Nú á að skila skýrslu ríkisendurskoðunar um bankasöluna í næsta mánuði

Þegar Rík­is­end­ur­skoðun tók að sér að gera stjórn­sýslu­út­tekt á sölu á hlut rík­is­ins í Íslands­banka ætl­aði hún að skila skýrslu í júní. Síðan átti að skila henni fyrir versl­un­ar­manna­helgi. Svo í ágúst. Nú er hún vænt­an­leg í sept­em­ber.

Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra og formaður Sjálfstæðisflokksins.
Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra og for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins. Mynd: Skjáskot/Alþingi

Eins og mál standa þá er reiknað með að skýrsla Rík­is­end­ur­skoð­unar um nið­ur­stöðu stjórn­sýslu­út­tektar stofn­un­ar­innar á sölu á 22,5 pró­sent hlut rík­is­ins í Íslands­banka til 207 fjár­festa í lok­uðu útboði fyrir 52,65 millj­arða króna í mars síð­ast­liðnum verði skilað til Alþingis „fljót­lega upp úr kom­andi mán­að­ar­mótum.“

Þetta kemur fram í skrif­legu svari Guð­mundar Björg­vins Helga­sonar rík­is­end­ur­skoð­anda við fyr­ir­spurn Kjarnans um málið. Þar segir enn fremur að þegar skýrslan verður til­búin muni hún verða send til for­seta Alþingis. „Ég geri ráð fyrir að við taki hefð­bundin máls­með­ferð af hálfu þings­ins, þ.e. að stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefnd fái skýrsl­una til kynn­ingar og umfjöll­unar.“

Miðað við þessa stöðu er nær úti­lokað að þing verði kallað sér­stak­lega saman til að ræða skýrsl­una, líkt og boðað hafði verið. Þing­störf hefj­ast að nýju eftir sum­ar­frí 13. sept­em­ber næst­kom­andi.

Bjarni rólegur

Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, ræddi stórn­sýslu­út­tekt Rík­is­end­ur­skoð­unar í við­tali við Dagmál á mbl.is fyrr í þessum mán­uði. Þar sagð­ist hann bíða rólegur eftir skýrsl­unni. „Það skiptir mig í sjálfu sér engu máli hvort hún komi um miðjan mán­uð­inn, í lok mán­aðar eða í byrjun sept­em­ber. Umræðan fer bara fram þegar það ger­ist.“

Hann hafi hugsað mikið um fram­kvæmd­ina á banka­söl­unni frá því að þingið lauk störfum og ekki séð margt í henni sem ráðu­neyti hans bar ábyrgð á sem þau hefðu viljað gera öðru­vísi. „„Við höfum bent á nokkra fram­kvæmd­ar­lega þætti sem eflaust koma fram í skýrsl­unni. En við verðum að sjá hver megin nið­ur­staðan verður þar.“

Bjarni sagði í við­tal­inu við Dag­mál að hann yrði áfram sem áður tals­maður þess að ríkið dragi úr eign­ar­að­ild sinni í Íslands­banka, þegar mark­aðs­að­stæður væru góðar og umræðum og upp­gjöri við skýrslu Rík­is­end­ur­skoð­unar væri lok­ið, en ríkið á enn 42,5 pró­sent hlut í bank­anum. „En mínar vænt­ingar standa til þess að við getum síðan í fram­hald­inu haldið áfram að selja ríkið úr Íslands­banka þar sem við erum orðin minni­hluta­eig­andi. Og mér finnst nokkuð ljóst að við munum fara leið mark­að­ar­ins. Það var kannski helst það sem var gagn­rýnt síð­ast. Að það hefði ekki verið opið fyrir alla að taka þátt.“

Helst myndi hann ekki ekki bara vilja losa ríkið úr eign­ar­hluta í Íslands­banka heldur líka selja hlut í Lands­bank­anum þegar fram í sækir, þótt hann væri þeirrar skoð­unar að ríkið geti vel farið þar með ráð­andi hlut. „Þó ekki væri nema að tryggja höf­uð­stöðvar kerf­is­lega mik­il­vægs banka á Ísland­i.“

Ríkið á sem stendur 98,2 pró­sent hlut í Lands­bank­an­um.

Niðurstaða átti að liggja fyrir í júní

Skýrslan er gerð að beiðni Bjarna, en hann bað for­m­­lega um gerð hennar 7, apríl síð­­ast­lið­inn og Rík­­is­end­­ur­­skoðun sam­­þykkti að taka að sér verkið í kjöl­far­ið. Það gerð­ist í kjöl­far þess að sölu­ferlið var harð­lega gagn­rýnt víða í sam­fé­lag­inu. Í bréfi ráðu­­­neyt­is­ins kom fram að umræða hafi skap­­­ast um hvort fram­­­kvæmd söl­unnar hafi verið í sam­ræmi við áskilnað laga og upp­­­­­legg stjórn­­­­­valda sem borið var undir fjár­­­laga­­­nefnd og efna­hags- og við­­­skipta­­­nefnd Alþingis til umsagn­­­ar.

Rík­­­is­end­­­ur­­­skoðun ákvað dag­inn eft­ir, þann 8. apr­íl, að verða við beiðn­­­inni.

Í bréfi sem hún sendi til Bjarna vegna þess sagði að „áætlun um afmörkun og fram­­­kvæmd úttekt­­­ar­innar hefur ekki farið fram en hún mun verða end­­­ur­­­skoðuð eftir því sem úttekt­inni vindur fram. Í því sam­­­bandi er ítrekað að skv. 3. mgr. 1. gr. fram­an­­­greindra laga er rík­­­is­end­­­ur­­­skoð­andi sjálf­­­stæður og engum háður í störfum sínum og ákveður sjálfur hvernig hann sinnir hlut­verki sínu sam­­­kvæmt lög­­­un­­­um. Stefnt er að því að nið­­­ur­­­staða úttekt­­­ar­innar verði birt í opin­berri skýrslu til Alþingis í jún­­í­mán­uði 2022.“

Alls 83 prósent óánægð með framkvæmdina

Það flækti málin að Alþingi átti eftir að kjósa nýjan rík­­is­end­­ur­­skoð­anda í stað Skúla Egg­erts Þórð­­ar­­son­­ar, sem ákvað að hætta sem slíkur og verða ráðu­­neyt­is­­stjóri í nýju við­­skipta- og menn­ing­­ar­ráðu­­neyti. Til stóð að kjósa nýjan rík­­is­end­­ur­­skoð­anda á þingi fyrir maí­­lok.

Því var sú staða uppi að Rík­­is­end­­ur­­skoðun var falið að ráð­­ast í úttekt á einu umdeildasta þjóð­­fé­lags­­máli síð­­­ari ára, þar sem 88,4 pró­­sent þjóð­­ar­innar telja sam­­kvæmt könnun Gallup að óeðli­­legir við­­skipta­hættir hafi átt sér stað og 83 pró­­sent þjóð­­ar­innar er óánægt með fram­­kvæmd­ina, án þess að búið væri að skipa nýjan rík­­is­end­­ur­­skoð­anda.

Guð­­mundur Björg­vin var starf­andi rík­­is­end­­ur­­skoð­andi á þessum tíma og einn þeirra tólf sem sótt­­ist eftir emb­ætt­in­u.

Það frestað­ist að ganga frá kosn­­ingu rík­­is­end­­ur­­skoð­anda og þann 8. júní hafði Kjarn­inn eftir Guð­­mundi Björg­vini að til stæði að skila skýrsl­unni um Íslands­­­banka­­söl­una til Alþingis í síð­­­ustu viku jún­í­mán­að­­ar. Dag­inn eft­ir, þann 9. júní, var Guð­­mundur Björg­vin kos­inn nýr rík­­is­end­­ur­­skoð­and­i.

Þegar þing­fundum var frestað 16. júní síð­ast­lið­inn var það gert til að þing­menn gætu verið í sum­ar­fríi til 13. sept­em­ber, eða í þrjá mán­uði. For­seti Alþing­is, Birgir Ármanns­son, bað þing­menn hins vegar um að vera undir það búna að Alþingi yrði kallað saman til fram­halds­funda þegar þing­inu hefur borist skýrsla rík­is­end­ur­skoð­anda um sölu á hluta­bréfum rík­is­ins í Íslands­banka.

Skýrslu­skilin frest­uð­ust þó fljótt. Þegar fjöl­miðlar spurð­ust fyrir um stöðu mála seinni hluta júní­mán­aðar feng­ust þau svör að búist væri við því að skýrslan yrði til­búin fyrir lok júlí­mán­aðar, fyrir versl­un­ar­manna­helgi.

Þegar leið að versl­un­ar­manna­helgi spurð­ist Kjarninn fyrir um afdrif skýrsl­unnar og fékk þá þau svör að hún yrði til­búin fyrri hluta ágúst­mán­aðar.

Fyrir um viku sagði Birgir Ármanns­son, for­seti Alþingis, svo við RÚV að hann bygg­ist við skýrsl­una um kom­andi mán­að­ar­mót. Nú er búist við henni upp úr þeim.

Nær allir lands­menn vildu rann­sókn­ar­nefnd

Sú ákvörðun Bjarna Bene­dikts­sonar að fela Rík­is­end­ur­skoðun að gera úttekt á banka­söl­unni var harð­lega gagn­rýnd af sumum stjórn­ar­and­stöðu­þing­mönn­um, sem vildu láta skipa rann­sókn­ar­nefnd Alþingis með mun víð­tæk­ari heim­ildir til að fara ofan í saumana á söl­unn­i. Spilaði þar meðal ann­ars inn í að faðir Bjarna, Benedikt Sveins­son, var á meðal þeirra 207 fjár­festa sem fengu að kaupa í Íslands­banka.

Í grein sem Jóhann Páll Jóhanns­son, þing­maður Sam­fylk­ing­ar­inn­ar, birti á Kjarn­anum í apríl sagði meðal ann­ars: „Það má vel vera að Rík­­is­end­­ur­­skoðun sé ágæt­­lega til þess fallin að yfir­­fara ákveðna þætti er varða söl­una á Íslands­­­banka. En ef ætl­­unin er að rann­saka atburð­ina frá mörgum hlið­um, laga­­leg­um, sið­­ferð­i­­leg­um, póli­­tískum og stjórn­­­sýslu­­leg­um, og „velta við öllum stein­um“ eins og jafn­­vel stjórn­­­ar­liðar kalla eftir er hins vegar ljóst að rann­­sókn­­ar­heim­ildir Rík­­is­end­­ur­­skoð­unar duga skammt og verk­efnið fellur bein­línis illa að starfs­sviði stofn­un­­ar­inn­­ar.

Þá er óheppi­­legt að úttektin fari fram sam­­kvæmt sér­­stakri beiðni frá fjár­­­mála- og efna­hags­ráð­herra, sama manni og hefur for­­göngu um banka­­söl­una sem er til athug­un­­ar.“

Í könnun sem Gallup birti seint í apríl kom fram að 73,6 pró­­sent lands­­manna taldi að það ætti að skipa rann­­sókn­­ar­­nefnd en 26,4 pró­­sent taldi nægj­an­­legt að Rík­­is­end­­ur­­skoðun gerði úttekt á söl­unni. Kjós­­endur Sjálf­­stæð­is­­flokks­ins skáru sig úr þegar kom að þessu, en 74 pró­­sent þeirra voru á því að úttekt Rík­­is­end­­ur­­skoð­unar nægði til. Tæp­­lega þriðj­ungur kjós­­enda hinna stjórn­­­ar­­flokk­anna var á þeirri skoðun en um tveir þriðju á því að skipa þyrfti rann­­sókn­­ar­­nefnd. Ekki þarf að koma á óvart að kjós­­endur stjórn­­­ar­and­­stöð­u­­flokka voru nær allir á því að rann­­sókn­­ar­­nefnd sé nauð­­syn­­leg.

Hluturinn hefur hækkað um sjö milljarða

Sá hópur fjár­festa sem var val­inn til að taka þátt í lok­aða útboð­inu á 22,5 pró­sent hlut íslenska rík­is­ins í Íslands­banka borg­aði 117 krónur fyrir hvern hlut. Heild­ar­upp­hæðin var, líkt og áður sagði, 52,65 millj­arðar króna. Það var rúm­lega fjögur pró­sent undir skráðu gengi bank­ans á þeim tíma og afslátt­ur­inn rök­studdur með því að það væri alvana­legt alþjóð­lega þegar stór hlutur í skráðu félagi væri seldur með til­boðs­fyr­ir­komu­lagi að gefa afslátt.

Við lokun mark­aða í gær var gengi bréfa í Íslands­banka 132,6 krónur, eða 13,3 pró­sent yfir því verði sem hóp­ur­inn fékk að kaupa á í mars. Virði þess hlutar sem var seldur er nú því 59,7 millj­arðar króna, eða um sjö millj­örðum krónum meiri en það var í mars.

Ljóst er að hluti þeirra sem tóku þátt í útboð­inu hafa þegar selt hlut­ina sína með hagn­aði. Nokkrum vikum eftir útboðið lá fyrir að að minnsta kosti 34 fjár­festar hefði selt og að nöfn 60 fjár­festa birt­ust ekki á hlut­hafa­skrá af ýmsum ástæðum.

Hluthöfum hefur fækkað um 40 prósent

Ríkið hóf að selja hluti í Íslands­banka í fyrra, þegar 35 pró­sent hlutur var seldur, og bank­inn var skráður á markað í júní 2021. Þá voru hlut­hafar í bank­anum 24 þús­und tals­ins. Í almennu útboði sem fór fram í aðdrag­anda skrán­ingar var þátt­taka almenn­ings mikil enda þótti útboðs­gengið, 79 krónur á hlut, vera afar lágt miðað við efna­hags­reikn­ing bank­ans og stöðu mála á hluta­bréfa­mark­aði á þeim tíma. Á fyrsta degi við­skipta hækk­aði verðið enda um 20 pró­sent og í dag er það 68 pró­sent hærra en það var í útboð­inu.

Þegar Íslands­banki birti upp­gjör sitt fyrir fyrri hluta árs­ins 2022 í lok síð­asta mán­aðar kom fram að hlut­hafar í bank­anum séu nú 14.300 tals­ins. Þeim hefur því fækkað um 9.700 frá því í júní í fyrra, eða um 40 pró­sent. ­Kaup­endur af þorra þeirra bréfa sem seld hafa verið eru íslenskir líf­eyr­is­sjóð­ir, í eigu íslensks almenn­ings, sem eiga að minnsta kosti sam­an­lagt um 28 pró­sent hlut í bank­an­um.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár