Þýska­landi hafi verið viðbúinn og að Evrópa þyrfti að gera meira til að tryggja eigið öryggi.

„Það var viðbúið að bandarískir hermenn myndu hörfa frá Evrópu og einnig frá Þýska­landi,“ sagði Boris Pistorius í yfir­lýsingu sem ráðuneyti hans sendi til AFP. „Við Evrópu­búar verðum að axla meiri ábyrgð á öryggi okkar,“ bætti hann við.

Bandaríska varnarmála­ráðuneytið tilkynnti á föstudag um brott­flutning um 5.000 hermanna frá Þýska­landi á næsta ári, sem er nýjasta birtingar­mynd ágrein­ings ríkja beggja vegna Atlantshafsins vegna stríðsins í Miðausturlöndum.

Þetta gerðist um leið og Donald Trump, forseti Banda­ríkjanna, tilkynnti að tollar á bíla og vörubíla frá Evrópu­sambandinu myndu hækka í 25 prósent í næstu viku og sakaði sambandið um að fara ekki að viðskipta­samningi sem undir­ritaður var síðasta sumar.

Trump hefur gagnrýnt Friedrich Merz, kanslara Þýska­lands, sem sagði á mánudag …

Kjósa
8
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár