Vill samvinnu á vinnumarkaði til að viðhalda verðstöðugleika

Gylfi Zoega segir COVID-kreppunni nú vera lokið, en að helsta markmið hagstjórnar væri nú að halda verð­bólgunni í skefjum. Til þess segir hann að gott samspil þurfi á milli Seðla­bankans, ríkis­stjórnar og aðila vinnu­markaðarins.

Gylfi Zoega, hagfræðiprófessor við Háskóla Íslands.
Gylfi Zoega, hag­fræði­pró­fessor við Háskóla Íslands. Mynd: Skjáskot/RÚV

Nauðsynlegt er að aðilar á vinnu­markaðnum vinnu svo að verð­bólgan valdi ekki skaða og krefjist ekki meiri fórna í fram­tíðinni í formi hærri vaxta. Þetta segir Gylfi Zoega, sem er hagfræði­prófessor við Háskóla Íslands og situr í peninga­stefnu­nefnd Seðla­bankans, í grein sinni í nýjasta tölublaði Vísbendingar.

Samkvæmt Gylfa er kreppunni sem fylgdi COVID-19 heims­faraldrinum lokið hér á landi, þar sem atvinnu­leysi er orðið það sama og það var í ársbyrjun árið 2020. Töpuð störf vegna farsóttarinnar séu að fullu endur­heimt þrátt fyrir að ferða­þjónustan hafi ekki enn náð fyrri styrk, en aðrar greinar hafi fyllt í skarðið eins og gerist í markaðs­hagkerfum.

Verðbólgan vegna lægri vaxta og hærri launa

Samhliða betri efnahags­horfum hafa verðbólgu­horfur hins vegar versnað. Gylfi segir verð­bólguna einkum stafa af aukinni eftir­spurn innanlands og að erlendar verð­hækkanir á hrávörum ekki hafa eins mikil áhrif hér og í öðrum Evrópu­löndum. Stærstu liðir í hækkun neysluverðs­vísi­tölunnar séu húsnæðis­liðurinn og almenn þjónusta, en Gylfi telur þá báða endur­spegla innlendar launa­hækkanir.

Gylfi bætir þó við að hækkun fasteigna­verðs megi rekja til ýmissa þátta en segir samt að aukning í kaupmætti launa á síðustu tveimur árum hafi aukið eftir­spurn eftir húsnæði. Sömuleiðis segir hann að vaxta­lækkanir Seðla­bankans hafi haft mikil áhrif, þar sem eftir­spurn eykst á húsnæðis­markaði þegar vextir á íbúða­lánum lækka.

Hins vegar telur Gylfi það ekki vera rétt að fullu að segja að húsnæðis­verð sé hátt vegna skorts á framboði á fasteigna­markaðnum. Hann segir verð­hækkanirnar eiga að leiða framboðs­aukningar, þar sem meira verður byggt vegna þess að fasteigna­framkvæmdir eru orðnar arðbærari.

Samkvæmt honum er spurning hvort peninga­stefnan hafi örvað hagkerfið of mikið á tímum COVID-19, hér á landi sem annars staðar. En jafnvel þótt svo hefði verið þá segir Gylfi að henni hafi tekist að minnka áhrif farsóttarinnar á lífskjör og atvinnu.

Hægt að bæta lífskjör á annan hátt en með krónuhækkunum

„Horfurnar eru bjartar fyrir þetta ár með væntum hagvexti og bættum lífs­kjörum,“ segir Gylfi í greininni sinni. „En helsta markmið hagstjórnar verður að vera að halda verðbólgu í skefjum til þess að hún valdi ekki skaða og krefjist ekki meiri fórna í fram­tíðinni,“ bætir hann við.

Til þess að ná þessu markmiði segir Gylfi að mikilvægt sé að skapa gott samspil á milli Seðla­bankans, ríkis­stjórnar og aðila vinnu­markaðarins. Einnig segir hann að hafa þurfi í huga að unnt sé að bæta lífskjör á „marg­víslegan annan hátt en með hækkun krónu­launa.“

Hægt er að lesa grein Gylfa í heild sinni með því að gerast áskrifandi að Vísbendingu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár