Kostnaður við greiðslur til stjórnarmanna Icelandair Group jókst um þriðjung milli ára

Icelandair Group tapaði 13,7 milljörðum króna í fyrra og hefur alls tapað næstum 80 milljörðum króna á fjórum árum. Kostnaður við stjórn félagsins jókst hinsvegar um 11,3 milljónir króna á síðasta ári.

Icelandair Group hefur gengið í gegnum mikinn ólgusjó á síðustu árum.
Icelandair Group hefur gengið í gegnum mik­inn ólgu­sjó á síð­ustu árum. Mynd: Icelandair/skjáskot

Heildar­kostnaður við laun og hlunnindi stjórnar Icelandair Group í fyrra var tæplega 317 þúsund Bandaríkja­dalir, eða 41,3 milljónir króna miðað við ársloka­gengi 2021. Til viðbótar fengu stjórnar­menn greiðslur upp á rúmlega 37 þúsund Bandaríkja­dali, um 4,8 milljónir króna, í lífeyris­sjóði. Samtals námu því laun, hlunnindi og lífeyris­sjóðs­greiðslur til stjórnar­manna í félaginu um 354 þúsund Bandaríkja­dölum eða rúmlega 46 milljónum króna.

Greiðslurnar fóru til fimm núverandi stjórnar­manna auk fyrr­verandi stjórnar­formanns félagsins, Úlfars Steindórs­sonar, sem hætti í stjórn í fyrra­sumar.

Árið 2020 fengu þau fimm sem sátu í stjórn Icelandair Group í lok þess árs og tveir stjórnar­menn sem hættu á því ári samtals rúmlega 239 þúsund Bandaríkja­dali, 31,2 milljónir króna, í laun og hlunnindi og tæplega 28 þúsund Bandaríkja­dali, um 3,6 milljónir króna, í lífeyris­sjóðs­greiðslur. Samanlagt fengu stjórnar­meðlimir því 34,8 milljónir króna í greiðslur á árinu 2020.

Kostnaður Icelandair Group vegna launa, hlunninda og lífeyris­sjóðs­greiðslna stjórnar­manna jókst því um 11,3 milljónir króna milli ára, eða um þriðjung.

Hæstar greiðslur fékk Nina Jonsson, vara­formaður stjórnar Icelandair Group, en saman­lagðar greiðslur til hennar voru 832 þúsund krónur að meðaltali á mánuði. Guðmundur Hafsteinsson, stjórnar­formaður Icelandair Group, fékk 789 þúsund krónur að meðaltali á mánuði í laun, hlunnindi og lífeyris­sjóðs­greiðslur fyrir stjórnar­setu sína í Icelandair Group.

Þetta kemur fram í árs­reikn­ingi Icelandair Group sem birtur var í síð­ustu viku.

Í skýrslu tilnefninga­nefndar Icelandair Group, sem var birt í Kauphöll Íslands á mánudag, er lagt til að stjórnin verði áfram skipuð sömu fimm einstaklingum eftir næsta aðalfund, en að ekki sé tilefni til að endur­skoða greiðslur til stjórnar­manna. Þar segir einnig að það sé viðvarandi áhætta fyrir félagið að lykil­starfsmenn hætti þar sem þeir fá ekki nægilega vel greitt fyrir störf sín, en þrír úr framkvæmda­stjóri Icelandair Group hafa hætt störfum frá síðasta aðalfundi. Í viðtölum sem nefndin tók við stjórn­endur og stjórnar­menn í félaginu kom fram að þeir teldu þörf á „sterkari varðveislu­áætlun ásamt endur­skoðuðu starfs­kjara­fyrir­komulagi æðstu stjórn­enda“.

Laun forstjóra hækkuðu um helming

Kjarninn greindi frá því í gær að ​Bogi Nils Boga­son, for­stjóri Icelandair Group, hafi fengið 518 þús­und Banda­ríkja­dali í laun og hlunn­indi á síð­asta ára. Á árs­loka­gengi árs­ins 2021 eru það 67,5 millj­ónir króna eða 5,6 millj­ónir króna á mán­uði. Til við­bótar fékk Bogi Nils 119,6 þús­und Banda­ríkja­dali í líf­eyr­is­greiðsl­ur, eða 15,6 millj­ónir króna á ofan­greindu gengi. Það þýðir að laun, hlunn­indi og líf­eyr­is­greiðslur hans á síð­asta ári voru sam­tals 83,1 millj­ónir króna, eða rúm­lega 6,9 millj­ónir króna að með­al­tali á mán­uð­i.

Laun Boga hækk­uðu umtals­vert milli ára. Hann var með 355 þús­und Banda­ríkja­dali í laun á árinu 2020 og fékk þá 76 þús­und Banda­ríkja­dali í líf­eyr­is­sjóðs­greiðslur frá félag­inu. Þegar þessar tölur eru umreikn­aðar í íslenskar krónur á árs­loka­gengi síð­asta árs þýða þær að laun og hlunn­indi Boga voru 46,3 millj­ónir króna á árinu 2020, eða tæp­lega 3,9 millj­ónir króna á mán­uði, og líf­eyr­is­sjóðs­greiðsl­urnar alls 9,9 millj­ónir króna. Sam­tals voru laun, hlunn­indi og líf­eyr­is­sjóðs­greiðslur Boga á árinu 2020 því 56,2 millj­ónir króna miðað við árs­loka­gengi 2021, eða 4,7 millj­ónir króna á mán­uð­i.

Laun, hlunn­indi og líf­eyr­is­sjóðs­greiðslur Boga hækk­uðu því um 48 pró­sent í Banda­ríkja­dölum talið milli ára.

Kjarn­inn sendi fyr­ir­spurn til Icelandair Group vegna máls­ins og óskaði eftir útskýr­ingum á launa­hækkun for­stjóra. Í svari upp­lýs­inga­full­trúa félags­ins sagði að breyt­ing­una megi „lang­mestu leyti rekja til þess að á árinu 2020 tók for­stjóri á sig 30 pró­sent launa­lækkun stærstan hluta árs­ins. Þess má geta í þessu sam­hengi að árs­reikn­ingur félags­ins er í USD en öll laun á Íslandi, þ.m.t. for­stjóra eru greidd í íslenskum krón­um. Með­al­gengi íslensku krón­unnar gagn­vart USD styrkt­ist á milli ára og ýkir það hækk­un­ina í árs­reikn­ingn­um.“

Gengi íslensku krón­unnar gagn­vart Banda­ríkja­dal veikt­ist um 2,5 pró­sent á síð­asta ári.

Mikið tap í fyrra

Icelandair Group tap­aði 13,7 millj­­örðum króna á árinu 2021 miðað við gengi krónu í lok þess árs en félagið gerir upp í Banda­­ríkja­döl­­um. Þar af tap­aði félagið 5,1 millj­­arði króna á síð­­­ustu þremur mán­uðum árs­ins.

Rekstr­­ar­tap á síð­­asta ári var 17,7 millj­­arðar króna, en end­an­­legt tap dróst saman vegna þess að aðrar tekjur voru jákvæð­­ar. Þar á meðal voru sala eigna, í Iceland Travel og Icelandair Hotels, og tekju­­færsla vegna reikn­aðra vaxta á vaxta­­lausri frestun á greiðslu skatta.

Tap Icelandair Group á árinu 2020 var 51 millj­­­arður króna, árið 2019 tap­aði það 7,8 millj­­­arðar króna og á árinu 2018 var tapið um 6,8 millj­­­arðar króna. Því hefur sam­­­stæðan tapað yfir 79 millj­­­örðum króna á síð­­­­­ustu fjórum árum.

Fyrirvari: Guðmundur Hafsteinsson, stjórnar­formaður Icelandair Group, á tæplega 1,9 prósent hlut í útgáfu­félagi Kjarnans.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár